Fimm hlutu bókmenntaverðlaun kvenna og kvára Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 5. mars 2026 16:32 Verðlaunahafar Fjöruverðlaun ásamt Heiðu Björgu Hilmisdóttur borgarstjóra. Fimm rithöfundar hlutu Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna og kvára, nú í dag. Dómnefndin taldi ritverkin þrjú einlæg, vönduð og áhrifarík.
Þetta er í tuttugasta skipti sem Fjöruverðlaunin eru veitt en þau eru veitt árlega fyrir bækur í þremur flokkum, fagurbókmenntum, fræðibókum og rit almenns eðlis og barna- og unglingabókmenntum. Í flokki fagurbókmennta hlaut Maó Alheimsdóttir verðlaun fyrir verkið sitt Hvalbak. Í rökstuðningi dómnefndar segir að bókin sé ljóðrænn óður til lands og tungu. Óvænt orðanotkun einkenni ljóðin þar sem fræðilegum íðorðum sé fléttað saman við ljóðræna orðkynngi á ferskan hátt. Kristín Guðrún Jónsdóttir, Elísabet Gunnarsdóttir og Auður Aðalsteinsdóttur hlutu verðlaun í flokki fræðibóka og rita almenns eðlis fyrir Drífa Viðar. „Bókin er rík af heimildum, bréfaskriftum og samtímarýni sem veitir innsýn í það samfélag sem Drífa Viðar tók þátt í að móta og það erindi sem verk hennar eiga enn í dag,“ segir í rökstuðningi dómnefndarinnar. Að lokum hlaut Brynhildur Þórarinsdóttir verðlaun í flokki barna- og unglingabókmennta fyrir bókina Silfurgengið. Í bókinni segir hún sögu fimmtán ára Sirrylei sem tekst á við stóru málin í lífinu. Dómnefndin taldi söguna einlæga og spennandi auk þess sem hún sýni lesendanum það sem hefur breyst og það sem er alltaf eins. Verðlaunahafarnir fengu verðlaunagripi gerða af listakonunni Koggu. Tilgangur Fjöruverðlaunanna er að stuðla að aukinni kynningu á ritverkum kvenna og hvetja konur í rithöfundastétt til dáða.
Bókmenntir Reykjavík Mest lesið Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Lífið Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Lífið Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Lífið „Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi“ Menning Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Lífið Balti og Sunneva brugðu sér af bæ Bíó og sjónvarp Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Lífið Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Lífið Þetta er undarlegt…: QWERTY-stafaruglið á símum og lyklaborðum Áskorun Boltamömmur í miðjumoði Gagnrýni Fleiri fréttir Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sjá meira