Hvað á að gera við fermingarpeningana? Björn Berg Gunnarsson skrifar 8. apríl 2026 07:04 Björn Berg Gunnarsson svarar lesendum Vísis aðra hverja viku. Hægt er að senda honum spurningu í spurningaforminu hér fyrir neðan. Vísir/Vilhelm 40 ára kona spyr: „Við erum að ferma dóttur okkar og veltum fyrir okkur hvað við eigum að gefa henni og hvað gera eigi við þá peninga sem hún mun fá að gjöf?“ Þessu velta margir fyrir sér og getur verið hausverkur fyrir foreldra. Oft er allt of háum fjárhæðum valið til veisluhalda og miklar áhyggjur af samkeppni og samanburði við aðra þegar kemur að fermingargjöfum. Björn Berg Gunnarsson fjármálaráðgjafi svarar spurningum frá lesendum Vísis um allt sem tengjast fjármálum, fjárfestingum og öðru. Hvað er ásættanlegt? Hér erum við að ræða smekksatriði og ég veit að áherslur fólks varðandi fermingar geta verið mjög misjafnar. Mín skoðun er þó sú að eitt sé mikilvægt að ákveða. Við ætlum ekki að bera okkur saman við aðrar fjölskyldur. Við gefum barninu það sem okkur þykir henta, en það er engin ástæða til að ætla að slíkt þurfi að vera dýrt. Hvað mun gleðja barnið og gagnast því? Þurfa það að vera peningar? Hvað með upplifun eða leiðsögn? Ykkur ber ekki skylda til að herma eftir öðrum. Á þessum árstíma fer árleg umræða af stað á samfélagsmiðlum. „Hvað eruð þið að gefa mikinn pening svona almennt í fermingargjöf?“ las ég á einum stað. Einnig „Hvað mynduð þið segja að væri ásættanleg fermingargjöf?“. Þarna er fólk að biðja um leiðbeiningar svo það geti hermt eftir því sem aðrir hafa sennilega hermt upp eftir öðrum sem höfðu spurt félagana á kaffistofunni og þar fram eftir götunum. 14 ára börn taka þannig við fjárhæðum sem ákveðnar voru svo enginn móðgist eða út frá því sem öðru fólki finnst ásættanlegt. Við ætlum ekki að nálgast fjármál með þeim hætti, en aðrir munu gera það og því er um að gera að huga vel að þeim fjármunum sem dóttir ykkar mun fá gefins. Hvar komum við fermingarpeningunum fyrir? Hart er barist um sparnað fermingarbarna. Bankar ganga jafnvel svo langt að borga fyrir að innlögn inn á reikninga eða í sjóði, sem gefur til kynna að þeir telji sig geta hagnast verulega af viðskiptasambandi við barnið til lengri tíma litið. Rétt eins og varðandi fjáhæðirnar er erfitt að alhæfa um heppilegustu ávöxtunarleið sparnaðar fermingarbarna, enda er slíkt sannarlega smekksatriði. Ítarlega var rætt um sparnað barna í svari við annarri spurningu hér á vefnum, sem ég vona að gagnist þér: Ég legg þó áherslu á að tilefni sem þetta sé nýtt til fullnustu. Það þarf sannarlega að hafa vit fyrir barni á fermingaraldri, en hafðu dóttur þína þó með í ráðum. Byrjið á að ræða um það sem þið eruð eflaust sammála um. Svo sem að svona gjafir muni ekki berast aftur og þið viljið báðar að þær nýtist henni sem best við að hafa það gott fjárhagslega og geta keypt sér íbúð þegar hún verður eldri. Þá ræðið þið hvort skynsamlegt sé að skipta sparnaðinum upp. Verður hann allur lagður fyrir til íbúðarkaupa eða verður hluti hans tekinn frá fyrir kaupum eða upplifun sem gleður hana í dag? Hvað kostar slíkt og hvaða áhrif mun það hafa á langtímasparnaðinn? Með þessu kennir þú henni að forgangsraða, reikna og vega og meta ólík fjárhagsleg markmið. Að lokum veljið þið hentuga ávöxtunarleið. Í sameiningu takið þið ákvörðun um hvort og þá hvaða bankabók hentar, hvort ávaxtað skuli í sjóðum eða með öðrum hætti. Rökstyðjið þá ákvörðun og kynnið ykkur ólíka kosti. Barnið þarf að hlusta Vandaðu samskiptin við barnið. Þetta er góður tímapunktur til að hefja opið og hreinskiptið samtal um fjármál og þá er lykilatriði að barnið hlusti á þig. Þú getur lesið þér nánar til um slíkt í öðru svari hér: Ég vona að þetta gangi vel hjá ykkur! Fjármálin með Birni Berg Fermingar Mest lesið Svona kemur þú í veg fyrir tvær kröfur vegna kílómetragjalds Neytendur Feðgin í Firðinum: „Pabbi er besti vinur minn“ Atvinnulíf Staðalímyndir meira vandamál en kynslóðamunur Atvinnulíf Sagan full af dæmum þar sem mikilvæg félög hverfa Viðskipti innlent Flugmenn og Icelandair funda á morgun Viðskipti innlent Fjarfundaþjónusta Hugarafls er lífsbjörg fyrir fólk Lífið samstarf Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Ölgerðin hækkar verðin Neytendur Icelandair hefur flug til Qaqortoq Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Flugmenn og Icelandair funda á morgun Sagan full af dæmum þar sem mikilvæg félög hverfa Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Icelandair tekur litáíska vél á leigu Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Sjá meira
Björn Berg Gunnarsson fjármálaráðgjafi svarar spurningum frá lesendum Vísis um allt sem tengjast fjármálum, fjárfestingum og öðru.
Fjármálin með Birni Berg Fermingar Mest lesið Svona kemur þú í veg fyrir tvær kröfur vegna kílómetragjalds Neytendur Feðgin í Firðinum: „Pabbi er besti vinur minn“ Atvinnulíf Staðalímyndir meira vandamál en kynslóðamunur Atvinnulíf Sagan full af dæmum þar sem mikilvæg félög hverfa Viðskipti innlent Flugmenn og Icelandair funda á morgun Viðskipti innlent Fjarfundaþjónusta Hugarafls er lífsbjörg fyrir fólk Lífið samstarf Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Ölgerðin hækkar verðin Neytendur Icelandair hefur flug til Qaqortoq Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Flugmenn og Icelandair funda á morgun Sagan full af dæmum þar sem mikilvæg félög hverfa Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Icelandair tekur litáíska vél á leigu Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Sjá meira