„Það er einhvers konar pissa í skóinn sinn-hagfræði“ Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 26. febrúar 2026 20:02 Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, er svekktur yfir verðbólguþróuninni. Vísir/Sigurjón Það eru gríðarleg vonbrigði að verðbólga mælist ekki á niðurleið og þrálát verðbólga til lengri tíma er óviðunandi að sögn fjármála- og efnahagsráðherra. Honum hugnast þó ekki hugmyndir um að breyta opinberum gjöldum í því skyni að lækka verðbólgu. Næsta vaxtaákvörðun Seðlabankans verður um miðjan mars, og nýjasta verðbólgumæling þykir ekki til marks um að líklegt sé að meginvextir bankans verði lækkaðir.
Ný ríkisstjórn tók við fyrir fjórtán mánuðum, í desember 2024, en síðan hafa vextir lækkað hægar en vonast var til og verðbólga hefur heilt yfir aukist og stendur í stað á milli mánaða samkvæmt nýjustu mælingu. „Þetta eru mikil vonbrigði og við sáum svo sem vísbendingar um þetta í síðustu mælingu, en við sjáum það glögglega í þessari mælingu sem er þá alveg laus við öll áhrif breytinga á opinberum gjöldum, að það er ennþá töluverður undirliggjandi verðbólguþrýstingur,“ segir Daði Már Kristófersson, fjármála og efnahagsráðherra. Við það ástand sé ekki hægt að una lengi. Hvað skýrir þessa stöðu að mati Daða? „Ég held að þetta vandamál hafi verið vel þekkt, og að þessi síðasti hjalli, það var alltaf reiknað með að hann yrði erfiður og það hefur hann reynst. Þar koma auðvitað margir hlutir saman. En við höfum verið alveg skýr með það að haga ríkisfjármálunum til stuðnings þeirri vegferð Seðlabankans að ná niður verðbólgu og þar með vöxtum og það munum við gera áfram.“ En hvað er til ráða? „Allir eru með hugmyndir og það hafa til dæmis verið þarna úti hugmyndir um að breyta opinberum gjöldum til þess að beinlínis lækka verðbólgumælinguna. Vandamálið er bara það að það hjálpar okkur ekki, það er einhvers konar pissa í skóinn sinn hagfræði. Það sem við þurfum þvert á móti er að halda okkur við að ná hér hallalausum fjárlögum, að ríkið sé ekki að stuðla að þenslu og þannig að styðja við þá vegferð Seðlabankans að ná niður verðbólgu,“ svarar Daði.
Verðlag Efnahagsmál Fjármál heimilisins Rekstur hins opinbera Mest lesið Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Viðskipti innlent Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Viðskipti innlent Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Fleiri færðu lögheimili í ár Viðskipti innlent ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf Fleiri fréttir Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Sjá meira