Spjótin beinast að séra Jakobi og kaþólsku kirkjunni Jón Þór Stefánsson skrifar 3. mars 2026 21:32 Hanna Katrín, Þorgerður Katrín, og Bjarndís Helga beina spjótum sínum að Jakobi Roland kanslara Kaþólsku kirkjunnar. Vísir/Vilhelm/Lýður Valberg Bjarndís Helga Tómasdóttir, formaður Samtakanna 78, telur að öllu hinsegin fólki sárni að heyra orð Jakobs Rollands, kanslara kaþólsku kirkjunnar á Íslandi, um að hann álíti kynlíf samkynja einstaklinga syndugt. Þá telur hún, miðað við orð kanslarans, að svokallaðar bælingarmeðferðir séu stundaðar á vegum kirkjunnar þrátt fyrir að þær séu ekki sérlega skipulagðar.
Í kvöldfréttum Sýnar í kvöld sagði séra Jakob að kirkjan verði að boða boðskap kirkjunnar, hvort sem hann teljist löglegur eða ekki. Hann fylgi heldur Guðs orðum þegar landslög og Guðs lög stangist á. Þá sagði hann að sinnaskipti, það að hverfa frá því sem telst skynsamlegt, væri mikilvægur hluti af lífi kaþólkka, og að það ætti einnig við um samkynhneigð. „Það er náttúrulega mjög sárt, og ótrúlegt að heyra þetta í dag, þó það komi ekki sérstaklega á óvart,“ sagði Bjarndís Helga um orð kanslarans í kvöldfréttum. Jakob sagði engar skipulagðar bælingarmeðferðir fara fram innan kirkjunnar, en að það komi fyrir að fólk leiti aðstoðar til kirkjunnar og þá tali fólk saman. Bjarndís segir að um sé að ræða bælingarmeðferð. „Það er mikilvægt að átta sig á því að þó hann tali um að þarna séu bara samtöl þá er um bælingarmeðferð að ræða, sama hversu skipulögð sem hún er,“ segir hún. „Þetta er lögbrot og ætti að vera rannsakað sem slíkt.“ Áttu von á því að það verði gert? „Ég geri bara ráð fyrir því. Við þurfum öll að fylgja landslögum, hvort sem við erum að ræða einstaklinga eða kaþólsku kirkjuna.“ Sárt fyrir kaþólskt hinsegin fólk Bjarndís telur að það sé sárt fyrir allt hinsegin fólk að heyra af ummælum kanslarans. „Og auðvitað sérstaklega fyrir þau sem eru kaþólsk, og þau sem hafa ekki enn komið út úr skápnum. Ég held að það sé mikilvægt að muna að við eigum öll rétt á því að tilheyra. Það á ekki að vera háð einhverskonar takmörkunum eða skilyrðum. Það er ekki kærleikur kristinnar kirkju eins og ég hef nokkurn tímann skilið hana.“ Spurð út í viðmót Þjóðkirkjunnar til hinsegin fólks segir Bjarndís að þar sé erfið saga á bakvið, en á síðustu árum hafi kirkjan stigið virkilega stór skref til að heila gömul sár sem liggi að baki. „Eins og staðan er núna höfum við mikla trú á þeirri góðu vinnu.“ „Miður ef kirkjan mín er eitthvað að gæla við lögbrot“ Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra og meðlimur í kaþólsku kirkjunni, tjáði sig um málið að ríkisstjórnarfundi loknum í dag. „Mér finnst miður ef kirkjan mín er eitthvað að gæla við lögbrot. Það er bann við bælingum og við verðum að virða íslensk lög,“ sagði Þorgerður, sem sagði það alveg skýrt eftir að lög um slíkt voru samþykkt 2023. „Ég biðla til kirkjunnar minnar: Ekki fara í eitthvað svona, ekki fara gegn lögum, og ekki fara gegn fjölbreytileikanum.