BYKO og Tækniskólinn sameina krafta sína á Verk og vit BYKO 18. mars 2026 11:51 BYKO og Tækniskólinn stóðu fyrir hugmyndasamkeppni innan hönnunarbrautar skólans þar sem verkefnið var að hanna saunaklefa sem uppfyllir þarfir og væntingar íslenska markaðarins. Verkefnið sem bar sigur úr býtum verður kynnt á Verk og vit um helgina. Hér sést hluti dómnefndar meta verkefnin fimm sem kepptu til úrslita. Stórsýningin Verk og vit hefst á morgun fimmtudag í Íþrótta- og sýningarhöllinni í Laugardal og stendur yfir fram á sunnudag. Þetta er í sjöunda sinn sem sýningin er haldin en hún er frábær vettvangur til að sjá allt það nýjasta í byggingariðnaði, mannvirkjagerð og skipulagsmálum og kynna sér um leið spennandi vörur og þjónustu.
Eins og fyrri ár tekur BYKO þátt enda hefur fyrirtækið verið einn af bakhjörlum sýningarinnar frá upphafi. „Við erum alltaf með nýjar áherslur á hverri sýningu og í ár er aðaláherslan lögð á tengingu atvinnulífsins við skólakerfið sem við teljum afar mikilvæga og raunar einn af hornsteinum nýsköpunar og framþróunar,“ segir Sigurður Brynjar Pálsson, forstjóri BYKO. Sigurður Brynjar Pálsson er forstjóri BYKO. „Tækniskólinn verður með okkur á básnum í ár en við höfum unnið saman að mjög skemmtilegu samstarfsverkefni í vetur. Við settum í sameiningu litla hugmyndasamkeppni í hóp sem lýkur stúdentsprófi af hönnunar- og nýsköpunarbraut skólans í vor. Verkefnið var að hanna saunaklefa sem uppfyllir þarfir og væntingar íslenska markaðarins. Þátttakan var góð og fengu nemendur frjálsar hendur við hönnun og sköpun saunaklefans. Sigurvegarar samkeppninnar voru þær Harpa Hua Zi Tómasdóttir, Matthildur Ingadóttir og Svandís Halldórsdóttir og þær verða með okkur um helgina.“ Harpa Hua Zi Tómasdóttir, Svandís Halldórsdóttir og Matthildur Ingadóttir eru höfundar vinningstillögunnar. Mynd/Haraldur Guðjónsson Thors. Nánari upplýsingar um Verk og vit má finna hér. Verðlaun afhent á sýningardegi Hugmyndasamkeppnin tókst afar vel að mati Sigurðar sem segist fullviss um að nemendurnir sem tóku þátt hafi bæði haft gagn og gaman af. „Þú getur rétt ímyndað þér viðbrigðin fyrir nemendur að vinna með stórfyrirtæki eins og okkur og tengjast atvinnulífinu með þessum hætti. Fimm hópar fóru af stað í þetta verkefni sem skiluðu fimm hugmyndum sem allar voru góðar en um leið mjög ólíkar. Tvær hugmyndir stóðu upp úr og fengu þrjú atkvæði hvor. Því klofnaði dómnefndin og þurfti að taka einn aukafund áður en hún komst að endanlegri niðurstöðu.“ Á myndinni er dómnefndin. Til vinstri er Kjartan Long, verkefnastjóri nýsköpunar hjá BYKO, Gunnar Kjartansson skólastjóri Byggingatækniskólans, Sigurður Brynjar Pálsson forstjóri BYKO, Sandra Borg Gunnarsdóttir skólastjóri Hönnunar- og handverksskólans, Fjölnir Þrastarsson kennari í húsasmíði, Renzo Passaro rekstrarstjóri Timburverslunar BYKO og Ari Jónsson kennari á hönnunar- og nýsköpunarbraut. BYKO og sigurvegarar samkeppninnar, þær Harpa, Matthildur og Svandís, munu undirrita samning um helgina og mun BYKO á næstunni hefja sölu á sánahúsunum eða nánar tiltekið á sánagrindinni. „Grindin kemur með gluggum og hurð og viðskiptavinur velur sjálfur klæðningu og lit eftir smekk.