Haraldur Sigurðsson – Halli – er látinn Jakob Bjarnar skrifar 21. febrúar 2026 06:01 Haraldur Sigurðsson, sem aldrei var kallaður annað en Halli, er látinn. Haraldur Sigurðsson, annar helmingur hins goðsagnakennda tvíeykis Halli og Laddi, er látinn.
Halli fæddist 5. júní 1942 og því á 84. aldursári. Á löngu tímabili var hann einn þekktasti bílasölumaður landsins en hann starfaði fyrir Jöfur og var áberandi andlit fyrirtækisins sem slíkur. Störf hans í skemmtanabransanum er þó það sem mun halda nafni hans á lofti um ófyrirsjáanlega framtíð. Eins og áður sagði var Halli Hallinn í Halla og Ladda en Halli er eldri bróðir Þórhalls Sigurðssonar, Ladda. Þeir bræður kynntust þegar þeir dvöldu hjá afa sínum og ömmu í Rangárvallasýslu, þar sem Halli ólst upp, í Miðey í Landeyjum nánar tiltekið. Þar í sveitinni kynntist Halli hljómsveitamennsku og starfaði með nokkrum sveitum eða allt þar til hann gekk til liðs við hljómsveitina Faxa hvar Laddi bróðir hans var einmitt trommuleikari. Halli hóf störf hjá ríkissjónvarpinu sem leikmunavörður í kringum 1970 en þangað kom Laddi einnig til starfa og þá varð hinn frægi dúett til. Þeir ljáðu brúðunum Glámi og Skrámi raddir sínar og upp úr því fóru þeir að skemmta vítt og breitt um landið. Sumarið 1976 kom fyrsta grínplata þeirra bræðra út, sem var gefin út í samstarfi við Gísla Rúnar Jónsson og hét hún Látum sem ekkert C. Sú plata sló rækilega í gegn og ári síðar kom út platan Fyrr má nú aldeilis fyrrvera en báðar þessar plötur eru fyrir löngu orðnar sígildar í íslenskri plötuútgáfu. Þeir Laddi fóru að skemmta með hljómsveitinni Brimkló og ferðuðust með hljómsveitinni um landið. Og fljótlega upp úr því, eða 1979, stofnuðu þeir bræður HLH-flokkinn auk Björgvins Halldórssonar. Frægðarsól Halla skein skært á seinni hluta síðustu aldar. Hér er hlaupið á hundavaði yfir merkan feril Haralds í skemmtanabransanum en mætti þar tæpa á ýmsu fleiru. Halli eignaðist ásamt konu sinni Ragnhildi Ólafsdóttur, en þau voru saman í 57 ár, tvær dætur, þær Ólöfu Unu og Helgu Dögg en auk þess átti Halli átti dóttur sem búsett er á Húsavík, Jóhönnu Báru. Halli átti við vanheilsu að stríða síðustu ár ævi sinnar en það var heilablæðing sem varð honum að aldurtila.
Tónlist Andlát Menning Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Fleiri fréttir Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Sjá meira