Steina vill áfrýja: „Brotið gegn grundvallarréttindum umbjóðanda míns“ Árni Sæberg skrifar 26. febrúar 2026 16:58 Vilhjálmur er verjandi Steinu. Vísir Steina Árnadóttir hjúkrunarfræðingur hefur falið Vilhjálmi Vilhjálmssyni, verjanda sínum, að óska eftir áfrýjunarleyfi Hæstaréttar vegna dóms Landsréttar í dag. Þar var hún sakfelld fyrir manndráp af gáleysi. Vilhjálmur telur að brotið hafi verið á grundvallarréttindum Steinu til réttlátrar málsmeðferðar og það sé meðal margra atriða, sem gæti orðið til þess að Hæstiréttur veiti áfrýjunarleyfið.
Landsréttur staðfesti síðdegis dóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir Steinu, þar sem hún var sakfelld en ekki gerð refsing. Vilhjálmur staðfestir í samtali við Vísi að hún hafi þegar falið honum að falast eftir leyfi Hæstaréttar til að skjóta máli hennar þangað. Samkvæmt lögum um meðferð sakamála skal slíkt leyfi aðeins veita ef áfrýjun lýtur að atriði sem hefur verulega almenna þýðingu eða af öðrum ástæðum er mjög mikilvægt að fá úrlausn Hæstaréttar um. Þá getur Hæstiréttur veitt slíkt leyfi ef ástæða er til að ætla að málsmeðferð fyrir héraðsdómi eða Landsrétti hafi verið stórlega ábótavant eða dómur Landsréttar bersýnilega rangur að formi eða efni. Svipar til Gallerís Borgar málsins Vilhjálmur segist telja að ákveðnar möguleikar séu á því að Hæstiréttur fallist á að taka mál Steinu fyrir. Til að mynda vegna þess að málið hafi farið marga hringi í réttarkerfinu og hún upphaflega sýknuð, líkt og fjallað er um í fréttinni hér að ofan. „Það liggur líka fyrir að þessi niðurstaða er í andstöðu við skýrt dómafordæmi Hæstaréttar í Gallerís Borgar málinu, þar sem sérfræðingar Listasafns Íslands mátu listaverk í málinu og ákæruvaldið byggði á því. Í þessu tilviki er Landspítalinn tilkynnandi málsins. Málið er síðan dæmt á grundvelli útvíkkaðrar réttarkrufningar frá starfsmönnum Landspítalans. Ég tel að það eigi nákvæmlega sama við í þessu tilviki.“ Þar vísar Vilhjálmur til dóms Hæstaréttar í Stóra málverkarfölsunarmálinu svokallaða árið 2004, þar sem Pétur Þór Gunnarsson, eigandi Gallerís Borgar, og Jónas Freydal voru sýknaðir af ákæru fyrir málverkafals. „Staða Listasafns Íslands sem eins kærenda í málinu var óhjákvæmilega talin valda því að þær sérfræðilegu álitsgerðir, sem lögregla hafði aflað hjá starfsmönnum listasafnsins fyrir útgáfu ákæru, gætu ekki talist tækar fyrir dómi til sönnunar um atriði sem vörðuðu sök ákærðu. Gilti þá einu hvort um væri að ræða myndverk, sem listasafnið hafi lagt fram kæru um, eða verk sem því væru óviðkomandi. Var ekki talið að þau sönnunargögn, sem eftir stæðu, nægðu til þess að ákæruvaldið gæti talist hafa axlað þá sönnunarbyrði, sem á því hvíli,“ segir í reifun þess máls á vef Hæstaréttar. Brot á grundvallarréttindum Vilhjálmur bendir á að Landspítalinn hafi haft mikil afskipti af málinu á öllum stigum þess og Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu lagt til að spítalinn sjálfur yrði ákærður í málinu. „Ég tel að gögn sem stafa frá starfsmönnum Landspítalans, samanber þessa útvíkkuðu réttarkröfugerð, séu ekki tæk sönnunargögn í sakamáli og með því sé brotið gegn grundvallarréttindum umbjóðanda míns í þessu máli til réttláttrar málsmeðferðar fyrir dómi, bæði samkvæmt stjórnarskrá og Mannréttindasáttmála Evrópu. Þetta er nú bara eitt af mörgum atriðum sem ég tel að Hæstiréttur muni horfa til, en það er ljóst að dómafordæmi Hæstaréttar í Gallerí Borgar málinu er algjörlega skýrt hvað þetta varðar. Ég tel nauðsynlegt að Hæstiréttur taki þá afstöðu til þess, hvort að sú dómaframkvæmd haldi eða ekki eða móti nýja réttarreglu í þessu sambandi.“
Andlát á geðdeild Landspítala Dómsmál Landspítalinn Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Sjá meira