“ Klippa: Þorgerður Katrín um bælingarmeðferðir Landslög nái líka yfir presta Fleiri hafa gagnrýnt kirkjuna og orð séra Jakobs. Þar má nefna Hönnu Katrínu Friðriksson, atvinnuvegaráðherra. „Hér er um ákveðinn grundvallarmisskilning að ræða. Það er ekki skylda kirkjunnar að brjóta lög til að þvinga fólk í það form sem kirkjunni þykir rétt. Þvert á móti reyndar. Það er skylda presta, rétt eins og annarra, að fara að lögum. Svo væri líka fallegt af þessum guðsmanni að nálgast fjölbreytileika í mannlegu eðli af aðeins meiri virðingu og jafnvel hógværð. Það er nefnilega skortur þar á sem úthýsir hópi fólks úr kaþólsku kirkjunni, ekki lög sem tryggja þeim sama hópi eðlileg mannréttindi til jafns við aðra,“ skrifaði Hann Katrín á Facbook. Helga Vala Helgadóttir, lögmaður og fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, tók í sama streng á Facebook. „Vonandi getur einhver útskýrt fyrir manninum að þetta er auðvitað alrangt. Landslög gilda. Ef einhverjar reglur eða siðir í öllum þeim trúarbrögðum eða lífsskoðunarfélögum sem sem iðkuð eru eða starfa hér á landi ganga í berhögg við landslög þá vitanlega gilda landslög. Annað er óhugsandi.“
Trúmál Hinsegin Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Vaktin: Átökin breiðast enn út Erlent Formaður Viðreisnar í Reykjavík sakaður um fjárdrátt Innlent Fótbrotinn og févana í Afríku Innlent „Ég hefði stigið inn í á sekúndum hefði ég vitað af þessu“ Innlent „Ekki Alþingi sem skipar mér hvað ég á að segja“ Innlent Ísrael gerir árásir á Tehran og Beirút og Íranir svara fyrir sig Erlent „Hversu lágt geta þingmenn lagst í störfum sínum?“ Innlent „Þá er bara búið að skemma MR“ Innlent Matvöruverð hafi hækkað meira en laun og forsendur að bresta Innlent Íslenskt par flýr Dúbaí á eigin vegum Innlent Fleiri fréttir Grunaður um að kýla konu og sparka svo í hana þegar hún lá eftir Karólína Helga leiðir Viðreisn í Hafnarfirði Spjótin beinast að séra Jakobi og kaþólsku kirkjunni „Ekki Alþingi sem skipar mér hvað ég á að segja“ Matvöruverð hafi hækkað meira en laun og forsendur að bresta Einar Geir oddviti Miðflokks í Hafnarfirði Vegum lokað í kjölfar snjóflóðs í Raknadalshlíð Elliði lofar því að flytja ekki aftur til Eyja Formaður Viðreisnar í Reykjavík sakaður um fjárdrátt Ríkisstjórnin fái kynningu um þjóðaratkvæði á föstudag „Hversu lágt geta þingmenn lagst í störfum sínum?“ „Djöfulsins feita piggið þitt!“: Slapp með hótun sem hræddi ekki Samfylkingin og ríkisstjórnin lækka flugið Rósa vill leggja fjölmiðlanefnd niður Fótbrotinn og févana í Afríku „Við erum ekki að biðja um neitt meira en aðrir fá“ Um 140 íslenskir ríkisborgarar á áhrifasvæðum átakanna Dagur segir Þorstein auk Jóns eiga heiðurinn af EES-samningnum Láta alla nemendur sem mega þreyta samræmdu prófin Hádegisfréttir Bylgjunnar: Aðalspurningin hvort fleiri blandist inn í átökin „Ég hefði stigið inn í á sekúndum hefði ég vitað af þessu“ Þau skipa lista Sjálfstæðismanna á Seltjarnarnesi Opinber útför Davíðs Oddssonar en fjölskyldan ræður för Kynnir þrettán aðgerðir gegn brotastarfsemi Kæru vegna gistihýsa við þjóðgarðinn í Skaftafelli vísað frá Endurspegli aukna hörku í garð launafólks hjá Hafnarfjarðarbæ Samfylkingin mætt til leiks á Ísafirði Bjuggust ekki við því að búa við sprengjuregn í Barein Gæti orðið flughált síðdegis Við öllu búin en vonar að árásunum fari að linna Sjá meira