Dauði eða ofsakvíði? Sóley Dröfn Davíðsdóttir skrifar 4. apríl 2026 20:01 Nýverið greindi Örn Elías Guðmundsson, öðru nafni Mugison, frá því í hlaðvarpinu Allt í lagi, sem er hluti af árvekniátaki Hugarafls um andlega heilsu, að hafa um tíma fengið endurtekin köst þar sem oföndun, andþyngsli og hræðsla gerðu vart við sig. Hann óttaðist að hann væri að deyja eða missa vitið þegar þetta átti sér stað. Ég fagna einlægri frásögn hans af vandanum, sem hann sigraðist á með hjálp sálfræðings. Í því tilefni langar mig til að segja frá kvíðavanda sem nefnist ofsakvíði, öðru nafni felmtursröskun. Vandinn einkennist af endurteknum, ofsafengnum köstum sem ná jafnan hámarki á innan við tíu mínútum. Þeim fylgja sterk líkamleg einkenni svo sem ör öndun, köfnunartilfinning, hraður eða þungur hjartsláttur, svimi, sviti, skjálfti, doði, sjóntruflanir og óraunveruleikatilfinning. Misjafnt er hver einkennanna hrjá hvern og einn en vanalega óttast fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast, eins og að það sé að sturlast eða deyja, til dæmis af völdum hjartaáfalls. Skiljanlega bregður fólki í brún þegar þessi sterku, líkamlegu einkenni gjósa fyrirvaralaust upp. Nokkuð algengt er að fólk fái stök kvíðaköst um ævina, sér í lagi undir álagi. Þeir sem þróa með sér ótta við köstin sjálf, með öðrum orðum „ótta við óttann“, fara að verjast þeim á ýmsan hátt, og teljast vera með ofsakvíða. Kvíðaköst eru óþægileg en meinlaus Kvíðakast er til marks um að neyðarviðbragð líkamans sé farið að stað en viðbragðið hefur stuðlað að afkomu mannsins í áranna rás. Það fær okkur til að hrökkva eða stökkva þegar möguleg hætta steðjar að, til dæmis þegar bíll nálgast okkur á ógnarhraða. Því miður fer viðbragðið stundum af stað að ósekju eins og ofurnæmur reykskynjari. Til að gera okkur kleift að bregðast hratt og vel við aðsteðjandi hættu, herðir neyðarviðbragðið á hjartslætti, öndun og þar með súrefnisupptöku, svo unnt sé að dæla súrefnisríku blóði til stóru vöðva líkamans. Vöðvar eru jafnframt spenntir svo unnt sé að hlaupa hratt eða berjast af fítonskrafti. Af þeim sökum fylgir vöðvabólga oft kvíða. Meltingu er skotið á frest og athygli beint að mögulegri ógn, svo erfitt verður að einbeita sér að öðru. Þessum miklu líkamsbreytingum fylgja hliðarverkanir svo sem sjóntruflanir, óþægindi frá meltingarvegi, dofi og andþyngsli, þótt súrefnismettun sé aldrei betri en einmitt í kvíðakasti. Einkennin kvíðakasts eru líka ólík þeim sem gera vart við sig í sturlun og reyna ekki meira á hjartað en sem því nemur að ganga rösklega upp stiga. Hvernig ber að bregðast við kvíðakasti? Þegar fólk er haldið ofsakvíða og kvíðakast gerir vart við sig, er best að leyfa kastinu að renna sitt skeið á þess að gera nokkuð til að draga úr því. Það þarf hvorki að eiga við öndun né annað (enda sér öndunin um sig sjálf) auk þess sem einkenni kastsins svipar til þeirra sem við finnum fyrir eftir að hafa tekið vel á því á hlaupabretti (og þá leyfum við óþægindunum bara að líða hjá). Ef við gerum eitthvað til að draga úr kvíðakastinu, sitjum við eftir með þá tilfinningu að eitthvað hræðilegt hefði gerst ef ekki hefði verið gripið til aðgerða. Þegar neyðarviðbragðið fer af stað er það í raun að spyrja hvort hætta sé á ferðinni. Ef við gerum eitthvað í málinu eru þau skilaboð send til heilans að hættan hafi verið raunveruleg og þá ræsist kvíðinn oftar í svipuðum aðstæðum. Því er mikilvægt að láta eins og ekkert sé og halda sínu striki þegar kvíðaköst láta á sér kræla, og sækja helst í aðstæður þar sem kvíðaköst gætu gert vart við sig. Þó geta sumir þurft aðstoð við þetta, en hugræn atferlismeðferð við ofsakvíða ber sérlega skjótan og góðan árangur. Höfundur er yfirsálfræðingur við Kvíðameðferðarstöðina. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sóley Dröfn Davíðsdóttir Mest lesið Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Aukinn stuðningur við leigjendur í Reykjavík Sanna Magdalena Mörtudóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson skrifar Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Sjá meira