Hættur með Ármann en tekur virkan þátt í leitinni Sindri Sverrisson skrifar 25. mars 2026 12:02 Karl Guðlaugsson kom Ármanni aftur í efstu deild eftir 65 ára bið og stýrði liðinu þar í vetur. vísir/Anton Ármenningar eru nú í leit að nýjum þjálfara fyrir kvennalið sitt í körfubolta sem lék í efstu deild í vetur, í fyrsta sinn í 65 ár. Fráfarandi þjálfari er í nokkuð óvenjulegri stöðu því hann leitar nú að arftaka.
Karl Guðlaugsson hefur nefnilega verið bæði þjálfari meistaraflokks kvenna og formaður körfuknattleiksdeildar Ármanns. „Þannig að það er nú ekki þannig að ég hætti bara og gangi í burtu,“ segir Karl við Vísi en hann er þó sömuleiðis að hætta sem formaður og tekur Soffía Einarsdóttir við af honum. Þetta varð ljóst á aðalfundi í vikunni. Ármann er fallinn úr Bónus-deildinni, þó að lokaumferðin sé í kvöld en þar situr liðið hjá. Tap í þríframlengdum leik gegn Hamri/Þór, næstneðsta liðinu, í Hveragerði í lok febrúar skipti þar sköpum en Ármenningar eru aðeins tveimur stigum á eftir Sunnlendingunum. En hefði Karl haldið áfram ef Ármann hefði haldið sér uppi? „Ég held ekki. Ég held að þetta sé ágætis tímapunktur til að söðla um. Maður er ekkert ungabarn lengur og þetta er búið að vera að gerjast í smátíma. Engin skyndiákvörðun og ég er að sama skapi ekkert að hlaupa í burtu,“ segir Karl. „Rosalega stoltur af þeim“ Hann getur litið stoltur um öxl eftir að hafa stýrt Ármanni upp í efstu deild en þar hafði liðið síðast spilað tímabilið 1959-60, eða fyrir mörgum áratugum síðan. „Algjörlega. Og ég er mjög ánægður með stelpurnar í vetur. Þó að við höfum ekki náð að hanga uppi þá fannst mér liðið alltaf verða betra og betra. Ég hefði viljað byrja mótið á þeim tímapunkti sem við enduðum. Þá fannst mér liðið vera tilbúið. Við þurftum náttúrulega í raun að setja saman nýtt lið og þessir Íslendingar sem að báru þetta uppi stóðu sig gríðarlega vel. Ég er rosalega stoltur af þeim,“ segir Karl. Vonast til að dóttirin haldi áfram Á meðal algjörra lykilmanna í liði Ármanns eru dóttir Karls, Jónína Þórdís, og Sylvía Rún Hálfdanardóttir sem tók fram skóna fyrir tímabilið. Formaðurinn Karl vonast til að halda þeim og öðrum íslenskum leikmönnum liðsins áfram: „Það eru viðræður í gangi og ég vonast til að þær haldi allar áfram með liðinu næsta vetur.“
Bónus-deild kvenna Ármann Mest lesið Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Körfubolti Bikarmeistarar fá bara stutt sumarfrí Sport Sara Björk komin heim Sport Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Enski boltinn Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust Körfubolti Stelpurnar okkar ekki sammála um hverjir vinna HM Fótbolti Slæm úrslit hjá Frökkum og Spánverjum Sport Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Handbolti Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Körfubolti Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Fleiri fréttir Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Sjá meira