Verðbólga stendur í stað þvert á spár Árni Sæberg skrifar 26. febrúar 2026 09:00 Matarverð vegur þungt í verðlagsmælingum. Vísir/Vilhelm Verðbólga mældist 5,2 prósent í febrúar, eftir að hafa einnig mælst 5,2 prósent í janúar. Greiningardeildir bæði Íslandsbanka og Landsbankans höfðu spáð því að verðbólgan færi strax niður fyrir fimm prósentin og myndi mælast 4,9 prósent í febrúar. Í tilkynningu þess efnis á vef Hagstofunnar segir að vetrarútsölur séu víða gengnar til baka og verð á fötum og skóm hafi hækkað um 5,1 prósent (áhrif á vísitöluna 0,17 prósent) og verð á húsbúnaði, heimilistækjum hafi hækkað um 5,4 prósent (0,21 prósent). Verð á mat og óáfengum drykkjum hafi hækkað um 0,9 prósent (0,14 prósent), gjöld vegna vatnsveitu, sorphirðu og fráveitu hækkað um 4,3 prósent (0,07 prósent) og flugfargjöld til útlanda um 6,8 prósent (0,15 prósent). Verð á dísel hafi lækkað um 5,6 prósent (-0,05 prósent) og verð á bensíni lækkað um 6,0 prósent (-0,11 prósent). „Við sannprófun gagna fyrir febrúar kom í ljós að rangt eldsneytisverð var skráð hjá einum smásöluaðila í janúar. Lækkun á bensíni og dísel í febrúar er að miklu leyti vegna uppfærslu þessarar skráningar. Lækkun á dísel í janúar hefði átt að vera 28,1 prósent (áhrif á vísitölu -0,30 prósent) og lækkun á bensíni hefði átt að vera 31,5 prósent (-0,78 prósent). Leiðréttingin hefur ekki áhrif á birt gildi vísitölu neysluverðs í janúar.“ Síðastliðna tólf mánuði hafi vísitala neysluverðs hækkað um 5,2 prósent og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 4,5 prósent. Skýring Seðlabankans á hvað verðbólga er: Verðbólga er skilgreind sem viðvarandi hækkun almenns verðlags og er mæld sem tólf mánaða breyting vísitölu neysluverðs. Sú vísitala mælir meðalverð á vörum og þjónustu sem heimili á Íslandi kaupa í hverjum mánuði. Verðbólga felur í sér að verðgildi og kaupmáttur peninga minnkar, þ.e.a.s. minna magn vöru og þjónustu fæst fyrir hverja krónu. Verðlag Mest lesið Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Viðskipti innlent Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Viðskipti innlent Fleiri færðu lögheimili í ár Viðskipti innlent Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Viðskipti erlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Fleiri fréttir Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Sjá meira
Greiningardeildir bæði Íslandsbanka og Landsbankans höfðu spáð því að verðbólgan færi strax niður fyrir fimm prósentin og myndi mælast 4,9 prósent í febrúar. Í tilkynningu þess efnis á vef Hagstofunnar segir að vetrarútsölur séu víða gengnar til baka og verð á fötum og skóm hafi hækkað um 5,1 prósent (áhrif á vísitöluna 0,17 prósent) og verð á húsbúnaði, heimilistækjum hafi hækkað um 5,4 prósent (0,21 prósent). Verð á mat og óáfengum drykkjum hafi hækkað um 0,9 prósent (0,14 prósent), gjöld vegna vatnsveitu, sorphirðu og fráveitu hækkað um 4,3 prósent (0,07 prósent) og flugfargjöld til útlanda um 6,8 prósent (0,15 prósent). Verð á dísel hafi lækkað um 5,6 prósent (-0,05 prósent) og verð á bensíni lækkað um 6,0 prósent (-0,11 prósent). „Við sannprófun gagna fyrir febrúar kom í ljós að rangt eldsneytisverð var skráð hjá einum smásöluaðila í janúar. Lækkun á bensíni og dísel í febrúar er að miklu leyti vegna uppfærslu þessarar skráningar. Lækkun á dísel í janúar hefði átt að vera 28,1 prósent (áhrif á vísitölu -0,30 prósent) og lækkun á bensíni hefði átt að vera 31,5 prósent (-0,78 prósent). Leiðréttingin hefur ekki áhrif á birt gildi vísitölu neysluverðs í janúar.“ Síðastliðna tólf mánuði hafi vísitala neysluverðs hækkað um 5,2 prósent og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 4,5 prósent. Skýring Seðlabankans á hvað verðbólga er: Verðbólga er skilgreind sem viðvarandi hækkun almenns verðlags og er mæld sem tólf mánaða breyting vísitölu neysluverðs. Sú vísitala mælir meðalverð á vörum og þjónustu sem heimili á Íslandi kaupa í hverjum mánuði. Verðbólga felur í sér að verðgildi og kaupmáttur peninga minnkar, þ.e.a.s. minna magn vöru og þjónustu fæst fyrir hverja krónu.
Skýring Seðlabankans á hvað verðbólga er: Verðbólga er skilgreind sem viðvarandi hækkun almenns verðlags og er mæld sem tólf mánaða breyting vísitölu neysluverðs. Sú vísitala mælir meðalverð á vörum og þjónustu sem heimili á Íslandi kaupa í hverjum mánuði. Verðbólga felur í sér að verðgildi og kaupmáttur peninga minnkar, þ.e.a.s. minna magn vöru og þjónustu fæst fyrir hverja krónu.
Verðlag Mest lesið Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Viðskipti innlent Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Viðskipti innlent Fleiri færðu lögheimili í ár Viðskipti innlent Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Viðskipti erlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Fleiri fréttir Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Sjá meira