Varð fyrir „áfalli“ að sjá uppsagnarbréf Birgir Olgeirsson skrifar 26. mars 2026 13:37 Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra, nýtti tækifærið til að snúa gagnrýninni sem fólgin er í uppsagnarbréfinu sem honum var birt í dag upp í kaldhæðni um efni frumvarpsins sjálfs. Vísir/Ívar Fannar Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra segir ríkisstjórnina ætla að ná frumvarpi um afnám áminningarskyldu ríkisstarfsmanna í gegnum þingið. Á Alþingi í dag sagði hann að það hefði verið „nokkuð áfall yfir kaffinu í morgun“ að lesa uppsagnarbréf sem honum var birt í auglýsingu í Morgunblaðinu.
Ummælin féllu í óundirbúnum fyrirspurnum þegar Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, spurði ráðherrann út í auglýsinguna og afstöðu hans til málsins. „Ég tel reyndar að þessi félög hefðu getað sparað sér þennan pening og þessum mótmælum því að ég held að það standi ekki til af hálfu ríkisstjórnarinnar að klára þetta mál. Ég held að það sé meira til sýnis,“ sagði Sigmundur. Sigmundur Davíð virðist ekki hafa mikla trú á því að ríkisstjórnin muni ætla að koma frmvarpi um afnám áminningarskyldu ríkisstarfsmanna í gegnum þingið.Vilhelm Daði hafnaði því og sagði ríkisstjórnina ætla sér að ná málinu í gegnum þingið. Að hans mati væri víðtæk samstaða um breytingarnar. Sagði bréfið hvorki nægilega undirbúið né rökstutt Í svari sínu nýtti ráðherrann tækifærið til að snúa gagnrýninni upp í kaldhæðni um efni frumvarpsins sjálfs. „Það var nokkuð áfall yfir kaffinu í morgun að lesa uppsagnarbréf,“ sagði Daði Már. Daði Már sagði að uppsögnin sem honum var birt hefði vart staðist þær reglur sem hann sjálfur vill lögfesta. Vísir/Vilhelm Hann bætti við að uppsögnin hefði vart staðist þær reglur sem hann sjálfur vill lögfesta. Sér hefði til að mynda aldrei verið boðið upp á leiðbeinandi samtal og hann myndi óska eftir slíku frá viðkomandi aðilum. Þá sagði hann einnig að uppsagnarbréfið hefði að hans mati ekki uppfyllt skilyrði stjórnsýslulaga um nægjanlegan rökstuðning. Vilja afnema fortakslausa skyldu til áminningar Málið tengist frumvarpi Daða Más um breytingar á lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Þar er lagt til að 21. grein laganna verði felld brott og að ekki verði lengur skylt að veita starfsmanni áminningu áður en honum er sagt upp störfum. Í greinargerð með frumvarpinu kemur þó fram að málsmeðferðarreglur stjórnsýslulaga eigi áfram að gilda um uppsagnir ríkisstarfsmanna. Þar segir jafnframt að leiðbeinandi samtöl eða tilmæli geti áfram verið hluti af ferlinu, þótt ekki verði lengur um fortakslausa skyldu að ræða. Stéttarfélög hafa ráðist í herferð Andstaðan við frumvarpið hefur verið hörð. BSRB, Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga og Kennarasamband Íslands hófu 20. mars herferð gegn fyrirhuguðu afnámi áminningarskyldu og hafa sagt breytinguna fela í sér verulega skerðingu á réttindum opinbers starfsfólks.
Alþingi Kjaramál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Vinnumarkaður Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför Sjá meira