Innherji

Brýnt að „varna“ því að út­flutnings­greinar glími við of miklar kostnaðar­hækkanir

Hörður Ægisson skrifar
Í minnisblaði Daða Más Kristóferssonar fjármála- og efnahagsráðherra er dregin upp mynd af hagkerfi sem glími við „langtímastöðnun“ og mikilvægi þess að brjótast þurfi út úr þeirri stöðu eftir nærri áratug þar sem lífskjör hafi staðið í stað.
Í minnisblaði Daða Más Kristóferssonar fjármála- og efnahagsráðherra er dregin upp mynd af hagkerfi sem glími við „langtímastöðnun“ og mikilvægi þess að brjótast þurfi út úr þeirri stöðu eftir nærri áratug þar sem lífskjör hafi staðið í stað. Vísir/Anton Brink

Núna er þörf á „meiri varfærni og festu“ við stjórn ríkisfjármála samhliða því að hrint er í framkvæmd „metnaðarfullum“ efnahagsumbótum, að því er segir í sérstöku minnisblaði fjármála- og efnahagsráðherra, eigi að takast að rjúfa þá „stöðnun lífskjara“ sem er sögð hafa varað í nærri áratug. Þá er sagt brýnt að koma í veg fyrir að kostnaðarhækkanir í útflutningsgreinum séu umfram það sem þekkist í nágrannaríkjum, einkum við núverandi efnahagsaðstæður.


Tengdar fréttir

Raun­gengi krónunnar lítil­lega yfir­verðlagt að mati AGS og Seðla­bankans

Þótt raungengi krónunnar sé búið að rísa hratt að undanförnu, sem hefur þrengt nokkuð að samkeppnishæfni margra útflutningsfyrirtækja, þá er það aðeins nokkrum prósentum hærra en nemur nýlegi mati Seðlabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á jafnvægisraungenginu. Með hliðsjón af því er ekki endilega líklegt að mikil leiðrétting verði á genginu á næstunni.

Með fleiri gjald­eyris­stoðum gæti hátt raun­gengi verið „komið til að vera“

Þrátt fyrir sögulega hátt raungengi krónunnar samhliða miklum launahækkunum ætti öflug ferðaþjónusta að geta þrifist, að mati sérfræðings á gjaldeyrismarkaði, en það kallar á aðlögunarhæfni greinarinnar og smám saman muni starfsemi með litla framlegð verða ýtt út úr landi vegna launakostnaðar. Uppgjör Icelandair á öðrum fjórðungi, sem var vel undir væntingum greinenda, litaðist meðal annars af sterku gengi krónunnar og forstjóri flugfélagsins nefndi að sagan sýndi að þessi staða væri ekki sjálfbær.

Mikil hækkun launa­kostnaðar ein helsta á­hættan fyrir ytri stöðu þjóðar­búsins

Mikil hækkun launakostnaðar á framleidda einingu hér á landi á síðustu árum er „langt yfir“ þeim viðmiðunarmörkum sem Hagstofa Evrópusambandsins (Eurostat) hefur sett til að meta mögulegt ójafnvægi á ytri stöðu hagkerfa. Verði framhald á launahækkunum umfram framleiðnivöxt mun það að líkindum leiða til verðbólgu, meiri viðskiptahalla og um leið gengislækkunar krónunnar, að mati Seðlabankans.

Laun ó­fag­lærðra hækkað mun hraðar en annarra stétta með fjölgun ferða­manna

Launakjör ófaglærðra á Íslandi, sem eru nú þau bestu sem þekkjast í Evrópu, hafa batnað mun hraðar en annarra stétta frá aldamótum en kaupmáttur lágmarkslauna hefur þannig nærri tvöfaldast á meðan þeir sem eru með meistarapróf úr háskóla hafa upplifað nánast enga kaupmáttaraukningu, að sögn forstöðumanns Hagfræðistofnunar. Meginskýringin að baki þessari þróun sé „eðlileg afleiðing“ af efnahagsástandinu þar sem aukinn straumur ferðamanna til landsins hafi búið til mikla sókn í ófaglært vinnuafl.

„Á­þreif­an­leg ruðn­ings­á­hrif“ vegna uppgangs í ferð­a­þjón­ust­u

Uppgangur ferðaþjónustu hefur stuðlað að litlu atvinnuleysi og sett mikinn þrýsting á aðra innviði, þar með talið húsnæðismarkað þar sem meirihluti nýs starfsfólks í ferðaþjónustu kemur erlendis frá, segir Seðlabankinn. Ruðningsáhrif atvinnugreinarinnar hafa því verið „á­þreif­an­leg“ en hún hefur um leið átt mestan þátt í að stuðla að batnandi viðskiptajöfnuði. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×