Innherji

Al­vot­ech ætlar að færa hluta fram­leiðslunnar til Banda­ríkjanna

Hörður Ægisson skrifar
Öll þróun og framleiðsla Alvotech hefur fram til þess farið fram í Vatnsmýrinni í Reykjavík.
Öll þróun og framleiðsla Alvotech hefur fram til þess farið fram í Vatnsmýrinni í Reykjavík. Vísir/Vilhelm

Alvotech vinnur nú að því að koma á fót annarri framleiðsluaðstöðu sem yrði í Bandaríkjunum fyrir hluta af lyfjaframleiðslu sinni með því að gera samning við stategískan samstarfsaðila þar í landi. Að sögn stjórnenda félagsins, sem hefur hingað til verið með alla framleiðslu sína hér á landi, er markmiðið meðal annars að auka afhendingaröryggi og styðja við markaðssetningu og aukna sölu á alþjóðamörkuðum.


Tengdar fréttir

„Allt í boði“ með ein­földun reglu­verks sem minnkar veru­lega þróunar­kostnað

Áform eftirlitsstofnana beggja vegna Atlantshafsins um að einfalda regluverk og kröfur þegar kemur að klínískum rannsóknum á líftæknilyfjum mun minnka verulega þróunarkostnað og leiða til þess að það verður arðbærara að fara í þróun á mun fleiri hliðstæðum en áður, að sögn forstjóra Alvotech. Hann er afar gagnrýninn á einkaleyfakerfið í Bandaríkjunum, sem búi til hindranir fyrir innkomu líftæknilyfjafélaga, og þá skaði það mjög samkeppnisumhverfið hvernig framleiðendur frumlyfja fái að „læsa markaðinum“ í aðdraganda þess að einkaleyfi þeirra rennur út.

Sam­keppnis­staða Al­vot­ech verði „enn sterk“ þótt verð á frum­lyfjum muni lækki

Ef áform Trump um að knýja í gegn tugprósenta lækkun á verði lyfja vestanhafs mun raungerast ætti það að sama skapi að leiða til verðhækkana á frumlyfjum í Evrópu og öðrum löndum, að sögn forstjóra Alvotech, og styrkja þá samkeppnisstöðu félagsins enn frekar utan Bandaríkjanna. Hann telur að útspil Bandaríkjaforseta muni ekki hafa áhrif á boðaða skráningu Alvotech í Svíþjóð í næstu viku og vegna „mikils áhuga“ séu væntingar um að stórir norrænir fjárfestar muni bætast við hluthafahópinn eftir að félaginu verður fleytt á markað þar í landi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×