„Svo fær maður svona helvíti á fyrsta opnunardegi“ Árni Sæberg skrifar 20. febrúar 2026 12:16 Einar Bjarnason er ekki kátur með bilunina. Í bakgrunni má sjá brekkuna sem stóð til að opna vinstra megin og hægra megin má sjá gömlu Drottninguna. Vísir/Arnar Stólalyftan Drottningin í Bláfjöllum bilaði í morgun, á fyrsta opnunardegi vetrarins. Verið er að rekja rafmagnsbilun og ómögulegt er að segja til um hversu lengi bilunin mun vara. Enginn var í lyftunni þegar hún bilaði og því er enginn skíðamaður að frjósa. „
Þetta er gjörsamlega óþolandi, ef ég segi alveg eins og er. Maður er gargandi fúll af því að þetta er eitthvað sem maður ræður ekkert við, það er það sem pirrar mann mest. Við vinnum hérna í fyrirbyggjandi viðhaldi allt árið en svo fær maður svona helvíti á fyrsta opnunardegi,“ segir Einar Bjarnason, rekstrarstjóri skíðasvæðisins í Bláfjöllum, í samtali við Vísi. „Loksins, loksins,“ sagði á heimasíðu Bláfjalla í morgun en þar var greint frá því að brekkurnar opnuðu í fyrsta skipti í tæpt ár í hádeginu. Nú segir aftur á móti að opnun stólalyftunnar hafi verið frestað um klukkustund hið minnsta vegna bilunarinnar. Sem áður segir er ómögulegt að segja til um það hversu lengi bilunin mun vara en Einar hvetur fólk til að fylgjast vel með á samfélagsmiðlum. Þó hefur barnasvæðið verið opnað og Einar segir góða stemningu hafa verið þar í allan morgun. Drottningin er eina stólalyftan sem stóð til að opna í dag en snjór er aðeins í Norðurleiðinni, þar sem hann hefur verið framleiddur.
Skíðasvæði Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sjá meira