„Af og frá“ að bankarnir græði á verðbólgu Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 19. mars 2026 18:07 Heiðar Guðjónsson stjórnarformaður Íslandsbanka ávarpaði aðalfund bankans í dag. Vísir/Vilhelm Heiðar Guðjónsson, stjórnarformaður Íslandsbanka, frábiður sér tal um að bankarnir græði sérstaklega á verðbólgu, enda sé hún eitur í rekstri fjármálafyrirtækja, líkt og hagkerfinu öllu. „
Einn stærsti áhættuþáttur í rekstri banka er verðbólga og einhverjir vilja trúa því að bankar græði sérstaklega á verðbólgu en það er af og frá. Til skamms tíma gæti það svo sem litið þannig út vegna þess að bankarnir fjármagna sig að langstærstu leyti í innlánum,“ sagði Heiðar í ávarpi sínu á aðalfundi Íslandsbanka í dag. Hefur áhyggjur af vogunarhlutfalli bankanna Hann sagði ójafnvægi hafa myndast milli innlána og útlána bankans þar sem þau fyrrnefndu eru alla jafna óverðtryggð og þau síðarnefndu verðtryggð. „En staðreyndin er sú að verðbólga er eitur í rekstri fjármálafyrirtækja, ekki síður en í hagkerfinu. Verðbólga rýrir lífskjör almennings og sverfur mjög að rekstri fyrirtækja og þar með minnka gæði útlána,“ sagði Heiðar. Verðbólgan sé því mun stærri áhættuþáttur í rekstri bankanna vegna þess að lán tapist vegna hennar. „Það er miklu, miklu stærra högg heldur en sá skammtímaávinningur sem getur komið til út af þessum verðtryggingarójöfnuði.“ Þá vék hann sér að þeirri framþróun sem hefur orðið á sviði gervigreindar og sjálfvirknivæðingar og sagði Íslandsbanka í fararbroddi í þeim efnum. „Það sem helst veldur mér áhyggjum er samkeppnisumhverfið, sem er með gríðarlegum eftirlitskostnaði og flækjustigi og gerir framþróun hægari en ella og skekkir þar með stöðu íslensks fjármálakerfis,“ sagði Heiðar og nefndi vogunarhlutfall íslenskra banka sem dæmi, sem er hærra en á Norðurlöndum. „Vogunarhlutfall Íslandsbanka í árslok 2025 var 12,5%. Sama hlutfall er 4,4% hjá Danske Bank, 5,7% hjá SEB-bankanum í Svíþjóð og 5,1% hjá Nordea. Miðað við það mætti með öðrum orðum segja að bankinn sé með um 60% meira eigið fé en nefndir bankar. Lægri kröfur til eiginfjárbindingar hér á landi myndu aftur leiða af sér hagkvæmari rekstur og ódýrari þjónustu. Þetta er samkeppnisumhverfi sem við þurfum að eiga við.“ Samrunaviðræðum slitið að frumkvæði Skaga Þá kom Heiðar að samrunaviðræðum bankans og Skaga en þeim var slitið í síðasta mánuði, rúmum fjórum mánuðum eftir að samkomulag um helstu skilmála hugsanlegs samruna var undirritað. Hann segir að í samkomulaginu hafi komið fram að fyrirkomulag samrunaaðila kynni að taka breytingum með hliðsjón af frekari viðræðum, áreiðanleikakönnunaraðila og hugsanlegum skilyrðum sem eftirlitsyfirvöld kynnu að setja samrunanum. „Þegar Seðlabankinn síðan birti umræðuskjal á vefsíðuna 19. desember, komu fram áform um sérstakan eiginfjárauka sem myndi leggjast á banka sem ættu tryggingafélag. Með þessum hugsanlegu breytingum varð forsendubrestur fyrir því að klára samrunasamning út frá því sem lagt hafði verið til grundvallar við undirritun skilmálaskjals 6. október. Eins þurfti að ræða ólíka gengisþróun félaga út frá uppfærðum arðsemishorfum, líkt og orðalagið „frekari viðræður“, „áreiðanleikakönnun“, eins og ég nefndi hér áðan sem var í skilmálaskjalinu, bar með sér,“ sagði Heiðar. Þann 19. febrúar hafi stjórn Íslandsbanka sent formlegt erindi til stjórnar Skaga og ítrekað áhuga á samruna, sem hún teldi öllum aðilum til hagsbóta og að tekið yrði tillit til þeirra atriða sem hefðu að mati bankans breyst frá upphafi viðræðna. Svar Skaga við erindinu hafi verið á þá leið að félagið vildi senda út tilkynningu um slit viðræðna. „Það var því ekki stjórn Íslandsbanka sem sleit þessum viðræðum. Samstarf Íslandsbanka og VÍS er óbreytt þó að ekkert hafi orðið af undirritun samrunasamnings. Það hefur gengið vel og gagnast báðum aðilum og viðskiptavinum þeirra.“
Íslandsbanki Skagi Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira