Breytingin auki hvorki traust né öryggi á leigubílamarkaði Lovísa Arnardóttir skrifar 6. mars 2026 10:59 Kristín Hrefna telur breyting innviðaráðherra ekki endilega skila farþegum meira öryggi í leigubíl. Hopp Kristín Hrefna Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Hopp Reykjavíkur, á ekki von á því að breyting innviðaráðherra á stöðvarskyldu leigubílstjóra verði til þess að bílstjórar og farþegar upplifi meira öryggi. Akstur með mæli skapi mikið óöryggi meðal beggja og lagabreyting um stöðvarskyldu breyti því ekki.
Stöðvarskylda leigubílstjóra var samþykkt á Alþingi í gær og þannig endurvakin en hún var lögð niður með lagabreytingu árið 2023. Samkvæmt breytingunni þurfa bílstjórar að vera skráðir hjá leigubifreiðastöð með gilt starfsleyfi og verður stöðvunum skylt að skrá allar ferðir, þar á meðal upphafs- og endastöð, staðsetningu bifreiðar, akstursleið og greiðslur farþega. Samkvæmt breytingunni er stöðvum einnig gert að bjóða farþegum að koma á framfæri kvörtunum og ábendingum með einföldum hætti, til að mynda um óeðlilega hátt verð eða slæma þjónustu. Leigubílstjórum verður einnig skylt að upplýsa farþega um þessi réttindi og að þeir geti kvartað til viðeigandi stjórnvalda. Hefur áhrif á bílstjóra ekki fyrirtækið „Þessi breyting hefur ekki mikil áhrif á fyrirtækið Hopp en hún mun hafa áhrif á bílstjórana okkar sem þurfa þá að skrá sig ögn öðruvísi. Við erum leigubílastöð og þurfum þá ekkert að breyta miklu hjá okkur. En við viljum ekki þetta afturhvarf hjá löggjafanum og framkvæmdavalinu,“ segir Kristín Hrefna. Hún segir þau halda ótrauð áfram við að bjóða upp á betra leigubílaumhverfi óháð „þessum lagalegu leikfimiæfingum“ innviðaráðherra. Hún segir Hopp með nægan fjölda bílstjóra og þeir þurfi núna ýmist að vera skráðir hjá þeim eða á sinni eigin stöð. Margir séu skráðir á tveimur stöðum í dag og það eina sem þessi lagabreyting geri er að bæta við aukaskráningu. Fólk viti enn ekki hvað ferðin eigi að kosta Hún telur að breytingin hafi ekki þau tilætluðu áhrif sem innviðaráðherra hafi verið að leita eftir, að bæta brot á trausti og öryggisleysi varðandi bíla sem eru starfandi á mæli. „Okkar ósk til þessa frumvarps var að gerður yrði greinarmunur á farveitum, eins og Hopp og Uber og fleirum, sem eru í allt annarri aðstöðu til að sinna öryggisbrestinum sem hefur átt sér stað á markaðnum heldur en þetta gamaldags viðskiptaform sem „taxamælir“ er.“ Þar séu meiri líkur á að fólk viti ekki hvað ferðin muni kosta og því séu meiri líkur á að leiðinlegt atvik eigi sér stað varðandi kostnað. Hún segir þetta óöryggi ekki eiga sér stað hjá farveitum því þar samþykki farþegar verðið áður en þeir fara í bílinn. Auk þess sjái farþegar og bílstjórar hverju þau eiga von á í bílstjóra og farþega og þau geti hafnað ferð lítist þeim ekki á það. „Öll ferðin er rakin, hjá bílstjóra, farþega og farveitunni sem er með öll gögnin. Öryggið er þannig allt annað. Þetta mun ekki hafa nein sérstök áhrif á öryggi farþega á leigubílamarkaði, þessi aðgerð sérstaklega.“ Vilja að ráðherra losi hömlur á leigubílamarkaði Hún segir innviðaráðherra hafa töluverðar heimildir til að breyta reglugerðum og Hopp óski eftir því að hann losi frekari hömlur á leigubílamarkaði og að reglugerðum sé beitt með öðrum hætti en er gert núna. „Þá er hægt að útvista traustinu til farveitu sem hefur tæknilega burði til að framfylgja því og sýna framkvæmdavaldinu og löggjafanum hvernig við höldum utan um þessa flóknu þætti sem þarf að tryggja í nútímasamfélagi þar sem fólk býst ekki við því að fá eftiráreikning allt of háan þegar það er í viðkvæmri aðstöðu. Farþegi sem er þreyttur eða jafnvel undir áhrifum áfengis á leið heim af djamminu,“ segir Kristín Hrefna og að fólk sé í miklu viðkvæmari stöðu til að bregðast við skyndilegri hækkun á fargjaldi. „Þessi markaður er ekki nógu skilvirkur eða gagnvirkur fyrir farþega eða bílstjóra sem vilja alls ekki keyra ferðir þar sem farþegar vilja ekki borga. Þeir hafa enga löngun til þess.“ Karíókí-bílar á ferð Kristín Hrefna segir Hopp halda ótrauð áfram og hafi sem dæmi í gær gefið út nýjan leigubílaflota þar sem hægt er að spila karókí í leigubílnum. Hopp-karíókíbíll. Hopp „Við erum aðeins að létta karíókí-álagið á skemmtistöðum bæjarins. Við viljum að ferðirnar séu ánægjulegar og að fólki líði vel í leigubíl en þessar breytingar hafa ekki tilætluð áhrif, að laga þetta traust á markaði, vegna þess að kné þarf að fylgja kviði í eftirliti með bólunum sem er óvíst að þetta muni gera.“
Leigubílar Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Alþingi Neytendur Samgöngur Mest lesið Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Neytendur Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Viðskipti innlent Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Viðskipti innlent Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Viðskipti innlent Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Viðskipti innlent Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Viðskipti innlent Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Fleiri fréttir Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Súperdósin snýr aftur Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Löggan bankaði upp á á skírdag „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Gjaldskylda sett á við Egilshöll Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Skattalækkanir vinni beinlínis gegn Seðlabankanum Sjá meira