Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Jakob Bjarnar skrifar 7. apríl 2026 13:10 Helga Vala segir námslán sín hafa hækkað og séu nú komin upp í 20 milljónir. Konráð er hins vegar á því að námslánin hafi hann, og þá Helga Vala einnig, fengið á tombólukjörum. vísir/vilhelm Konráð S. Guðjónsson, sem nú starfar sem sjálfstæður ráðgjafi hjá Kontext ehf. en er fyrrum efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar og aðstoðarmaður fjármálaráðherra, þakkar fyrir námslánin, með virtum.
Þetta gerir hann í Facebook-færslu en hér er augljóslega um að ræða óbeina gagnrýni á Facebook-færslu lögmannsins Helgu Völu Helgadóttur sem vakti talsverða athygli. Ekkert eðlilegt við að námslánin hækki „Ég var svo heppin að eiga þess kost að mennta mig, þökk sé námslánakerfinu. Ég var móðir lítillar stúlku þegar ég fór í Leiklistarskóla Íslands árið 1994 og svo fjögurra barna móðir þegar ég fór í lagadeildina 2005. Helga Vala segir nákvæmlega ekkert eðlilegt við það hvernig námslánin hagi sér og þar megi kenna íslensku krónunni um.vísir/vilhelm Þótt ég ynni alltaf á sumrin og einnig í hlutastörfum með námi þá hefði ég aldrei getað þetta án námslána og er því mjög þakklát því jöfnunartæki sem námslánin eru,“ segir Helga Vala. Hún greinir frá því að hún hafi fengið heilar 11 milljónir í lán, hún hafi borgað til baka rúmlega 6 milljónir en skuldi í dag rúmar 20 milljónir í námslán. Þetta beintengir Helga Vala þá við ESB-umræðuna: „Þetta er meðal annars fórnarkostnaðurinn við að halda í íslensku smákrónuna. Það er nákvæmlega ekkert eðlilegt við þetta.“ Háskólamenntun á tombólukjörum Konráð tekur hins vegar allt annan pól í hæðina. Hann telur sig lukkunnar pamfíl að hafa fengið námslán á tombólukjörum frá samborgum sínum. Þannig hafi honum tekist að láta drauma sína rætast og afla sér menntunar. Tombólukjörin fólust í: - Engir vextir á námstíma (fjögur ár) - Engar afborganir og vaxtagreiðslur í tvö ár þar á eftir - 0,4% verðtryggðir vextir – minna en einn tíundi af því sem ég myndi fá fyrir íbúðalán í dag - Greiðslur takmarkast af 3,4% af tekjum, sem er vel viðráðanlegt. Konráð segir að séu tekjur visst lágar þýði það í reynd að raunvextir lánsins séu neikvæðir. Konráð S. Guðjónsson segir að sá sem fékk 11 milljónir (30-40 milljónir á verðlagi dagsins í dag) og skuldi enn 20 milljónir hafi í reynd búið við neikvæða raunvexti á tímabilinu, í boði okkar hinna.vísir/vilhelm „Á mannamáli þýðir það að þú ert að fá niðurgreidda peninga og vel rúmlega það. Tökum eitthvað dæmi: Einhver sem fékk 11 milljónir (30-40 milljónir á verðlagi dagsins í dag) í tvennu lagi sitt hvoru megin við aldarmót og skuldar enn 20 milljónir hefur í reynd búið við neikvæða raunvexti á tímabilinu, í boði okkar hinna.“ Myndi aldrei kvarta undan þessum kjörum Konráð segir að sér finnist hann hafa greitt „svakalega mikið“ inn á þetta lán og það hafi þrátt fyrir allt hækkað. „Ég kann hins vegar aðeins að reikna og geri mér grein fyrir því að launavísitalan hefur hækkað um 138% frá því að skuldabréfinu mínu var lokað.“ Háskólamenntun segir Konráð forréttindi og hvað þá að fá hana fjármagnaða á þeim kjörum sem hann hefur greint frá. Og hann lætur sig ekki muna um að senda, með óbeinum hætti þó, Helgu Völu meinlegt skeyti: „Það væri mitt síðasta að fara að kvarta yfir því, jafnvel þótt ég hafi bara farið eina námsleið og samtals skuldsett mig sem nemur innan við helmingi af dæminu hérna á undan.“
Námslán Samfélagsmiðlar Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Íslenska krónan Mest lesið Barnaníðingur fékk ekki annað leyfi hjá Hæstarétti Innlent Ljóst hvar hnífurinn stendur í kúnni Innlent Sniðganga Hvíta húsið Erlent Bílastæði við Stúdentagarða verða einkastæði Innlent Verði að bregðast við „bullandi launarýrnun“ Innlent Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Innlent Flugvirkjar eigi að sýna vilja sinn í verki Innlent Lárus Welding á endastöð hjá MDE Innlent Hefði þegið samtal við Jóhannes Innlent Litlu nær um peningana í Fljótagöng Innlent Fleiri fréttir Barnaníðingur fékk ekki annað leyfi hjá Hæstarétti Ljóst hvar hnífurinn stendur í kúnni Bílastæði við Stúdentagarða verða einkastæði Verði að bregðast við „bullandi launarýrnun“ Flugvirkjar eigi að sýna vilja sinn í verki Lárus Welding á endastöð hjá MDE Segja Icelandair hafa hafnað boði um frestun verkfalls Bifreið fjarlægð með krana eftir að eldur kviknaði Litlu nær um peningana í Fljótagöng Hefði þegið samtal við Jóhannes Tekjur af fiski utan kvóta rúmlega fjórfaldast á fimm árum „Norðurlöndin eru ekki að eltast við skráningarskyldu hlaðvarpa“ Muni grípa til nauðsynlegra aðgerða vegna verkfallsins Tveir á vinnupalli sem hrundi Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Útgjaldaaukningin mest hjá Ragnari Skoða hvort útlendingar þurfi að bíða eftir fullri aðstoð Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kílómetra hraða Börn á rafmagnskrossurum og Kópavogur vill herða reglur Sigmar í veikindaleyfi Tafir á Keflavíkurflugvelli Vilja þingkosningar og staðgöngumæður Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Barn á rafmagnskrossara sótt af foreldrum sínum Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Skattadrottning þurfti að borga álag eftir allt saman Vill þyngja hámarksrefsingu fyrir að kaupa vændi af barni „Mikill skilningur á því að það þurfti að fara í breytingar“ Hólmarnir í Tjörninni fá andlitslyftingu Missti stjórn á bílnum og hafnaði á vegg Sjá meira