Skólastjórinn umdeildi snýr ekki aftur Árni Sæberg skrifar 10. mars 2026 11:10 Víðistaðaskóli er í Hafnarfirði. Vísir/Vilhelm Dagný Kristinsdóttir, skólastjóri Víðistaðaskóla í Hafnarfirði, snýr ekki aftur til starfa í skólanum. Hún var send í leyfi í nóvember á meðan ráðist var í úttekt á stjórnunarháttum í skólanum. Úttekt sem kostaði 3,9 milljónir króna.
Frá þessi greinir Ríkisútvarpið og hefur eftir skriflegu svari samskiptastjóra Hafnarfjarðar. Starfið verður auglýst Vísir greindi frá því þann 13. nóvember síðastliðinn að Dagný hefði verið send í leyfi og að Guðbjörg Norðfjörð Elíasdóttir hefði tekið tímabundið við starfinu. „Við viljum upplýsa ykkur um að Guðbjörg Norðfjörð Elí[a]sdóttir gegnir starfi skólastjóra fram yfir jól á meðan að Dagný Kristinsdóttir skólastjóri verður í tímabundnu leyfi. Guðbjörg þekkir vel til skólastarfs úr Hraunvallaskóla og mun tryggja að öll mál gangi hnökralaust fyrir sig á meðan á afleysingu stendur. Við bjóðum hana velkomna til starfa,“ sagði í tölvubréfi sem aðstoðarskólastjóri Víðistaðaskóla sendi foreldrum barna við skólann á sínum tíma. Í frétt Ríkisútvarpsins segir að Dagný muni hverfa til annarra starfa fyrir Hafnarfjarðarbæ en samkvæmt samskiptastjóra bæjarins sé ekki tímabært að greina frá því hver þau störf verða. Þá verði starf skólastjóra Víðistaðaskóla auglýst en áðurnefnd Guðbjörg er skólastjóri annars skóla í bænum, sem hefur þó ekki enn verið reistur. Ekki í fyrsta skipti Í skriflegu svari við fyrirspurn Vísis í nóvember sagði samskiptastjórinn að ólík sýn væri á milli starfsfólks skólans og stjórnanda á stjórnunarhætti. „Unnið er af yfirvegun í málinu til að tryggja að skólastarfið sé eins og best verður á kosið.“ Segja má að ólík sýn hafi einnig verið á milli starfsfólks Hvassaleitisskóla og Dagnýjar varðandi stjórnunarhætti hennar árið 2022. Vísir greindi frá því í nóvember það ár að af 47 starfsmönnum skólans hefðu 22 ritað undir vantraustsyfirlýsingu á hendur skólastjóranum. Þá hefðu þrír fyrrverandi starfsmenn einnig ritað undir. „Afstaða starfsfólks er skýr: Við viljum að skólastjórinn stígi til hliðar,“ sagði í yfirlýsingunni sem hópurinn sendi á skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar. Hópnum varð að ósk sinni um mánuði síðar þegar Reykjavíkurborg félst á ósk Dagnýjar um að hún léti af störfum.
Skóla- og menntamál Grunnskólar Hafnarfjörður Mannauðsmál Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Fleiri fréttir Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Sjá meira