Ný sátt gerð og Míla sektuð um 200 milljónir Atli Ísleifsson skrifar 19. mars 2026 11:26 Sátt var gerð milli Míu og Samkeppniseftirlitsins árið 2022. Um endurskoðun á henni er að ræða. Míla Míla og Samkeppniseftirlitið (SKE) hafa gert með sér nýja sátt sem felur í sér endurskoðun á sátt frá árinu 2022, sem gerð var í kjölfar sölu Mílu til innviðasjóðs undir stjórn Ardian France SA.
Frá þessu segir í tilkynningu frá Mílu og Samkeppniseftirlitinu, en við söluna árið 2022 voru eignatengsl milli Mílu og Símans rofin, en á sama tíma var gerður langtíma heildsölusamningur milli Mílu og Símans. Í tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu segir að eftir ítarlega rannsókn hafi nú verið gerðar breytingar á skilyrðum fyrri sáttar, einkum vegna breyttra markaðsaðstæðna á mörkuðum fyrir heimtaugar og gagnaflutning um þær. „Við rannsóknina komu fram vísbendingar um að Míla hefði brotið tiltekin skilyrði. Míla hefur nú viðurkennt brot og greiðir 200 milljónir króna í stjórnvaldssekt vegna þeirra. Míla og Samkeppniseftirlitið hafa undirritað sátt um framangreindar málalyktir,“ segir í tilkynningunni. Um málið segir að kaup Ardian á Mílu af Símanum á árinu 2022 hafi falið í sér samruna sem hafi verið til þess fallinn að raska samkeppni með umtalsverðum hætti. „Var því talið nauðsynlegt að grípa til íhlutunar sem að lögum gat falið í sér ógildingu samrunans eða setningu skilyrða. Samkeppniseftirlitið, Ardian og Míla voru sammála um að unnt væri að vinna gegn skaðlegum áhrifum samrunans með setningu skuldbindandi skilyrða. Gengið var frá sátt um þessi skilyrði haustið 2022, sbr. frétt frá 15. september sama ár. Skilyrðin fólu annars vegar í sér að gerðar voru breytingar á langtíma heildsölusamningi milli Símans og Mílu, sem m.a. lá til grundvallar verðmati á Mílu við kaupin. Þannig var dregið verulega úr skuldbindingum um viðskipti Símans við Mílu sem hefðu að óbreyttu útilokað að nær öllu leyti að keppinautar Mílu gætu boðið Símanum þjónustu, en Síminn er stærsti kaupandi að innviðaþjónustu á landinu. Hins vegar skuldbatt Míla sig til að lúta tilteknum skilyrðum í starfsemi sinni vegna sterkrar stöðu sinnar á markaðnum, en skilyrðin bönnuðu samkeppnishamlandi vöndlun og samtvinnun þjónustuþátta og tryggðu jafnan aðgang að kerfum, þjónustu og upplýsingum frá Mílu. Ósk um endurskoðun – rannsókn á brotum Á árinu 2024 óskaði Míla eftir endurskoðun á skilyrðunum, þ.e. að þau yrðu felld niður eða þrengd verulega vegna breyttra markaðsaðstæðna. Við athugun á þeirri beiðni komu fram vísbendingar um brot á tilteknum skilyrðum og samhliða komu fram kvartanir aðila á markaði í garð Mílu. Í mars 2025 var Mílu kynnt frummat Samkeppniseftirlitsins vegna ætlaðra brota á skilyrðunum. Í framhaldi óskaði Míla eftir sáttaviðræðum við Samkeppniseftirlitið með það að markmiði að ljúka rannsókn eftirlitsins á brotum Mílu og endurskoðun á gildandi skilyrðum. Sáttaviðræður hófust í september 2025. Viðurkenning á brotum og sektir Með nýgerðri sátt við Samkeppniseftirlitið hefur Míla fallist á að tíðni og umfang samskipta milli Mílu og Símans frá október 2023 til desember 2024 hafi verið til þess fallið að takmarka hvata Símans til að kaupa þjónustu frá keppinautum Mílu, umfram það sem kaupskylda Símans samkvæmt samningi fyrirtækjanna kvað á um. Í þessu hafi falist brot á gildandi skilyrðum. Vegna þessa fellst Míla á að greiða 200 milljónir króna í stjórnvaldssekt. Skilyrðum nýrrar sáttar er m.a. ætlað að tryggja enn frekar að samkeppni geti ríkt um þau viðskipti Símans sem falla utan takmarkana heildsölusamningsins við Mílu og að Míla beiti sér ekki fyrir því að viðskiptavinir Símans (heimili og fyrirtæki) séu færð yfir á net Mílu frá netum keppinauta Mílu. Endurskoðun á skilyrðum vegna breyttra markaðsaðstæðna Rannsókn Samkeppniseftirlitsins hefur leitt í ljós breytingar á stöðu Mílu á mörkuðum fyrir heimtaugar, þ.e. aðgangi að kopar- og ljósleiðaratengingum og markaði fyrir gagnaflutning um heimtaugar (bitastraum). Ljóst er að Míla er enn með sterka stöðu á landsvísu á þessum mörkuðum (landsdekkandi) og býr yfir breiðu þjónustuframboði á öðrum sviðum innviða fjarskipta. Á hinn bóginn hafa aðrir keppinautar, einkum Ljósleiðarinn á sínum starfssvæðum (m.a. höfuðborgarsvæðinu), styrkt mjög stöðu sínu á liðnum árum og er nú með talsvert meiri hlutdeild þar í fjölda tenginga en Míla. Af þessum sökum hefur Samkeppniseftirlitið fallist á að skilyrði um aðgang að kerfum, upplýsingagjöf og bann við samtvinnun og vöndlun gildi ekki nema á þeim landssvæðum þar sem Míla hefur umtalsverðan markaðsstyrk. Er þetta í samræmi við mat Fjarskiptastofu á nauðsyn kvaða á grundvelli fjarkskiptalaga. Verði þessi breyting ekki gerð er hætt á að viðkomandi ákvæði sáttarinnar hamli samkeppni í stað þess að verja hana og efla. Jafnframt eru gerðar breytingar á gildandi skilyrðum í því skyni að skýra þau frekar í ljósi reynslu af framkvæmd þeirra,“ segir í tilkynningu Samkeppniseftirlistins.
Samkeppnismál Salan á Mílu Fjarskipti Síminn Mest lesið Svona kemur þú í veg fyrir tvær kröfur vegna kílómetragjalds Neytendur Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Viðskipti innlent Feðgin í Firðinum: „Pabbi er besti vinur minn“ Atvinnulíf Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Viðskipti innlent Staðalímyndir meira vandamál en kynslóðamunur Atvinnulíf Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Viðskipti innlent Sagan full af dæmum þar sem mikilvæg félög hverfa Viðskipti innlent Flugmenn og Icelandair funda á morgun Viðskipti innlent Ölgerðin hækkar verðin Neytendur Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Viðskipti innlent Fleiri fréttir Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Flugmenn og Icelandair funda á morgun Sagan full af dæmum þar sem mikilvæg félög hverfa Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Icelandair tekur litáíska vél á leigu Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Sjá meira