Niðurstöður samræmdu prófanna birtar eftir skólum Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 4. mars 2026 11:44 Inga Sæland, barna- og menntamálaráðherra, vonar að grunnskólarnir verði lausir við síma strax í haust. Vísir/Vilhelm Niðurstöður samræmdra prófa grunnskólabarna verða birtar opinberlega eftir skólum. Þetta kemur fram í nýrri reglugerð mennta- og barnamálaráðherra um fyrirkomulag samræmds námsmats í grunnskólum.
Nemendur í fjórða, sjötta og níunda bekk grunnskóla landsins þreyta samræmd próf í fyrsta sinn í fimm ár þessar vikurnar. Kennararnir hafa fjórar vikur til að leggja prófin fyrir nemendurna. Heimilt er að leggja prófin fyrir nemendur í öllum bekkjum grunnskólanna en einungis skylda í áðurnefndum bekkjum. Nemendur og foreldrar fá aðgang að niðurstöðum prófsins og einnig kennarar fyrir sína nemendur. Sveitarfélögin fá niðurstöður sinna skóla og sömuleiðis skólastjórar. Ráðherra birtir síðan skýrslu með ópersónugreinanlegum upplýsingum um niðurstöðurnar þar sem niðurstöður einstakra skóla eru birtar. Börnin þreyta próf í lesskilningi og stærðfræði en einnig hafa niðurstöður lesfimi grunnskóla undanfarinna fimm ára verið birtar í fyrsta skipti. Ekkert að fela Það lá fyrir að niðurstöður prófanna yrðu birtar en um miðjan janúar sagði Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, að þau hefðu ekkert að fela. „Meðan við reynum að halda hlutunum niðri í kjallara og enginn fær að sjá og við lítum á það sem viðurkennt þá munum við ekki viðurkenna vandann,“ sagði Inga. Í fréttatilkynningu frá stjórnarráðinu segir að markmið með birtingu upplýsinganna sé að auka gagnsæi og fá heildstæða yfirsýn yfir námsframvindu barnanna. Seltjarnarnes mælist hæst Í nýbirtum niðurstöðum lesfimiprófa síðustu fimm ár kemur fram að hlutfall barna sem nær lágmarksviðmiði í lesfimi fer lækkandi. Lesfimi mælir lestrarhraða, tjáningu og nákvæmni en ekki lesskilning. Hæsta hlutfall grunnskólabarna sem nær skilgreindu lágmarksviðmiði samkvæmt fréttatilkynningunni eru Seltjarnarnes, Garðabær, Fjallabyggð og Mosfellsbær. Tekið er fram að rannsóknir gefa til kynna fylgni milli menntunarstigs og félagsstöðu foreldra og námsárangurs barna.
Skóla- og menntamál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Grunnskólar Börn og uppeldi Mest lesið Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Innlent Safna fyrir fjölskyldu Steinunnar sem lést við barnsburð Innlent Inga í veikindaleyfi Innlent Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Innlent Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Nálgast stríðið vendipunkt? Erlent Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Innlent Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Innlent Ver billjónum í „draumóra“ um lengra líf Erlent Eldflaug Bezos sprakk í loft upp Erlent Fleiri fréttir Nei eða já? Af eða á? Sneri drenginn niður, sló hann og tók mynd af honum eftir misheppnað dyraat Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta í átján af tuttugu stærstu sveitarfélögunum Hundrað mættu í fyrsta hjólastrætóinn hérlendis Samkomulagi náð og verkfalli aflýst Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Hættulegt að lána lyf Kjaradeilan vekur upp spurningar um framtíð Icelandair Vör ýtt úr vör Barn missti meðvitund eftir árekstur á skólalóð Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Ari Edwald enn undir feldi Loka hringveginum til norðurs á sunnudagskvöld Eden Mining lagði sóknarbörnin Kæru foreldra Sólons gegn Icelandair vísað frá dómi Skýrslan um krónuna sýni að valkostirnir séu tveir Styttan af Séra Friðriki fer upp, bara ekki strax Mynda meirihluta án Framsóknar í Skagafirði Truflanir á island.is Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Þrír mánuðir til stefnu Stefán Jökulsson er látinn Viðræður þokast lítið áfram þrátt fyrir ítrekaða fundi Inga í veikindaleyfi Slagurinn um ESB og sumarhretið fyrir austan Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Bein útsending: Ópíóíðar og verkjalyf á Íslandi Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Grunaður um að ofsækja son sinn sem sleit á öll tengsl Átta vilja vera forstjóri Hafró Sjá meira