Aflýsa Wireless eftir að Kanye var meinað að fara til Bretlands Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 8. apríl 2026 11:31 Kanye West heitir löglega Ye. Getty Wireless-hátíðinni sem halda átti í Bretlandi í sumar hefur verið aflýst eftir að bandaríska rapparanum Kanye West var meinaður aðgangur að landinu. West hefur verið gagnrýndur fyrir að tjá aðdáun sína á nasistum og Hitler.
West átti að troða upp öll þrjú kvöld hátíðarinnar sem er haldin ár hvert að sumri til í Lundúnum. Forsala var þegar hafin og eru miðarnir taldir hafa selst upp en opna átti fyrir almenna sölu í dag. Forsvarsmenn hátíðarinnar hlutu hins vegar töluverða gagnrýni vegna bókunar rapparans þar sem West, sem heitir löglega Ye, hefur ítrekað lýst yfir aðdáun á hugmyndafræði nasista og Hitler. Til að mynda gaf hann út lagið Heil Hitler, seldi boli með merki nasista á og sagðist elska Hitler. Hann baðst afsökunar á ummælum sínum í byrjun árs og sagðist hafa verið í löngu maníukasti sem hafi eyðilegt líf hans. Þá hefur hann fundað með rabbínum til að biðjast afsökunar. West hefur verið að koma sér aftur í sviðsljósið í kjölfar afsökunarbeiðninnar og hélt tvenna tónleika í Los Angeles-borg í síðustu viku. Sjá nánar: Ye á Wireless: Styrktaraðilar hætta við og forsætisráðherrann blandar sér í málið Í gær greindi innanríkisráðuneyti Breta frá því að West hefði sótt um vegabréfsáritun til að ferðast til Bretlands og troða upp á hátíðinni. Ákvörðun var tekin um að hafna beiðni hans í þágu almannahagsmuna. Í yfirlýsingu á heimasíðu Wireless segir að þau hafi haft samband við fjölda hagsmunaaðila vegna bókunar rapparans og þá hafi enginn sagst hafa áhyggjur. Nú séu þau hætt við að halda hátíðina þar sem West var meinaður aðgangur að landinu. „Gyðingahatur í öllum sínum myndum er viðbjóðslegt og við gerum okkur grein fyrir þeim raunverulegu og persónulegu áhrifum sem þessi mál hafa haft,“ segir í yfirlýsingunni sem BBC greinir frá. „Eins og Ye sagði í dag, viðurkennir hann að orð eins og sér séu ekki nóg og þrátt fyrir það vonast hann enn til að fá tækifæri til að hefja samtal við samfélag gyðinga í Bretlandi.“
Mál Kanye West Bretland Hollywood Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Patrick Stewart látinn Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Tónlist Erna Mist og Þorleifur selja Lífið Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Lífið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Sjá meira