Skemmdir í Marteinstungukirkju vegna heits vatns Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 8. mars 2026 13:06 Nú er verið að þurrka bleytuna í kirkjunni. Aðsend Töluverðar skemmdir urðu á Marteinstungukirkju í Holta- og Landsveit í Rangárþingi ytra eftir að heitavatnslögn inni í kirkjunni sprakk og vatn flæddi út um allt. Kirkjan er friðlýst timburkirkja, byggð árið 1896.
Heitavatnslekinn átti sér stað fyrir nokkrum dögum síðan en nú er verið að meta skemmdirnar og sjá til hvað verður gert. Það er þó alveg ljóst að ekki verða guðþjónustur í kirkjunni fyrr en í fyrsta lagi í sumar. Marteinstungukirkja er friðlýst timburkirkja, byggð árið 1896. Hönnuður var Sigurður Guðbrandsson frá Hjálmholti. Altaristaflan þykir mjög merkileg en hún er olíumálverk eftir Anker Lund. Lovísa drottning Friðriks áttunda Danakonungs gaf kirkjunni töfluna árið 1909. Altaristaflan er töluvert skemmd en hún er olíumálverk eftir Anker Lund og sýnir Krist í Getsemane. Lovísa drottning Friðriks VIII Danakonungs gaf kirkjunni töfluna árið 1909. Kirkjan á kaleik og patínu úr silfri, líklega íslensk smíð frá 19. öld.Aðsend Hjalti Sigurðsson er formaður sóknarnefndar Marteinstungukirkju og veit allt um skemmdirnar vegna vatnslekans. „Það sem sagt gáfu sig allar hitaveitulagnir og það hefur stoppað rennsli og það náttúrulega endar með því að það frís eða eykur þrýstinginn. Þannig að það urðu töluverðar skemmdir, mikið vatnstjón og rakaskemmdir”, segir Hjalti. Marteinstungukirkja er friðlýst timburkirkja, byggð árið 1896.Aðsend En hvað var það, sem skemmdist aðallega? „Það var allt blautt inni í kirkjunni en hún er bara að þorna og við erum að meta tjónið núna þegar hún er orðin þurr en tilfinnilegast er örugglega altaristaflan og munir kirkjunnar,” segir Hjalti. En er vitað hvað heita vatnið var lengi út um allt í kirkjunni eða hvað? „Við vitum það ekki nákvæmlega en það þarf ekki langan tíma til þess að valda tjóni þegar það er heitt vatn, þetta er sem sagt hitaveituvatn. Það hefur sennilega ekki verið mjög heitt því það var svo lítið rennsli,” segir Hjalti að lokum. Ekki er vitað hvenær næst verður messað í kirkjunni.Aðsend Hjalti Sigurðsson, sem er formaður sóknarnefndar Marteinstungukirkju í Holta og Landsveit.Aðsend
Rangárþing ytra Þjóðkirkjan Mest lesið Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Wolt kærir hótanir til lögreglu Innlent „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Fleiri fréttir Liðið eins og glæpamanni á þriðjudag Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Sjá meira