Dæmdir fyrir að taka við fé fyrir Teslur sem þeir afhentu aldrei Kjartan Kjartansson skrifar 27. febrúar 2026 10:34 Even ehf. var fyrsta fyrirtækið sem seldi Teslur á Íslandi. Það varð gjaldþrota árið 2016, meðal annars vegna þess að Tesla átti á þeim tíma erfitt með að skala upp framleiðslu sína og fylla pantanir. Vísir/Vilhelm Tveir forsvarsmenn rafbílasölunnar Even sem varð gjaldþrota fyrir áratug voru dæmdir fyrir fjárdrátt í síðustu viku. Annar þeirra þarf að greiða hátt í tuttugu milljónir króna sem þeir tóku við sem greiðslur fyrir Teslur sem voru aldrei afhentar kaupendum.
Tveir viðskiptavinir Even, sem þeir Gísli Gíslason, lögfræðingur, og Emil Kári Ólafsson ráku saman, kærðu þá fyrir að taka við milljónum króna upp í innborganir á Tesla-bifreiðum árið 2015 sem þeir afhentu aldrei. Gísli og Emil Kári voru báðir dæmdir í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í síðustu viku. Auk þess þarf Gísli að greiða öðrum viðskiptavininum tólf og hálfa milljón króna auk vaxta en hinum rúmar sex milljónir króna. Níu ár liðu frá því að rannsókn málsins hófst þar til ákæra var gefin út. Héraðsdómur taldi óútskýrð hlé hafa verið á rannsókninni þótt hann féllist á að umfang hennar væri óumflýjanlega mikið vegna eðlis sakarefninsins. Tók dómstóllinn tillit til þessa mikla dráttar við ákvörðun refsingar Gísla og Emils Kára, sérstaklega varðandi skilorð og tímalengd þess. Refsing þeirra er bundin skilorði til eins árs frá uppkvaðningu dómsins. „Bölvuð skítalykt“ af öllu saman Bílasalarnir tveir voru ákærðir fyrir fjárfrátt þar sem þeir hefðu tekið við peningum til innborgunar á kaupverð Tesla-bifreiða en nýtt fjármunina í þágu fyrirtækisins í staðinn fyrir að standa skil á þeim. Þeir neituðu báðir sök. Báru þeir því við að þeir hefðu ekki getað efnt sinn hlut í viðskiptunum vegna slæmrar skuldastöðu fyrirtækisins. Ástæðan fyrir henni hefði verið dráttur á afhendingu bifreiða frá Tesla-framleiðandans. Gísli Gíslason, lögfræðingur og fyrrverandi rafbílasali.Jenný Sigurgeirsdóttir Í dómnum kemur fram að bókhald félagsins hafi verið losaralegt. Ekki hafi verið tryggt að greiðslur væru rekjanlegar, fylgiskjölum hafi verið áfátt og innborgunum viðskiptavina ekki haldið sérgreindum frá rekstri félagsins. Ekki hafi verið sérstakur vörslureikningur fyrir innborganir viðskiptavina. Fyrrverandi starfsmaður fyrirtækisins sem bar vitni í málinu lýsti því þannig að það hefði verið „bölvuð skítalykt af þessu öllu saman“ í rekstrinum. Fjármagn hafi ekki verið til staðar og menn hefðu selt bifreiðar sem þeir keyptu af öðrum. Ekkert kom fram við meðferð málsins sem dómstóllinn taldi staðfesta að innborganir viðskiptavinanna tveggja hefðu verið sendar bílaframleiðandanum eins og kveðið var á um í kaupsamningum við viðskiptavinina. Þess í stað hefði féð farið í almennan rekstur félagsins og því blandað saman við almenn rekstrarfé. Báðir ábyrgir Bæði Gísli og Emil Kári voru taldir sameiginlega ábyrgir fyrir ráðstöfun fjármuna félagsins þrátt fyrir að Gísli hefði reynt að varpa sökinni á samstarfsmann sinn. Þeir hefðu báðir mátt vita að innborganir viðskiptavina blönduðust við vörslufé. Þeir hefðu þá strax litið á fjármunina sem eign félagsins og farið með þá sem slíka. Þá hefði þeim báðum mátt vera ljóst að fjárhagur félagsins hefði ekki verið traustur þegar þeir tóku við innborgununum og að óvíst væri að það gæti staðið við sitt. Taldi dómurinn sannað að þeir hefðu gerst sekir um fjárdrátt með því að tileinka sér féð í þágu fyrirtækisins með ólögmætum hætti í auðgunarskyni.
Dómsmál Tesla Vistvænir bílar Efnahagsbrot Mest lesið Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Viðskipti innlent Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Viðskipti innlent Fleiri færðu lögheimili í ár Viðskipti innlent Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Viðskipti erlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Fleiri fréttir Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Sjá meira