“ Verkefnið hefur teygt anga sína inn í nokkrar deildir Tækniskólans. „Kennari í tækniteiknun sá um teiknivinnuna og nemendur í húsasmíði ætlar að reisa sánahúsið jafnt og þétt á meðan sýningin stendur yfir um helgina þannig að það verður mjög skemmtilegt að fylgjast með þessari fæðingu.“ BYKO kynnir áhugaverða nýjung Á sýningunni mun BYKO einnig kynna áhugaverða nýjung á sviði utanhússklæðningar en um er að ræða brunavarða timburklæðningu frá danska framleiðandanum Nordisk Profil. „Þessar klæðningar hafa notið sívaxandi vinsælda síðustu misserin í Evrópu og vakið athygli fyrir að sameina náttúrulegt timburútlit, sem margir kjósa, og strangari brunakröfur sem gerðar eru til byggingarefna í dag.“ Uppsetningin er jafnframt einföld og skilvirk og því er varan áhugaverður nýr valkostur í flokki utanhúsklæðningar hér á landi að sögn Sigurðar. „Gestum sýningarinnar gefst kostur á að kynna sér vöruna nánar og þreifa á henni auk þess sem framleiðandinn verður á staðnum. Um leið munum við líka sýna timburklæðningar sem eru valkostir á saunaklefann. Þannig mætast hönnun, efnisval og framkvæmd í einni heild og gefa gestum skýra mynd af því hvernig vörurnar nýtast í raunverulegum verkefnum. Ég hvet því sem flesta til að líta í heimsókn til okkar um helgina.“
Byggingariðnaður Skóla- og menntamál Mest lesið Hækka stýrivexti Viðskipti innlent Telja útboð á heilsurækt í Eyjum sniðið að World Class Viðskipti innlent „Kristrún, það er ljótt að plata“ Viðskipti innlent Tekur ekki undir fullyrðingar um plat Viðskipti innlent Genis á Siglufirði í söluferli: Ekki forsendur fyrir vexti á Íslandi Viðskipti innlent Klofningur nefndarinnar helstu tíðindin og verkalýðnum hótað Viðskipti innlent Hætta að taka við rúmfreku rusli á tveimur stöðvum Neytendur Launahækkanir muni valda meiri stýrivaxtahækkunum Viðskipti innlent Vextir hafi sannarlega lækkað en framboðið sé breytt Viðskipti innlent Matvöruverð hækkar þvert á vöruflokka Neytendur Fleiri fréttir BYKO og Tækniskólinn sameina krafta sína á Verk og vit Auðvelda Íslendingum að skilja ekkert eftir Greiðsluáskorun Ein heild – sveigjanlegar lausnir í byggingariðnaði Leitin að iðnaðarmanni ársins er hafin Verða af hundruðum þúsunda á ári þegar akstursdagbókin gleymist Orkuveitan jafnar stöðu foreldra á vinnumarkaði Orion Tannlæknastofa kynnir starfsemi sína í Budapest og Reykjavík - Hringferð í kringum landið í Apríl Kulnun, kostnaður og gervigreind: Hvað gera stjórnendur nú? Umferðaröryggi í brennidepli á Forvarnaráðstefnu VÍS Í hvað eru peningarnir þínir að fara? Icewear Garn opnar í Kringlunni Bíllinn sem rúllaði upp vetrardrægniprófi NAF Íþróttaálfurinn reynir við Íslandsmet á fjölskylduhátíð BL Sætur borgarbíll þar til kíkt er í skottið Bílanaust flytur í sérhannaðar höfuðstöðvar að Álfabakka 4 G-vítamín eru litlu skrefin sem breyta miklu Nýjar áskriftarleiðir að Heimavörn bylting á öryggismarkaði Hreingerningafyrirtæki brýtur blað í fræðslumálum Hjálpar skiptastjórum að greina eignaundanskot Bestu íslensku vörumerkin 2025: viðurkenningarhátíð í Hörpu Margborgar sig að gera við stjörnu í rúðu: Carglass hefur opnað á Íslandi Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Sjá meira
Orion Tannlæknastofa kynnir starfsemi sína í Budapest og Reykjavík - Hringferð í kringum landið í Apríl