Þjálfari Friðriks Leós gerði afar pínleg mistök Sindri Sverrisson skrifar 27. mars 2026 09:01 Þjálfarinn Fred Hoiberg tók alla ábyrgð á mistökunum dýrkeyptu. Viðbrögð Berke Buyuktuncel eru lýsandi. Samsett/Getty Marsfárinu lauk í nótt hjá Nebraska Cornhuskers, liði Friðriks Leós Curtis, með 77-71 tapi gegn Iowa Hawkeyes í bandaríska háskólakörfuboltanum. Fáránleg mistök undir lok leiks reyndust Nebraska dýrkeypt.
Iowa var þremur stigum yfir og að taka innkast þegar innan við mínúta var eftir af leiknum. Liðið fór svo i sókn en þá reyndust aðeins fjórir leikmenn Nebraska vera inni á vellinum en ekki fimm. Nebraska-menn virtust svo átta sig á þessum neyðarlegu mistökum en það var of seint og Iowa uppskar auðvelda körfu á leið sinni að sigrinum. FOLGUEIRAS CATCHES THEM OFF GUARD 😳Nebraska only had 4 defenders on the floor. pic.twitter.com/6ayu6HjMiB— NCAA March Madness (@MarchMadnessMBB) March 27, 2026 Það sem gerir mistökin enn neyðarlegri er að þarna var Nebraska-liðið nýbúið að taka leikhlé og hefði því átt að geta verið með allt á hreinu. Leikmenn liðsins voru spurðir út í atvikið á blaðamannafundi eftir leik en þá greip þjálfarinn Fred Hoiberg fram í og axlaði alla ábyrgð: „Kennið mér um að þetta gerðist. Þetta var misskilningur í samskiptum og ég er aðalþjálfarinn. Kennið mér um þetta,“ sagði Hoiberg. "Put that one on me.”Fred Hoiberg spoke on Nebraska having just four players on the court for a crucial Iowa possession down the stretch pic.twitter.com/pS1zj4QBNy— Sports Illustrated (@SInow) March 27, 2026 Sumir hafa spurt sig af hverju dómarar leiksins leyfðu leiknum að fara af stað með aðeins fjóra leikmenn Nebraska inni á vellinum. Hoiberg sagðist ekki viss um hverjar reglurnar væru varðandi þetta en ítrekaði að ábyrgðin væri hans. Friðrik Leó Curtis þurfti að sætta sig við að vera á varamannabekknum enda er hann nýliði.Getty/Jack Dempsey Friðrik Leó, sem er nýliði, var að vanda í leikmannahópi Nebraska í leiknum en kom ekkert við sögu. Nú hafa öll þrjú Íslendingaliðin í Marsfárinu, þar sem 64 bestu háskólalið Bandaríkjanna taka þátt, fallið úr leik og eru 8-liða úrslitin að fara að hefjast.
Bandaríski háskólakörfuboltinn Mest lesið Varð skotmark með því að ráða Frey: „Ákveðin áhætta fyrir mig“ Fótbolti Biðst afsökunar og afsalar sér sigrinum Sport Mun saga Arons endurtaka sig? Fótbolti „Eins og að horfa á bíómynd“ Sport Seldur frá Keflavík til Sýrlands Íslenski boltinn Strákarnir á Saga Class en stelpurnar aftar í vélinni Sport Tætti í sig fulltrúa ungstirnisins: „Hvernig eruð þið að hugsa um þennan strák?“ Enski boltinn „Setjum pressu á leikmenn að haga sér fullkomlega næstu tvö árin“ Fótbolti Boehly selur og kveður Chelsea Enski boltinn Biðjast afsökunar eftir að keppandi kúkaði á sig Sport Fleiri fréttir Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Losa Leonard eftir refsinguna Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Pargo verður áfram hjá Grindavík Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Stærsta körfuboltakona heims gnæfir yfir mótherja sína Lakers á undan Bulls að reisa styttu af Phil Jackson Falko farinn frá ÍR Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Óíþróttamannslega villan heyrir sögunni til og KKÍ auglýsir eftir nöfnum á nýju villurnar Berglind Katla fer í skóla í New York Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Sindri fær sænskan landsliðsmann Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Jón Arnór byrjar að þjálfa Grindavík mokar inn verðlaunum Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Sjá meira