Skutu niður eldflaugar í landhelgi Tyrklands Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 9. mars 2026 18:55 Íranir sönuðust saman í Teheran og fögnuðu nýjum leiðtoga í dag. AP Stjórnvöld í Tyrklandi, Katar, Barein, Sádi Arabíu og Sameinuðu arabísku furstadæmunum segjast hafa skotið niður íranskar eldflaugar í landhelgi þeirra í dag. Á sama tíma hafa Ísraelar og Bandaríkjamenn haldið linnulausum árásum á Íran áfram.
Fréttavakt Guardian hefur eftir varnarmálaráðuneyti Tyrklands að varnarkerfi á vegum Nató hafi skotið niður íranska eldflaug í dag, í annað skiptið í landhelginni á fimm dögum. Samkvæmt upplýsingum frá varnarmálaráðuneyti Sameinuðu arabísku furstadæmanna var fjöldi íranskra eldflauga og dróna skotinn niður í dag. Af átján drónum lenti einn þeirra á landsvæði ríkisins. Tveir eru sagðir hafa særst í aðgerðunum. Á sama tíma hafa herflugvélar Ísraela og Bandaríkjamanna gert árásir á fjölda skotmarka í Íran. Þá hefur Ísraelsher gert árásir á skotmörk tengd Hezbollah-samtökunum í Líbanon í dag. Samkvæmt upplýsingum frá Unicef hafa 486 látist í Líbanon frá upphafi átakanna fyrir tíu dögum. Ekki liggur ljóst fyrir hve margir Íranir eru fallnir í árásunum en tala látinna er talin hærri en þúsund. Mojtaba Khamenei, sonur Ali Khamenei, var útnefndur æðstiklerkur Írans í gærkvöldi. Íranir söfnuðust saman víða um landið í dag til stuðnings nýja æðstaklerknum. Á samkomunni mátti heyra slagorð um dauða Ameríku og Ísraels í takt við lofsöngva á guði. Tíu dagar eru síðan Bandaríkjamenn og Ísraelar hófu að gera árásir á Íran en samdægurs bárust fréttir af því að Ayatollah Ali Khamenei hefði fallið í árásunum. Fjallað var um það í morgun að verð á hráolíu hefði snarhækkað og hefur ekki verið hærra í tíu ár. Times of Israel hafði eftir Donald Trump Bandaríkjaforseta í morgun að stríðið við Íran aðeins muni enda með sameiginlegri ákvörðun hans og Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, um að láta af árásum á landið. Hann gaf miðlinum engar vísbendingar um framtíðaráform ríkjanna vegna Írans.
Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Íran Bandaríkin Ísrael Tyrkland Mest lesið Hellisheiði lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Innlent Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Innlent Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Ítalski baróninn á ekki vatnið Innlent Fleiri fréttir Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Sjá meira