Lárus hefur áhuga á að þjálfa Þór Þorlákshöfn áfram Aron Guðmundsson skrifar 27. mars 2026 11:32 Lárus Jónsson hefur þjálfað Þór Þorlákshöfn við góðan orðstír í sex ár. Undir hans stjórn varð liðið Íslandsmeistari í fyrsta og eina skiptið til þessa árið 2021. Vísir/Hulda Margrét Lárus Jónsson hefur áhuga á því að starfa áfram sem þjálfari Þórs Þorlákshafnar eftir fall liðsins úr Bónus deildinni í körfubolta í gær. Það þurfi hins vegar tvo til að dansa þann tangó.
Tap fyrir Grindavík í lokaumferð deildarkeppninnar í gær staðfesti fall Þórs Þorlákshafnar niður í 1. deildina. Fimm árum eftir að liðið varð Íslandsmeistari. Þórsarar sett mikinn og góðan svip á efstu deild. Samningur Lárusar, sem hefur stýrt Þór Þorlákshöfn við góðan orðstír frá árinu 2020, er að renna sitt skeið. Óvíst er hvort framhald verði á samstarfi hans og félagsins á þessari stundu. „Við höfum ekkert rætt framhaldið. Næstu skref eru kannski að hitta liðið, sleikja aðeins sárin og svo spjalla ég við stjórnina í framhaldi af því,“ segir Lárus í samtali við Vísi. En hefurðu áhuga á því að halda áfram sem þjálfari liðsins? „Þór Þorlákshöfn hefur náttúrulega verið stór partur af minni fjölskyldu síðastliðin sex ár. Okkur hefur liðið rosalega vel hérna. Sérstaklega sökum þess hversu gott fólk er í kringum félagið. Fyrir mitt leiti hef ég að sjálfsögðu áhuga á að starfa aftur fyrir Þór.“ Og halda áfram í þessu starfi sem þjálfari? Byggja liðið aftur upp og koma því aftur í deild þeirra bestu? „Já. En staðan er náttúrulega þannig að það þurfa að vera tveir að dansa þennan tangó. Ég veit ekki hver áhuginn er hjá Þór en við tökum það spjall yfir kaffibolla. Ég og Jóhanna (Jóhanna M. Hjartardóttir, form. KKD. Þórs Þorlákshafnar).“
Þór Þorlákshöfn Bónus-deild karla Mest lesið Elísa meðal tíu efstu á EM í utanvegahlaupum Sport Gamlir draugar sóttu að Arnari í Japan Fótbolti Stórsigur hjá Belgum undir stjórn Elísabetar Fótbolti Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Fótbolti Írarnir hans Heimis skemmdu kveðjupartý Kanada Fótbolti Aron Einar heim í Þorpið? Íslenski boltinn Mistök Wembanyama leiddu til annars sigurs Knicks Sport Borinn grátandi af velli viku fyrir HM Fótbolti „Við nutum þess í botn að vera þarna“ Fótbolti HM-minning: „Leyfið þeim að kyssast“ Fótbolti Fleiri fréttir Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Sjá meira