„Hann reyndi að lokka þær inn í bílinn“ Lovísa Arnardóttir skrifar 19. febrúar 2026 11:44 Stúlkurnar voru fyrir utan Smáralind þegar maðurinn reyndi að plata þær upp í bíl. Íris Dögg og Vísir/Vilhelm Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur nú til rannsóknar að karlmaður á miðjum aldri hafi reynt í gær að lokka fjórar níu ára gamlar stúlkur upp í sendiferðabíl sinn í stað fyrir súkkulaði. Júlíana Sara Gunnarsdóttir, leikkona og móðir einnar stúlkunnar, segir atvikið áminningu til foreldra um að fræða börn sín. „
Mér fannst ég bera skyldu til að segja frá þessu,“ segir Júlíana Sara í samtali við Vísi en hún birti einnig færslu um atvikið á Facebook í dag. „Dóttir mín og vinkonur hennar voru að labba heim frá Smáralind eftir vel heppnaðan öskudag. Þær voru stoppaðar af miðaldra manni sem var á gráum sendiferðabíl. Hann reyndi að lokka þær inn í bílinn með því að segja þeim að hann ætti nóg af súkkulaði og nammi handa þeim. Sem betur fer neituðu þær því og drifu sig heim til einnar og sluppu þær því með skrekkinn,“ segir hún í færslunni. Júlíana Sara segir atvikið góða áminningu. „Maður heldur aldrei að eitthvað svona gerist í sínu nærumhverfi,“ segir hún. Maðurinn hafi stöðvað stelpurnar og reynt ítrekað að fá þær upp í bíl. Júlíana segist afar þakklát að ekki hafi farið verr. „Þær höfðu fengið fræðslu í skólanum og vissu alveg hvað var að gerast,“ segir Júlíana. Skelkaðar eftir á Stelpurnar hafi sagt þvert nei og hringt svo beint í foreldra sína sem hafi tilkynnt málið til lögreglunnar. Lögreglan hafi komið á vettvang til að ræða við þær og foreldra þeirra. „Þær voru rosalega skelkaðar eftir þetta. Sjokkið kom svona eftir á. Þær eru bara nýbyrjaðar að fara einar út.“ Hún þakkar fyrir að stelpurnar hafi fengið fræðslu í skólanum en viðurkennir að sem foreldri hafi hún líklega ekki verið nógu dugleg að tala um svona hættur við börnin sín. Þetta atvik sé áminning um að gera það. „Maður fer rosalega mikið að hugsa um hvernig sé hægt að fræða. Þær eru ekkert smá hugrakkar og flottar,“ segir hún að lokum. Til rannsóknar hjá lögreglu Jónatan Guðnason, aðalvarðstjóri hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í Kópavogi, staðfestir að málið hafi verið tilkynnt til lögreglunnar. „Ég get staðfest að málið var tilkynnt til okkar og að við fórum á staðinn. Þetta er til rannsóknar hjá okkur,“ segir Jónatan og að hann geti ekki tjáð sig frekar um málið.
Kópavogur Lögreglumál Ofbeldi gegn börnum Kynferðisofbeldi Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Fleiri fréttir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Sjá meira