Árekstur í Borgarfirði 2025: Hálka ein meginorsaka banaslyss Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 26. mars 2026 16:57 Rútan var illa farin sem lýsir hversu harður áreksturinn var. Rannsóknarnefnd samgönguslysa Rannsóknarnefnd samgönguslysa hefur birt skýrslu um slys sem varð fyrir ári síðan. Lítið barn lést í slysinu og eru meginorsakirnar taldar vera hálka á yfirborði vegarins og að barnabílstóllinn brotnaði við höggið. Þann 6. mars 2025 varð árekstur fólksbíls af gerðinni Dacia Duster og Iveco-hópbifreðar á gatnamótum Vestfjarðarvegar og Hringvegar í Borgarfirði. Barn um borð í fólksbílnum lést í slysinu og slasaðist ökumaðurinn alvarlega. Rannsóknarnefnd samgönguslysa birti skýrslu um slysið í dag og greinir frá meginorsökum þess. Markmiðið með birtingu orsakanna er að draga úr hættu á að sams konar slys endurtaki sig en ekki að skipta sök eða ábyrgð. Meginorsök slyssins samkvæmt skýrslu nefndarinnar voru annars vegar að yfirborð vegarins við umrædd gatnamót var hált og hins vegar að snúningsdiskur barnabílstólsins brotnaði við áreksturinn. Þá var trjágróður í grennd við gatnamótin sem byrgði útsýn og hafnaði fólksbíllinn á steinhúsi sem var of skammt frá veginum. Nefndin tekur fram mikilvægi þess að hreinsa hjólbarða á vetrartímum þar sem þeir safna tjöru og öðrum óhreinindum við akstur á hálkuvörðum vegum. Einnig er mikilvægt að grípa inn í þegar trjágróður er farinn að vaxa nálægt vegum. Hálka á yfirborði vegarins Í skýrslunni er rýnt í aðstæðurnar sem voru þegar slysið varð. Fólksbíllinn var á leið suðaustur Vestfjarðarveg að gatnamótum við Hringveg í Borgarfirði. Hópbifreiðinni var ekið suður Hringveg að sömu gatnamótum og rann fólksbílinn í veg fyrir hópbifreiðina svo af varð harður árekstur. Rannsóknarnefnd samgönguslysa Um klukkustund fyrir slysið fór hálkuvarnartæki um gatnamótin, áleiðis norður Vestfjarðarveg. Snjóhula varð eftir á veginum en að sögn ökumanns hálkuvarnatækisins voru gatnamótin saltborin en saltið hafi ekki unnið á hálkunni áður en slysið varð. „Dacia bifreiðinni var ekið undir leiðbeinandi hraða (70 km/klst) að gatnamótunum og ökumaður hóf hemlun að minnsta kosti 5 sekúndum fyrir slys, en rann engu að síður inn á Hringveg í veg fyrir hópbifreiðina. Snjór og hálka á yfirborði vegarins var sennilega orsök slakari hemlunarskilyrða,“ segir í skýrslu nefndarinnar. Barnið var þá fest í bílstólinn, sem var með ISOFIX barnabílstólabúnaði, og sneri með bakið á móti akstursátt. Efri hluti stólsins tengdist við neðri hlutann með eins konar snúningsdisk. Er áreksturinn varð kom gríðarmikið högg á fólksbílinn, en hópbíllinn var tífalt þyngri en fólksbíllinn, og brotnaði efri hlutinn frá neðri hlutanum. Rannsóknarnefnd samgönguslysa starfar samkvæmt lögum um rannsókn samgönguslysa. Markmið laganna er að fækka slysum og auka öryggi í samgöngum með því að efla og bæta slysarannsóknir. Rannsókn samkvæmt lögunum skal eingöngu miða að því að leiða í ljós orsakir samgönguslysa og samgönguatvika, en ekki að skipta sök eða ábyrgð, með það að markmiði að draga úr hættu á sams konar slysum og atvikum og afleiðingum sambærilegra slysa. Stóllinn var rétt stilltur fyrir barnið sem var í honum og uppfyllti staðla fyrir gerð bílstóla en tekið er fram að höggþunginn var gríðarlegur. Samkvæmt Evrópustöðlum eiga barnabílstólar að þola hliðarákeyrslu upp að 24 kílómetrum á klukkustund en í þessu tilviki var hraðinn talsvert meiri. Of mikill trjágróður og húsið of nálægt veginum „Trjágróðursbelti við norðausturhorn gatnamótanna byrgði útsýn ökumanns hópbifreiðarinnar gagnvart umferð af Vestfjarðarvegi inn á Hringveg. Takmörkuð útsýn að Vestfjarðarvegi getur haft áhrif á viðbragðstíma ökumanna um Hringveg,“ segir í skýrslunni. Eftir að fólksbíllinn varð fyrir hópbifreiðinni hafnaði hann á litlu steinhúsi sem stóð við Hringveginn. Húsið var átta metrum frá veginum en miðað við viðmið Vegagerðarinnar um öryggisbil við vegi ætti það að vera að minnsta kosti 10,5 metrum frá veginum til að standast viðmiðin. Vilja endurskoða lágmarksöryggiskröfur Rannsóknarnefndin beinir því til Vegagerðarinnar að yfirfara þjónustuferla og kröfur vegna hálkuvarna við gatnamót Hringvegar og Vestfjarðarvegar auk þess að gera öryggisúttekt á gatnamótunum til að meta öryggi þeirra. Í framhaldinu verði Vegagerðin að grípa til viðeigandi ráðstafana til að bæta öryggi gatnamóta. Ansi hált var á gatnamótunum.Rannsóknarnefnd samgönguslysa Þá beinir nefndin þeirri tillögu til evrópsku efnahagsnefndarinnar hjá Sameinuðu þjóðunum UNECE að endurskoða lágmarksöryggiskröfur til barnabílstóla. „Barnabílstólar eru búnaður sem á að tryggja öryggi barna í bifreiðum við raunverulegar aðstæður í umferðinni og notendur verða að geta treyst á öryggi þeirra við rétta notkun,“ segir í skýrslunni. Samgönguslys Borgarbyggð Lögreglumál Mest lesið Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Innlent Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Innlent Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Innlent Límmiðar lifðu ekki af nóttina Innlent Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Erlent Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Innlent Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Innlent Fleiri fréttir Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Viðtal við stækkunarstjóra, umferðartafir og stafræn hvíld Rekstrarformið byggi á sniðgöngu kjarasamninga Réðst á móður sína og hótaði ítrekað: „Ég sting þig, ég ætla að stinga þig“ Gætum þurft að framvísa smáríkjakortinu Afnema byggingarréttargjöld í Reykjanesbæ Nýi Landspítalinn verði tilbúinn í árslok 2029 Baunað á Jónas Má þvert á flokka Sjá meira
Rannsóknarnefnd samgönguslysa starfar samkvæmt lögum um rannsókn samgönguslysa. Markmið laganna er að fækka slysum og auka öryggi í samgöngum með því að efla og bæta slysarannsóknir. Rannsókn samkvæmt lögunum skal eingöngu miða að því að leiða í ljós orsakir samgönguslysa og samgönguatvika, en ekki að skipta sök eða ábyrgð, með það að markmiði að draga úr hættu á sams konar slysum og atvikum og afleiðingum sambærilegra slysa.
Samgönguslys Borgarbyggð Lögreglumál Mest lesið Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Innlent Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Innlent Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Innlent Límmiðar lifðu ekki af nóttina Innlent Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Erlent Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Innlent Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Innlent Fleiri fréttir Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Viðtal við stækkunarstjóra, umferðartafir og stafræn hvíld Rekstrarformið byggi á sniðgöngu kjarasamninga Réðst á móður sína og hótaði ítrekað: „Ég sting þig, ég ætla að stinga þig“ Gætum þurft að framvísa smáríkjakortinu Afnema byggingarréttargjöld í Reykjanesbæ Nýi Landspítalinn verði tilbúinn í árslok 2029 Baunað á Jónas Má þvert á flokka Sjá meira