Þónokkuð margir búnir að stytta leikskólavist á föstudögum Lovísa Arnardóttir skrifar 7. mars 2026 16:58 Hluti foreldra leikskólabarna hafa brugðist við og breytt dvalartíma í samræmi við Reykjavíkurleiðina. Vísir/Vilhelm Fimmtán prósent foreldra eða forráðafólks leikskólabarna í Reykjavík hafa breytt dvalartíma barna sinna vegna innleiðingar Reykjavíkurleiðarinnar. Skrifstofustjóri á leikskólasviði Reykjavíkurborgar segir marga stytta dvalartíma á föstudögum. Það sé ánægjulegt hversu margir hafa þegar brugðist við.
Í tilkynningu til foreldra og forráðafólks í dag segir að búið sé að breyta reglum tímabundið þannig hægt sé að breyta dvalartíma með styttri fyrirvara en áður. Gefinn er tveggja vikna frestur til 1. maí en eftir það gildir aftur mánaðarfyrirvari á breytingar á dvalartíma. Reykjavíkurleiðin tekur formlega gildi þann 1. apríl. Samkvæmt breytingum þurfa foreldrar að breyta dvalartíma fyrir 15. mars eigi greiðsluseðill fyrir aprílmánuð að taka mið af nýrri gjaldskrá. Umsóknir sem berast 1. til 15. mars 2026 taka gildi frá 1. apríl 2026. Umsóknir sem berast 16. til 31. mars 2026 taka gildi frá 15. apríl 2026. Umsóknir sem berast 1. til 15. apríl 2026 taka gildi frá 1. maí 2026. Ólafur Brynjar Bjarkason, skrifstofustjóri á leikskólasviði Reykjavíkurborgar, segir verulega ánægjulegt hversu margir foreldrar hafi þegar brugðist við. „Við höfum ekki enn greint nákvæmlega hvaða áhrif þetta hefur á meðaldvalartíma en við sjáum að þónokkuð margir foreldrar, sem hafa breytt dvalartíma, eru að stytta dvalartíma á föstudögum eins og fólk var hvatt til að gera,“ segir Ólafur í samtali við fréttastofu og að það sé ánægjulegt. Alls eru 5.280 börn skráð í leikskóla í Reykjavík samkvæmt skráningu í haust. Miðað við það hafa foreldrar 792 barna breytt skráningu barna sinna. Þegar Reykjavíkurborg tók saman meðaldvalartíma í október á síðasta ári voru 80 prósent barna skráð í átta tíma vistun eða lengur, eða 4.266. Borgin skráir hversu mörg börn eru skráð í 36 til 42,5 tíma en alls eru 402 börn skráð í minna en 36 klukkustundir á viku, eða sex tíma á dag. Til samanburðar voru í Kópavogi um 85 prósent barna í átta tíma dvöl eða lengur áður en Kópavogsmódelið var innleitt. Í frétt á Vísi í fyrrasumar kom fram að hlutfallið væri þá 41,5 prósent sem væru í átta tíma eða lengur. Yfir 50 prósent barna væru þannig með styttri dvalartíma en áður. Ný gjaldskrá Reykjavíkurleiðarinnar miðar við gjaldfrían leikskóla fyrir 36 stundir á viku og er eingöngu greitt fyrir fæði ef dvalartíminn er innan þessara marka. Gjald fyrir 38 tíma er 7.000 krónur á mánuði. Samkvæmt nýju kerfi breytast afsláttarflokkar og miðast við tekjur foreldra en auk þess er samkvæmt nýju kerfi gert ráð fyrir að vistun barns hefjist fyrir klukkan níu á morgnana. Samkvæmt tilkynningu borgarinnar segir að foreldrar barna með vistun sem hefst eftir klukkan níu fái frest til 31. júlí 2026 til að gera breytingar og ef þau bregðist ekki við fyrir þann tíma breytist hann sjálfkrafa. til klukkan 9:00 frá og með 1. september 2026. Í Reykjavíkurleiðinni voru einnig kynntar breytingar á systkinaforgangi og aukinni íslenskukennslu fyrir starfsfólk af erlendum uppruna. Þá breytist einnig verð og skráning skráningardaga. Skráning fer, frá og með næsta skólaári, fram að hausti og vori og mun hver dagur kosta fimm þúsund krónur.
Leikskólar Reykjavík Skóla- og menntamál Börn og uppeldi Kópavogur Mest lesið „Verulega áhugaverður fávitaskapur“ Innlent Hópur fólks hafi setið um matinn í frískápnum Innlent Hólmsteinn skriðinn úr tunnunni Innlent Sigldu af stað með mótmælandann um borð Innlent „Þetta er eitthvert langsóttasta bull sem ég hef heyrt“ Innlent „Ég veit ekki hvað annað ég get gert til að hjálpa hvölunum“ Innlent Slagsmál brutust út eftir árekstur Innlent Kominn úr tunnunni og upp í lögreglubíl Innlent Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Erlent Í haldi lögreglu eftir fjölskylduerjur í Garðabæ Innlent Fleiri fréttir Lögreglustjóri braut meðalhófsreglu Símasamband verra eftir að slökkt var á eldri sendum Bjartsýni um að ljúka þingstörfum á morgun Kominn úr tunnunni og upp í lögreglubíl Segir óheimilt hafi verið að sigla af stað með mótmælandann um borð „Sjaldan verið jafn góður tími og núna fyrir kaupendur“ Hólmsteinn skriðinn úr tunnunni Í haldi lögreglu eftir fjölskylduerjur í Garðabæ Vilja veita nítján manns ríkisborgararétt Lögregla varar við svikahrappi í Árbæ Í beinni frá Hvalfirði: Mótmælandi enn í hvalbát Handtekin á leið úr landi með ríflega hundrað fuglsegg og lifandi unga Sigldu af stað með mótmælandann um borð Vilja segja „já til að sjá“ „Þetta er eitthvert langsóttasta bull sem ég hef heyrt“ Annmarkar á fleiri en einu stigi málsins Landsréttur sýknar Sindra og Ísidór af hryðjuverkaákæru „Ég veit ekki hvað annað ég get gert til að hjálpa hvölunum“ Systir Ming Ting: Catherine „ekki sjálfstæð“ „Þurfum að passa okkur að vera ekki einföld“ Ekki hafi verið ásetningur um að bana sambýliskonunni Klórför eins og þegar fólk „reynir að losa sig úr kyrkingunni“ Hyggjast sekta leigusala sem skrá ekki samninga Jón Björn ráðinn sveitarstjóri Þingmenn beðnir um að vera á tánum og tímamót í golfsögu Íslendinga nálgast Mótmælendur ekki kærðir eftir truflun á þingfundi Jón Magnús frá Ölmu og aftur á spítalann Hópur fólks hafi setið um matinn í frískápnum Bein útsending: Samtal um þjóðaröryggi – Lýðræði á tímum upplýsingaóreiðu Myndaveisla: Norðlendingar fögnuðu á 17. júní Sjá meira