Handtekin fyrir að slá mann á kvöldi þegar hún fagnaði titlinum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. mars 2026 18:18 Arike Ogunbowale fagnar hér sigri í Unrivaled-deildinni en kvöldið endaði ekki vel. Getty/Leonardo Fernandez Körfuboltakonan Arike Ogunbowale, sem spilar með Dallas Wings í WNBA-deildinni, var handtekin í Miami snemma á fimmtudagsmorgun eftir úrslitaleik Unrivaled-deildarinnar.
Unrivaled-deildin er körfuboltadeild kvenna þar sem spilað er í þriggja manna liðum. Deildin var stofnuð árið 2023 til að gera WNBA-leikmönnum kleift að spila innanlands í stað þess að spila erlendis utan WNBA-tímabilsins. WNBA star Arike Ogunbowale was arrested in Miami early Thursday morning on misdemeanor battery charges just hours after she won Unrivaled’s second championship with the Mist.The police report states that Ogunbowale, who was being escorted out of E11even due to an unrelated… pic.twitter.com/CQVaxbdVzb— The Athletic (@TheAthletic) March 6, 2026 Ogunbowale er sökuð um að hafa slegið mann hnefahögg í andlitið á næturklúbbi en hún var ákærð fyrir minni háttar líkamsárás. Maðurinn féll í gólfið eftir höggið frá körfuboltakonunni. „Deildin hefur vitneskju um atvik sem Arike Ogunbowale átti aðild að og við erum að afla frekari upplýsinga,“ sagði talsmaður Unrivaled-deildarinnar í yfirlýsingu til ESPN. „Við erum í sambandi við Arike og fulltrúa hennar.“ Handtakan átti sér stað klukkan 4:20 að morgni fyrir utan næturklúbbinn E11EVEN í Miami. Samkvæmt lögregluskýrslu sló Ogunbowale mann með krepptum hnefa svo hann féll í jörðina. Upptökur frá næturklúbbnum náðu myndum af atvikinu, að því er segir í skýrslunni, og staðfestu frásögn mannsins. Ogunbowale var úti á lífinu að fagna sigri í Unrivaled-deildinni með liðinu Mist. Ogunbowale skoraði nítján stig í úrslitaleiknum. Hún hefur fjórum sinnum verið valin í stjörnulið WNBA og tvisvar verið valin verðmætasti leikmaður stjörnuleiks WNBA. „Dallas Wings hefur vitneskju um atvik sem Arike Ogunbowale átti aðild að og er að afla frekari upplýsinga,“ sagði liðið í yfirlýsingu til ESPN. „Frekari athugasemdir verða gefnar þegar við höfum frekari upplýsingar.“ WNBA All-Star Arike Ogunbowale was arrested Thursday at Club E11EVEN in Miami while celebrating her team’s Unrivaled championship, per @AndySlater Police say she punched a man in the face, and the incident was caught on camera. pic.twitter.com/nKhNrWnTW3— NBACentral (@TheDunkCentral) March 6, 2026
WNBA Mest lesið Uppskrift að algjöru hneyksli á HM Fótbolti BBC bað FIFA um svör vegna meints níðs Sigurðar Fótbolti Sakar þekktan Íslending um kynþáttahatur á HM Fótbolti Hættir aðeins þrítugur og sendir sambandinu tóninn Fótbolti Veit ekki hvort Haaland var að grínast Fótbolti Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Körfubolti Stálu Norðmenn víkingaklappinu af Tólfunni? Fótbolti Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Enski boltinn Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Körfubolti Sakar Schweinsteiger um rasísk ummæli Fótbolti Fleiri fréttir Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Kristinn fer til Spánar Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Samherji Martins til Knicks LaMelo Ball til Úlfanna Halldór Garðar í Þór og Emil tekur slaginn Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Sendir eftirmanni sínum skilaboð eftir leiki Íslands Martin fékk stóra rós í hnappagatið Okeke farinn frá Álftanesi Abdi á eftir óklárað verk í Grindavík Stólarnir styrkja sig: „Spilað í stórum leikjum á háu stigi“ Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Sjöfaldur NBA-meistari mætir til landsins í ágúst Dabbi kóngur tekur við kvennaliði Þórs Argentínskar landsliðskonur á Krókinn og önnur var valin í WNBA Birta hjartnæma mynd af Martin eftir afrekið mikla Martin þýskur meistari eftir lygilega endurkomu Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Kristófer og Guðrún eignuðust son Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Viktor tekur við Haukum Ásta Júlía kveður Val Hilmar Smári áfram í Stjörnunni Hermaðurinn Haukur í Stólana Sjá meira