Kjarabarátta Viðskiptaráðs Jónas Yngvi Ásgrímsson skrifar 23. febrúar 2026 11:01 Sem stjórnarmaður í VR get ég ekki annað en glaðst yfir óvæntum stuðningi við kjarabaráttu almenna vinnumarkaðarins frá einhverjum félagsskap sem kallast Viðskiptaráð Íslands. Hingað til hafa stéttarfélög sem hafa verið að semja við SA talað fyrir daufum eyrum þegar kemur að mismun á réttindum starfsmanna eftir því hvort þeir starfa hjá opinberum fyrirtækjum eða fyrirtækjum í einkarekstri. En nú er þessi óvænti liðsauki mættur í baráttuna með stéttarfélögunum. Á síðasta ári benti Viðskiptaráð á að atvinnuöryggii opinberra starfsmanna væri meira en í einkageiranum. Væntanlega hljóta stéttarfélög að taka þetta óréttlæti upp í næstu kjarasamningum með vísan í umfjöllun og útreikninga Viðskiptaráðs. Krafa stéttarfélaga um að ekki sé hægt að segja starfsfólki upp án undangenginnar ávítunar, andmælaréttar og fresti til að bæta sig er rækilega studd af Viðskiptaráði. Þessa dagana er Viðskiptaráð að fjalla um veikindarétt opinberra starfsmanna og samkvæmt þeirra niðurstöðum þá hafa opinberir starfsmenn sjö sinnum meiri rétt en starfsmenn á almennum markaði. Þetta sýna þeir fram á með alls konar útreikningum og töflum sem stéttarfélögin geta nýtt sér í næstu kjarasamningum. Ég kann Viðskiptaráði miklar þakkir fyrir að einfalda okkur vinnuna við kjarasamningsgerðina. Næsta skref Viðskiptaráðs hlýtur síðan að vera að benda á að orlofsréttur allra opinberra starfsmanna er 30 dagar meðan kjarasamningur VR við SA er 24 – 30 dagar eftir starfsaldri. Það verður gaman þegar þessu takmarki stéttarfélaga á almennum vinnumarkaði er náð. Eins og Viðskiptaráð Íslands bendir á þá er ekki réttlæti í að starfsfólk njóti mismunandi kjara eftir því hvort unnið sé hjá opinberum fyrirtækjum eða á almennum vinnumarkaði. Sökum þess hljótum við að stefna að því að réttindi séu þau sömu yfir línuna. Eðlilega færum við ekki áunnin réttindi niður á lægstu réttindin heldur hljótum við að stefna að því að allt launafólk njóti þeirra hámarksrétinda sem búið er að semja um. Því hlýtur krafa næstu kjarasamninga að vera: Aukið atvinnuöryggi, aukinn réttindi til veikindadaga og aukið orlof. Launafólk verður rækilega stutt af Viðskiptaráði Íslands sem með sínum útreikningum hefur fært okkur þau vopn sem okkur vantaði í baráttuna. Takk fyrir Viðskiptaráð og vinsamlegast haldið áfram að aðstoða launafólk í baráttunni fyrir bættum kjörum. Höfundur er varaþingmaður fyrir Flokk fólksins og stjórnarmaður í VR. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Vinnumarkaður Stéttarfélög Jónas Yngvi Ásgrímsson Mest lesið Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Spírallinn Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir skrifar Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir skrifar Skoðun Netöryggi snýst líka um að þora að segja frá Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen skrifar Skoðun Getur maður verið rasisti án þess að gera sér grein fyrir því? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia skrifar Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Sjá meira
Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar