Hversu mörg líf þarf áður en kerfið vaknar? Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar 5. apríl 2026 15:01 Þegar ég las tilkynninguna um að Kjartan, faðir á besta aldri, væri látinn eftir bílslys í Suður-Afríku í desember síðastliðnum fylltist ég djúpri sorg. Ég finn líka fyrir djúpri reiði. Reiði vegna þess að kerfið brást þessum föður og hans fjölskyldu. Reiði sem kemur ekki úr engu heldur úr reynslu móður sem sjálf hefur staðið í baráttu við fíknivanda í fjölskyldunni. Reiði yfir því að í samfélagi eins og okkar þurfi foreldrar enn að berjast árum saman fyrir hjálp sem ætti að vera sjálfsögð. Í slysinu létust einnig móðir hans og unglingsdóttir. Þau höfðu farið hálfan hnöttinn til að heimsækja son Kjartans í meðferð þar sem þau ætluðu að eyða jólum og áramótum með drengnum. Ég sendi mínar dýpstu samúðarkveðjur til fjölskyldu og vina þeirra sem misstu ástvini sína í þessu hörmulega slysi. Hugur minn er hjá þeim á þessum erfiðu tímum. Þetta er harmleikur af verstu gerð. Og nú stöndum við frammi fyrir atburði sem hefur skekið samfélagið. Fórnarkostnaðurinn er átakanlegur: hörmulegt slys sem svipti þrjá fjölskyldumeðlimi lífinu og skilur fjölskyldur og vini eftir í djúpri sorg. En spurningin sem situr eftir er þessi: Hvers vegna er íslenskt ungmenni í meðferð í Suður-Afríku? Svarið er sárt en einfalt. Vegna þess að íslensk stjórnvöld hafa brugðist. Þegar barn er í vanda breytist líf foreldra á einni nóttu. Óttinn verður stöðugur fylgifiskur. Maður vaknar á nóttunni með hnút í maganum og spyr sjálfan sig: Er barnið mitt öruggt? Hvar er það? Hvern er það að umgangast? Á sama tíma þarf maður að berjast við kerfi sem er seinvirkt, fjarlægt og vanbúið til að mæta neyðinni sem blasir við fjölskyldum á hverjum degi. Í áratugi hafa foreldrar, sérfræðingar og fagfólk bent á að úrræði fyrir ungmenni með fíknivanda og alvarlega vanlíðan séu of fá. Skýrslur hafa verið skrifaðar. Nefndir skipaðar. Áætlanir kynntar. En þegar fjölskyldur standa frammi fyrir raunveruleikanum blasir við allt annað. Biðlistar. Skortur á meðferðarúrræðum. Kerfi sem bregst þegar mest á reynir. Á bak við þessi orð eru raunverulegar fjölskyldur. Foreldrar sem sofa lítið. Foreldrar sem lifa í stöðugum ótta um að síminn hringi með fréttir sem þau óttast mest. Foreldrar sem berjast fyrir börnin sín með öllu sem þau eiga en finna sig oft standa nánast ein gegn kerfi sem virðist ekki ná utan um vandann. Þau banka á dyr kerfisins aftur og aftur. En allt of oft eru svörin þau sömu. Það er ekki pláss. Það er biðlisti. Foreldrar sem standa í þessari stöðu þekkja þá tilfinningu að ganga frá einni stofnun til annarrar með barnið sitt í hjartanu og vonina í höndunum. Þau útskýra stöðuna aftur og aftur, segja sömu söguna og biðja um hjálp en fá of oft þau svör að úrræðin séu ekki til staðar eða að biðin sé löng. Fyrir foreldra sem horfa upp á barnið sitt sökkva dýpra í vanda er sú bið ekki bara bið. Hún er ótti. Hún er kvíði. Og örvænting. Börn í fíknivanda hafa ekki tíma fyrir biðlista. Ungmenni sem eru að sökkva þurfa hjálp strax, ekki eftir mánuði eða ár. Þá neyðast fjölskyldur til að gera það sem engin fjölskylda ætti að þurfa að gera. Þau leita hvert sem er eftir hjálp og senda börnin sín jafnvel til annarra heimsálfa í von um að einhver þar geti hjálpað þegar allt annað hefur brugðist. Ekkert foreldri tekur slíka ákvörðun af léttúð. Það er gert af ást. Af ótta. Og af örvæntingu. En við verðum líka að segja hlutina eins og þeir eru. Kerfið hefur brugðist. Við þurfum fleiri hendur á gólfið. Ekki fleiri skýrslur í skúffur. Það sem er kannski sárast við þessa umræðu er að við vitum hvernig þetta byrjar. Við vitum hvernig ungt fólk getur smám saman sogast inn í fíkn og vanlíðan. Við vitum líka að þegar gripið er inn snemma er oft hægt að bjarga lífum. En þegar kerfið bregst sjáum við aftur og aftur unga einstaklinga sem hefðu getað átt framtíð, drauma og líf fram undan en týnast í staðinn í kerfi sem náði ekki að grípa þau í tæka tíð. Hvert ungmenni sem tapast er ekki bara persónulegur harmleikur. Það er samfélagslegur ósigur. Í marga áratugi hafa ríkisstjórnir komið og farið. Ráðherrar hafa skipst á. Starfshópar hafa verið skipaðir og áætlanir kynntar. En fjölskyldur segja enn sömu söguna. Þegar sama vandamálið er þekkt í áratugi en lausnirnar skila sér ekki í raunveruleg úrræði fyrir börn og fjölskyldur er ekki lengur hægt að tala um mistök. Þá er um kerfisbrest að ræða. Þegar fjölskyldur í litlu og auðugu landi neyðast til að senda börnin sín hálfa leið um heiminn til að fá meðferð er það ekki bara sorglegt. Það er ákæra. Ákæra á kerfið. Ákæra