Forsetahjónin verða viðstödd vígslu íþróttamannvirkis í Búðardal Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 28. febrúar 2026 12:03 Björn Bjarki Þorsteinsson, stoltur sveitarstjóri Dalabyggðar með nýja íþróttamannvirkið í Búðardal eins og aðrir íbúar sveitarfélagsins en formleg vígsla hússins fer fram í dag. Magnús Hlynur Hreiðarsson Það stendur mikið til í Búðardal eftir hádegi í dag því þá verða ný íþróttamannvirki formlega tekin í notkun að viðstöddum forsetahjónunum. Um er að ræða glæsilegt íþróttahús, sundlaug og heita potta, ásamt líkamsræktaraðstöðu. Kostnaðurinn við mannvirkið er um einn og hálfur milljarður króna.
Það er Dalabyggð, sem byggir nýja íþróttamannvirkið, sem er glæsilegt í alla staði með frábæra aðstöðu til íþrótta- og sundiðkunar, auk líkamsræktar. Vígsluathöfnin hefst klukkan 14:30 á eftir. Björn Bjarki Þorsteinsson er sveitarstjóri Dalabyggðar. „Við erum í rauninni að tala um íþróttamiðstöð frá A til Ö, þar að segja, það verður íþróttasalur, löglegur körfuboltavöllur, síðan þreksalur og svo útisvæði þar sem verður sundlaug, tveir heitir pottar, kaldur pottur, vaðlaug fyrir krakkana og sánahús,” segir Björn Bjarki. Þetta er ótrúlega vel gert hjá ykkur í ekki stærra sveitarfélagi. „Já, sveitarstjórnin hefur verið gríðarlega samhent í því að koma þessu á. Auðvitað er þetta gríðarlega umfangsmikið verkefni fyrir tæplega 700 manna samfélag en metnaðurinn er til staðar hér í Dölum og við vildum gera þetta vel, samfélaginu til heilla til frambúðar,” segir Björn Bjarki. Íþróttamannvirkið er allt hið glæsilegasta.Aðsend Við vígslu hússins á eftir verða forsetahjónin meðal gesta og Eygló Fanndal Sturludóttir Íþróttamaður ársins 2025 og fulltrúar frá ÍSÍ, UMFÍ sem og verktökum hússins. Séra Snævar Jón Andrjesson, blessar mannvirkið og þá starfsemi sem í því verður. Löglegur körfuboltavöllur er í húsinu.Aðsend „Þannig að það verða stutt og góð ávörp og svo gæðum við okkur á tertu og síðan labbar fólk um húsið og skoðar,” segir sveitarstjórinn að lokum. Nokkrir starfsmenn Dalabyggðar í nýja húsinu, sem voru að gera allt klárt í gær fyrir vígsluna í dag.Aðsend Heimasíða Dalabyggðar
Dalabyggð Forseti Íslands Halla Tómasdóttir Mest lesið Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Rangar ákvarðanir hafi örugglega verið teknar Innlent Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ Innlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Tígrisdýrið verður ekki aflífað Erlent Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Innlent Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Innlent Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Erlent Fleiri fréttir Þrettán þúsund hafa skrifað undir Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Sjá meira