Viðskipti innlent

Vextir hafi sannar­lega lækkað en fram­boðið sé breytt

Árni Sæberg skrifar
Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans, segir mikilvægt að bæta stöðugleika í íslensku efnahagslífi.
Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans, segir mikilvægt að bæta stöðugleika í íslensku efnahagslífi. Vísir/Einar

Bankastjóri Landsbankans segir vexti bankans sannarlega hafa lækkað samhliða stýrvaxtalækkunum undanfarinna mánaða. Framboð bankans sé aftur á móti gjörbreytt eftir Vaxtadómana svokölluðu og því erfitt að bera saman vexti nýrra lána fyrir og eftir dómana. Tölur sem formaður Starfsgreinasambandsins vísaði til í gær séu þannig réttar en vart samanburðarhæfar.

Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, sagði í morgun að þrátt fyrir stýrivaxtalækkanir í fyrra væru vextir viðskiptabankanna þrátt fyrir þær enn hærri en þeir voru við gerð stöðugleikasamninganna svokölluðu.

Ljótt að plata

Þannig rak hann að við gerð stöðugleikasamninganna hefðu óverðtryggðir vextir hjá Landsbankanum verið 10,75 en eftir stýrivaxtahækkun dagsins verði þeir 10 prósent. Þá hefðu verðtryggðir vextir hjá sama banka verið fjögur prósent þegar samið var en eftir hækkun dagsins fari þeir í fimm prósent.

„Þannig að þegar þú tekur bæði óverðtryggðu og verðtryggðu vextina, þá erum við búin að horfa upp á hækkun. Samt eru stjórnvöld að koma fram í fjölmiðlum og minna fólk á að vextir hafi lækkað um tvö prósent og ég verð nú bara að segja, af því að Kristrún sagði þetta síðast í fréttum í gær, Kristrún, það er ljótt að plata. Vextir til almennings hafa verið að hækka og þá er ég fyrst og fremst að tala hér um verðtryggða vexti þar sem fólk hefur verið þvingað yfir í þá aftur og þeir hafa hækkað um eitt prósent frá því að við undirrituðum þessa samninga.“

Tölurnar ekki samanburðarhæfar

Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans, segir í samtali við Vísi að þessar tölur sem Vilhjálmur vísar til séu réttar en ekki alveg samanburðarhæfar.

„Íbúðalánavextir hafa lækkað um tvö prósent á þessum tíma sem hann er að vísa til. En það hefur líka ýmislegt breyst í núverandi íbúðalánaframboði. Við erum ekki að bjóða í dag sömu lán og við vorum að bjóða þá út af vaxtadómnum en þeir sem voru með lán eins og hann vísaði í á þessum tíma, þeir vextir hafa lækkað sannarlega um tvö prósent og eru 8,75 prósent í dag.“ 

Meðalveðsetning undir fimmtíu prósentum

Nú séu lán í boði sem eru með lægri vöxtum en lánin sem Vilhjálmur vísaði til, lán með föstum vöxtum og lægra veðsetningarhlutfalli. Lægstu vextirnir sem bankinn bjóði upp á í dag séu 8,05 prósent, fastir í fimm ár.

„Þetta er sem sagt breytingin sem hefur orðið eftir vaxtadóminn, við getum boðið betri vexti á föstum vöxtum heldur en breytilegum.“

Til þess að njóta lægstra vaxta megi veðsetningarhlutfallið ekki fara yfir 55 prósent en Lilja Björk bendir á að meðalveðsetningarhlutfall í lánasafni bankans sé undir fimmtíu prósentum. „Þannig að þetta á við um fjölda manns.“

„Við erum núna að hringja í og láta fólk vita af því hvaða vextir eru í boði, því þetta er auðvitað eilítill frumskógur. Þannig að við erum að hringja í fólk til þess að það átti sig á því að það er ýmislegt sem hægt er að velja úr.“

Heilmikil áhætta sem þarf að verðleggja

Lánin sem Vilhjálmur vísaði til séu aftur á móti á tiltölulega háum vöxtum vegna þess að þau þurfi að fylgja grunnvöxtum Seðlabankans út allan lánstíman, fjörutíu ár.

„Þannig að það er heilmikil áhætta sem þarf að verðleggja í því og þetta eru vextir sem eru svona með því hæsta sem við bjóðum og við verðum að birta alla slíka vexti í okkar vaxtatöflu. En við myndum alltaf ráðleggja fólki að taka fasta vexti í eitt, þrjú eða fimm ár. Það eru bestu vextirnir sem við bjóðum.“


Tengdar fréttir

Landsbankinn sýknaður af öllum kröfum í Vaxtamálunum

Hæstiréttur hefur sýknað Landsbankann af öllum kröfum í tveimur málum sem neytendur höfðuðu á hendur bankanum vegna tiltekinna skilmála í lánasamningum. Hæstiréttur taldi skilmálana ólögmæta en að neytendur hefðu ekki orðið fyrir tjóni. „Í fljótu bragði er ég ósammála þessu,“ segir formaður Neytendasamtakanna.

„Ég tel að þessi dómur hafi takmarkað fordæmisgildi“

Formaður neytendasamtakanna segir sýknu Arion banka af öllum kröfum neytenda í einu vaxtamálanna svokölluðu vera vonbrigði. Málið hafi þó takmarkað fordæmisgildi þar sem það hafi varðað lánasamning sem gerður var fyrir gildistöku núgildandi laga um neytendalán.

Viðbrögð bankanna eftir vaxta­málið von­brigði

Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, segir það vonbrigði að bankar skáki í skjóli dómsins og hækki vexti sína og þrengi lánaskilmála. Hann segir ekkert í dómi hæstaréttar sem segi til um að bankarnir þurfi þess.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×