á stjórnvöld sem hafa vitað af vandanum í áratugi en ekki brugðist nægilega hratt eða af nægilegri alvöru. En þessi harmleikur vekur líka spurningu sem við sem samfélag verðum að horfast í augu við: Höfum við ekki þegar þurft að fórna of mörgum ungmennum vegna vanrækslu stjórnvalda síðustu áratugi? Hversu mörg líf þarf áður en kerfið vaknar? Ísland fær falleinkunn! Höfundur er fyrrverandi trúnaðarmaður Samtaka aðstandenda og fíknisjúkra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Fíkn Mest lesið Landlægur misskilningur um þjóðaratkvæðagreiðslu Hjörtur Hjartarson Skoðun Hver ber ábyrgð þegar allir bera ábyrgð? Snorri Birgisson Skoðun Eru Íslendingar afglapar í samningatækni? Signý Sigurðardóttir Skoðun Aðildarviðræður eru samningaviðræður Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Dauðans alvara – fölsuð lyf og ólögleg lyfsala Alma D. Möller,Rúna Hauksdóttir Skoðun Dagur, bannað að plata! Ásdís Kristjánsdóttir Skoðun Það sem gögnin fundu ekki Elliði Vignisson Skoðun Hvað er samfélagsmiðill? Anna Laufey Stefánsdóttir Skoðun Bíp... bíp... bíp… Hilmar Kristinsson Skoðun Gríðarlegur velferðarábati með upptöku evru Dagur B. Eggertsson Skoðun Skoðun Skoðun Sumarið, samveran og samspil taugakerfa Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Þegar peningarnir og pólitíkin mæta nýjum veruleika Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Bíp... bíp... bíp… Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Króna eða evra? Bolli Héðinsson skrifar Skoðun Dauðans alvara – fölsuð lyf og ólögleg lyfsala Alma D. Möller,Rúna Hauksdóttir skrifar Skoðun Hvað er samfélagsmiðill? Anna Laufey Stefánsdóttir skrifar Skoðun Stöðugleiki í heljargreipum Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Landlægur misskilningur um þjóðaratkvæðagreiðslu Hjörtur Hjartarson skrifar Skoðun Það sem gögnin fundu ekki Elliði Vignisson skrifar Skoðun Eru Íslendingar afglapar í samningatækni? Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Baldur snýr heim á Breiðafjörð Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar allir bera ábyrgð? Snorri Birgisson skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru samningaviðræður Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Dagur, bannað að plata! Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Íslenska sumarveðrið dýrmæt auðlind? Gunnar Salvarssson skrifar Skoðun Við þurfum ekki að kaupa gervigreindarfullveldið að utan Hafsteinn Einarsson skrifar Skoðun Fullvinnsla heima, tollfrjálsir markaðir og raunhæf leið til að styrkja Krónuna og landsbyggðina Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Ég hélt að ég væri bara óvenju hrætt foreldri Heiðrún V. Ingudóttir skrifar Skoðun Siðferðilegt aflátsbréf - Um kerfisbundna notkun góðgerðarstarfs til að kaupa sér starfsleyfi Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Vernd dýraheilbrigðis á Íslandi í ljósi reglna um frjálst flæði vöru á innri markaði ESB Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gríðarlegur velferðarábati með upptöku evru Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Frá bónda til frumkvöðuls – Hvernig verður framtíð íslensks landbúnaðar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Neyðin kennir nöktum Íslendingi að spinna Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Af hámarkshraða og pylsum Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Sjögren er miklu meira en augn- og munnþurrkur Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Verkin tala – en ekki um okkur Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Auðlindastýring, aflandsfjármagn og hið asymmetríska stríð um 29. ágúst Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Trillukarlinn og ESB Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Gerum Ísland betra Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Tjakkurinn, ljóstíran og tækifærin Dóra Magnúsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Fullvinnsla heima, tollfrjálsir markaðir og raunhæf leið til að styrkja Krónuna og landsbyggðina Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Siðferðilegt aflátsbréf - Um kerfisbundna notkun góðgerðarstarfs til að kaupa sér starfsleyfi Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Vernd dýraheilbrigðis á Íslandi í ljósi reglna um frjálst flæði vöru á innri markaði ESB Erna Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Frá bónda til frumkvöðuls – Hvernig verður framtíð íslensks landbúnaðar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Auðlindastýring, aflandsfjármagn og hið asymmetríska stríð um 29. ágúst Sigurður Sigurðsson skrifar