Aftur brotist inn í Húrra Reykjavík Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 20. febrúar 2026 10:54 Á rúmri viku hefur þrisvar sinnum verið brotist inn í verslunina Húrra Reykjavík á Hverfisgötu. Vísir/Lýður Valberg Í nótt var brotist inn í verslun Húrra Reykjavík á Hverfisgötu, í þriðja skipti á rúmri viku. Eigandann grunar að um sama mann sé að ræða. Lögreglan segir málið til rannsóknar. „
Þetta er klukkan 3:15 í nótt, þá eru dyrnar spenntar upp og öryggiskerfið fer í gang. Maður einsamall, mjög líklega sami maður og í hin skiptin, er inni í innan við tíu sekúndur,“ segir Sindri Snær Jensson, annar stofnandi Húrra Reykjavík. Að sögn Sindra tók maðurinn bunka af stuttermabolum sem voru til sýnis og fór strax út. Bolirnir kosta á annað hundrað þúsund. Fimm mínútum eftir að maðurinn braust inn var lögreglan mætt á svæðið og starfsmaður Húrra. Þá fannst maðurinn hvergi. Á rúmri viku hefur þrisvar sinnum verið brotist inn í verslunina. Í gær var greint frá því að þann 11. febrúar brutust þrír menn inn í verslunina og höfðu með sér þýfi úr versluninni sem kostar yfir milljón krónur. Mennirnir voru handsamaðir af lögreglu. Viku síðar, aðfaranótt 19. febrúar, var aftur brotist inn í verslunina rétt fyrir klukkan þrjú. Einn þjófur spennti upp hurðina og hleypur þýfið á nokkrum hundruðum þúsunda. Hér má sjá myndskeið af innbrotinu 19. febrúar. Erfitt að koma í veg fyrir glæpi Sindra grunar að um sama mann sé að ræða og síðast þar sem hann var klæddur sömu buxum og skóm. „Líka af því að þetta virðist vera einstaklingur sem á mjög erfitt. Maður hefur rætt við þá sem eru að reka meðferðarheimili og það lenda allir á biðlistum og veggjum og fá enga aðstoð. Þá leiðist fólk út í eitthvað svona,“ segir hann. Dagurinn í dag fari í að styrkja dyrnar svo ekki sé hægt að spenna þær aftur upp. „Það er mjög erfitt að koma í veg fyrir glæpi en við verðum allavega betur varin.“ Þrír handteknir vegna innbrots „Lögreglan tjáði okkur að þau ætluðu að reyna endurheimta þýfið frá því í fyrrakvöld, það hefur ekki gengið,“ segir Sindri. Ásmundur Rúnar Gylfason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir málið til rannsóknar. Þrír menn voru handteknir í kjölfar innbrotsins þann 11. febrúar og liggja undir grun. Seinni tvö innbrotin eru enn til rannsóknar hjá lögreglu og hefur enginn verið handtekinn. „Við erum bæði að skoða myndefni sem okkur hefur borist og erum að bíða eftir myndefni. Við erum að reyna að bera kennsl á þá.“
Lögreglumál Reykjavík Verslun Mest lesið Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Á annað hundrað sektaðir Innlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Fleiri fréttir Þrjátíu grindhvalir við Hólmavík Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sjá meira