Stórstjarnan flytur til Dúbaí í miðju stríði Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. mars 2026 06:32 Anthony Joshua var mikið í fréttum síðustu mánuði, fyrst fyrir að slá niður YouTube-boxarann Jake Paul og svo þegar hann lenti í bílslysi í Afríku. Getty/Megan Briggs Þúsundir flýja frá Dúbaí í Sameinuðu arabísku furstadæmunum en hnefaleikakappinn Anthony Joshua kaus það að flytja þangað þrátt fyrir að stríð geisi í Mið-Austurlöndum.
Nokkrir alþjóðlegir miðlar greina frá flutningsáformum Joshua frá Bretlandi. Í skjölum sem lögð voru fram á föstudag kemur fram að Dúbaí verði nýr heimilisstaður atvinnuhnefaleikakappans. Þetta eru ekki áform sem hafa breyst þrátt fyrir stríðið í Mið-Austurlöndum. Anthony Joshua quits the UK to move to Dubai - even as thousands try to flee amid rising panic in Middle East warzone https://t.co/MkJ3Za3uqw— Daily Mail Sport (@MailSport) March 10, 2026 Sameinuðu arabísku furstadæmin eru eitt þeirra landa sem hafa orðið fyrir árásum síðan Bandaríkin og Ísrael réðust sameiginlega á Íran. Einn sem flutti löngu fyrir stríðið, eins og Joshua ætlar nú að gera, er Rio Ferdinand, fyrrverandi varnarmaður Manchester United. Nú er lífið ekki eins og venjulega hjá fótboltahetjunni. „Það er ógnvekjandi þegar maður heyrir flugskeyti, flugvélar og orrustuþotur. Ég veit ekki hvað það er sem flýgur yfir okkur og maður heyrir stórar sprengjur,“ sagði Ferdinand, samkvæmt Manchester Evening News. Það er ekki bara vegna hlýja loftslagsins sem margt ríkt fólk kýs að flytja til Dúbaí. Það gerir það líka til að hámarka eignir sínar þökk sé hagstæðu skattkerfi. En einnig vegna persónulegs öryggis og lúxuslífsstíls. Samkvæmt Daily Mail greiddi fyrirtæki Joshua meira en milljarð í íslenskum krónum í skatt í Bretlandi árið 2024. Í Dúbaí er enginn tekjuskattur og skattur á fyrirtæki er mun lægri. Í vetur lenti Joshua í bílslysi þar sem tveir vinir hans létust. Atvinnuhnefaleikakappinn var í bílnum en slapp með minni háttar meiðsl. Það er enn óljóst hvort hann muni halda ferlinum áfram.
Box Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Sameinuðu arabísku furstadæmin Mest lesið Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Íslenski boltinn Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Íslenski boltinn „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Enski boltinn Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Fótbolti Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Íslenski boltinn Ensku félögin með bókhaldsbrellur Enski boltinn Sveindís skoraði í langþráðum sigri Fótbolti McTominay í hjartaaðgerð Fótbolti Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Íslenski boltinn Albert lánaður til Lazio Fótbolti Fleiri fréttir Slær Aron markametið í kvöld? „Þetta er svo lúðalegt“ McTominay í hjartaaðgerð „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Mbaye til Aston Villa Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Albert lánaður til Lazio Ensku félögin með bókhaldsbrellur Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Arteta vill bæta við hópinn í dag Gata nefnd í höfuð Salah í Tyrklandi „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sjáðu Stjörnuna klára Blika Sveindís skoraði í langþráðum sigri Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Dagskráin í dag: Toppslagur í Bestu deildinni Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez „Stemning í hópnum og við reynum að láta verkin tala“ „Óöruggir og við þurfum að laga það“ Kushner tjáir sig formlega um söluna á heimsmeistaramótinu Barcelona með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Vandræði Sønderjyske halda áfram þegar liðið tapaði manni færri Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Sjá meira