Ómetanlegt fyrir nýliða að hafa þessa bræður Sindri Sverrisson skrifar 16. mars 2026 10:00 Bræðurnir voru duglegir að kynda í Þórsurum í leiknum mikilvæga síðasta fimmtudagskvöld. Sýn Sport „Bræðurnir og Zarko, þetta er lykillinn að þessari velgengni hjá þeim,“ sagði Hermann Hauksson um lið Ármanns. Nánast öllum að óvörum eru Ármenningar nú fyrir ofan fallsætin í Bónus-deildinni í körfubolta, þegar aðeins tvær umferðir eru eftir.
Ármenningar unnu „rosalega stóran“ sigur gegn Þór í Þorlákshöfn síðasta fimmtudag, 79-74, og sendu þar með Þórsara í fallsæti. Bræðurnir Bragi og Ingvi Þór Guðmundssynir, ásamt Zarko Jukic sem kom frá ÍR í desember fengu mesta hrósið í Körfuboltakvöldi á Sýn Sport Ísland. Brot úr þættinum má sjá hér að neðan. Klippa: Bræðurnir og Zarko að bjarga Ármanni? „Það sem ég er ánægðastur með er að þegar þeir lenda átta stigum undir í seinni hálfleik, þá gefast þeir ekki upp. Þeir gefa bara í, með bræðurna í fararbroddi. Og það sem ég held að hafi breytt mestu fyrir Ármann er Zarko Jukic. Hann er búinn að vera frábær fyrir þá, bæði varnarlega og sóknarlega,“ sagði Magnús Þór Gunnarsson í þættinum. Bragi var stigahæstur í leiknum með 31 stig og Ingvi skoraði 16. „Mikið af þessum körfum eru frá þeim tveim. Svo láta þeir Þórsarana heyra það, bæði uppi í stúku og á bekknum og þá sem eru inni á vellinum. Það er ómetanlegt fyrir nýliða að hafa svona gæja til að draga vagninn,“ sagði Hörður Unnsteinsson sem stýrði þættinum. „Algjörlega. Það hentar þeim svo vel að spila fyrir svona lið. Þeim er svolítið sama um aðstæður. Þeir geta verið rosalega kærulausir sem er svo gott því þá ertu aldrei smeykur. Þeir hræðast náttúrulega ekki að skjóta, geta skotið úr öllum færum,“ sagði Hermann en umræðuna má sjá hér að ofan. Þáttinn í heild má finna í vefsjónvarpi Sýnar.
Bónus-deild karla Ármann Körfuboltakvöld Mest lesið Uppskrift að algjöru hneyksli á HM Fótbolti BBC bað FIFA um svör vegna meints níðs Sigurðar Fótbolti Sakar þekktan Íslending um kynþáttahatur á HM Fótbolti Hættir aðeins þrítugur og sendir sambandinu tóninn Fótbolti Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Körfubolti Veit ekki hvort Haaland var að grínast Fótbolti Stálu Norðmenn víkingaklappinu af Tólfunni? Fótbolti Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Enski boltinn Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Körfubolti Sakar Schweinsteiger um rasísk ummæli Fótbolti Fleiri fréttir Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Kristinn fer til Spánar Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Samherji Martins til Knicks LaMelo Ball til Úlfanna Halldór Garðar í Þór og Emil tekur slaginn Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Sendir eftirmanni sínum skilaboð eftir leiki Íslands Martin fékk stóra rós í hnappagatið Okeke farinn frá Álftanesi Abdi á eftir óklárað verk í Grindavík Stólarnir styrkja sig: „Spilað í stórum leikjum á háu stigi“ Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Sjöfaldur NBA-meistari mætir til landsins í ágúst Dabbi kóngur tekur við kvennaliði Þórs Argentínskar landsliðskonur á Krókinn og önnur var valin í WNBA Birta hjartnæma mynd af Martin eftir afrekið mikla Martin þýskur meistari eftir lygilega endurkomu Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Kristófer og Guðrún eignuðust son Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Viktor tekur við Haukum Ásta Júlía kveður Val Hilmar Smári áfram í Stjörnunni Hermaðurinn Haukur í Stólana Sjá meira