„Við systkinin erum bara vinnandi fólk“ Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 18. febrúar 2026 20:01 Baldvin Björgvinsson bíður og vonar að móðir hans fái pláss á hjúkrunarheimili sem fyrst. Hann er einn af fjölmörgum í sambærilegri stöðu. Vísir/Lýður Valberg Kona á níræðisaldri með Alzheimer gæti þurft að bíða í allt að fjögur ár eftir að komast á hjúkrunarheimili. Sonur hennar segir sárt að horfa upp á að ekki hafi verið brugðist fyrr við, þrátt fyrir að í mörg ár hafi legið fyrir að þörf væri fyrir fleiri rými.
Móðir Baldvins Björgvinssonar er 82 ára og með Alzheimer. Hún er ein þeirra fjölmörgu eldri borgara sem bíða þess að komast á dvalar- eða hjúkrunarheimili þar sem verulegur skortur er á plássi. „Það er búið að sækja um varanlega búsetu en svarið er: Það eru svona fjórar vikur til fjögur ár,“ segir Baldvin. Hann þekki mýmörg dæmi um aðra í svipaðri stöðu. „Meira og minna allir jafnaldrar mínir eru að eiga við það sama í dag, og það er skortur á þessum hjúkrunarrýmum fyrir eldra fólk.“ Það sé ekki sjálfgefið að aðstandendur hafi tök á að sinna öldruðum og jafnvel veikum foreldrum sínum. „Við systkinin erum bara vinnandi fólk. Við getum ekkert verið að því allan sólarhringinn að sinna veiku fólki,“ segir Baldvin. „Maður er að heyra frásagnir af einstaklingum sem voru búnir að detta og beinbrotna heima hjá sér tvisvar, og alltaf sent heim aftur. Fólk sem að getur ekkert verið eitt.“Þá séu ótalin dæmin um það þegar eldra fólk neyðist sjálft til að annast veikan maka og tapar við það hratt niður eigin heilsu. Heimahjúkrun og hvíldarinnlagnir í styttri tíma séu langt frá því að duga til. Móðir Baldvins hefur verið mjög veik undanfarið og er nú í hvíldarinnlögn á Sunnuhlíð. Sá tími sé senn á enda, og þá taki ekkert annað við en að hún fari aftur heim. „Já, það er bara það sem er í boði. Sem að náttúrlega er ekki hægt eins og staðan er,“ segir Baldvin. Staðan á bráðamóttökunni undirstriki vandann, en þar hefur móðir hans meðal annars þurft að dvelja þegar hún hefur verið veik. „Það sem að slær mann mjög óþægilega að horfa á þessa umræðu um bráðamóttökuna, er að ég veit að ef að mamma fer heim, þá þegar hún veikist þá verðum við að senda hana á bráðamóttökuna. Og það þýðir þá að hún verður í einhverjum bílskúr þar.“
Heilbrigðismál Eldri borgarar Hjúkrunarheimili Ástand á bráðamóttöku Landspítalans Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Sjá meira