Treystu þjóðinni. Þú ert með tromp á hendi — Opið bréf til forsætisráðherra Íslands Stjórn Stjórnarskrárfélagsins skrifar 9. mars 2026 17:32 Kæra Kristrún Frostadóttir. Við vonum að þú hugleiðir vandlega efni þessa bréfs og svarir því. Ríkisstjórn þín hefur upplýst að Alþingi muni boða til þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við ESB þann 29. ágúst næstkomandi. Flestir virðast því hlyntir og það er almennt til fyrirmyndar að kalla fram vilja kjósenda í mikilvægustu málefnum samfélagsins. Ef heiðarlega er að verki staðið styrkir það lýðræði og traust, ekki síst milli stjórnvalda og borgara landsins. Við þessi tímamót hlýtur að koma upp í huga þeirra sem vilja treysta þjóðinni, síðasta þjóðaratkvæðagreiðsla sem Alþingi boðaði til. Hún snerist um nýja stjórnarskrá. Þar var mjög vandað til verka og niðurstaðan afgerandi. Í stuttu máli voru lagðar fyrir kjósendur tillögur að nýrri stjórnarskrá sem urðu til í því sem Vigdís Finnbogadóttir, forseti Íslands 1980-1996, kallaði réttilega „lýðræðislegasta stjórnarskrárferli sem vitað er um.“ Yfir 2/3 hlutar kjósenda (67%) samþykktu að þessar tillögur skyldu verða grundvöllur nýrrar stjórnarskrár Íslands. Tillögurnar eru í daglegu tali kallaðar nýja stjórnarskráin. Í henni eru fólgin mikil verðmæti fyrir land og þjóð. Alþingi hefur ekki enn virt úrslit þessarar þjóðaratkvæðagreiðslu. Það er áfellisdómur yfir stjórnmálamenningu landsins, svartur blettur á Alþingi og dýrkeypt vanræksla í stjórnskipunarmálum. Traust til Alþingis mælist raunalega lítið. Til að efla traust almennings á fyrirætlunum ríkisstjórnar þinnar þyrfti strax að hefja ferli sem felur í sér að Alþingi muni virða úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar sem það boðaði til um nýja stjórnarskrá. Ekki ætti að hefja aðildarviðræður við ESB án þess að koma því ótvírætt til skila að réttur þjóðarinnar yfir sameiginlegum auðlindum lands og sjávar verði tryggður í stjórnarskrá, líkt og samþykkt var í þjóðaratkvæðagreiðslu. Þjóðaratkvæðagreiðslan um nýja stjórnarskrá er þannig tromp á hendi ríkisstjórnar þinnar komi til aðildarviðræðna við Evrópusambandið — og ef rétt er haldið á spilunum. Í nýju stjórnarskránni eru ekki aðeins tryggð yfirráð þjóðarinnar yfir sameiginlegum auðlindum. Þar eru fleiri óskamál landsmanna sem kröfur hafa verið uppi um í áratugi án þess að þau næðu fram að ganga, svo sem um aukið persónukjör í kosningum og jafnt vægi atkvæða. Þar er líka þessi þýðingarmikla grein, ef til þess kemur að Ísland gangi í Evrópusambandið og stofnaður yrði evrópskur her: „Herskyldu má aldrei í lög leiða.“ Það er ekki gott að ganga til samninga við stórveldi með brogaða stjórnskipun. Til að glöggva þig á stjórnarskrármálinu hvetjum við þig eindregið til að lesa nýlega grein sem skrifuð var í tilefni þess að fyrrum forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, gerði að umtalsefni hve úrelt og gölluð hún er sú stjórnarskrá sem við búum við. Sjá hér >> Fyrirætlanir ríkisstjórnar þinnar munu mæta óvæginni andstöðu. Ráð okkar til þín og meiri hluta Alþingis er: Sýnið í verki að þið treystið þjóðinni, og þjóðin mun treysta ykkur. Höfundar skipa stjórn Stjórnarskrárfélagsins og eru eftirfarandi: Jóna Benediktsdóttir, formaður, Hjörtur Hjartarson, Katrín Oddsdóttir, Kjartan Jónsson, Kristín Erna Arnardóttir, Sigríður Ólafsdóttir, Þórir Baldursson, Bergljót Gunnlaugsdóttir, Geir Guðmundsson, Ingólfur Hermannsson, Sigurður Hr. Sigurðsson. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Evrópusambandið Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Skoðun Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Er kostnaðurinn einskis virði? Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi þess að lifa æskuna af Einar Torfi Einarsson Reynis skrifar Skoðun Hvað ef svarið hefði verið já? Eva Magnúsdóttir skrifar Skoðun Húsnæðisstefnan sem gerði ungt fólk að leiguliðum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Veist þú í raun hvernig gervigreind virkar? Bjarki Sigurjónsson Thorarensen skrifar Sjá meira
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar