Hæstiréttur gefur ÁTVR á baukinn Árni Sæberg skrifar 18. febrúar 2026 16:00 ÁTVR vill ekki selja Shaker en þarf nú að taka hann til reynslusölu. Vísir Hæstiréttur hefur vísað máli heildsölunnar Distu á hendur Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins frá Hæstarétti og því stendur dómur Landsréttar í málinu óhaggaður. ÁTVR greiddi málskostnað fyrir Landsrétti daginn eftir dómsuppsögu og fyrirgerði sér þannig rétti til áfrýjunar til Hæstaréttar. Hæstiréttur benti á að ÁTVR er ríkisfyrirtæki með löglærða menn í vinnu og naut aðstoðar lögmanna við rekstur málsins og því hefði það staðið ÁTVR næst að sýna fram á hvers vegna málskostnaður var greiddur, en það hefði ekki verið gert.
Í dómi Hæstaréttar segir að ÁTVR hafi áfrýjað dómi Landsréttar þar sem ákvörðun fyrirtækisins um að taka ekki drykkinn Shaker, sem inniheldur koffein, til reynslusölu var ógilt. Millifærði 3,5 milljónir Dista, sem flytur drykkinn inn, hafi krafist frávísunar málsins frá Hæstarétti og byggt kröfu sína þess efnis á því að ÁTVR hafi, daginn eftir að hinn áfrýjaði dómur var kveðinn upp, greitt Distu að fullu og án fyrirvara málskostnað sem ÁTVR var dæmt til að greiða í héraði og fyrir Landsrétti, 3,5 milljónir króna. Með greiðslunni hafi ÁTVR að eigin frumkvæði innt af hendi athafnaskyldu sína í samræmi við dómsorðið. Hafi Dista mátt ætla að málinu væri þá lokið enda ekkert sem hafi þrýst á fyrirvaralausa greiðslu málskostnaðar. Þessi gerð ÁTVR væri þannig ósamrýmanleg málskotinu og með henni hafi ÁTVR fyrirgert réttinum til áfrýjunar dómsins. Gáfu engar skýringar Í dómi Hæstaréttar segir að samkvæmt tilteknu ákvæði laga um meðferð einkamála geti aðilar máls afsalað sér rétti til að áfrýja dómi hvort heldur berum orðum eða þegjandi. Í ákvæðinu felist að slíkt afsal þurfi ekki að eiga sér stað með beinni tilkynningu til gagnaðila heldur geti athafnir málsaðila gefið gagnaðilanum ástæðu til að treysta því að dómi verði ekki áfrýjað. Í dómaframkvæmd hafi í því tilliti ítrekað verið litið svo á að þegar aðila einkamáls hefur með héraðsdómi verið gert að greiða gagnaðila tiltekna fjárhæð og hann greitt hana án fyrirvara sé áfrýjun dómsins því ekki samrýmanleg og leiði það til frávísunar frá æðri dómi. Sama gildi þegar aðili greiðir málskostnað án fyrirvara að gengnum dómi þar sem eina athafnaskylda hans samkvæmt dómsorði er greiðsla slíks kostnaðar. ÁTVR hafi í málatilbúnaði sínum fyrir Hæstarétti ekki upplýst um neinar ástæður sem útskýrt geti hvers vegna fyrirtækið greiddi Distu fyrirvaralaust málskostnað samkvæmt dómsorði hins áfrýjaða dóms daginn eftir uppkvaðningu hans. Ekki sé hald í þeirri skýringu þess að það hafi með þessu viljað firra sig vanefndaúrræðum enda leiði af einkamálalögum að málskostnaðurinn hefði fyrst borið dráttarvexti frá fimmtánda degi eftir uppkvaðningu dóms Landsréttar. Í kjölfar áfrýjunar frestist einnig aðfararhæfi kröfu samkvæmt dómi meðan mál er rekið fyrir æðri rétti. Með aðgang að lögfræðingum „Áfrýjandi er ríkisfyrirtæki með aðgang að lögfræðiþekkingu hjá starfsmönnum sínum auk þess sem hann hefur notið aðstoðar lögmanna við rekstur málsins. Það stóð honum næst að afla gagna eða frekari upplýsinga sem varpað hefðu getað ljósi á aðdraganda þess að málskostnaður var greiddur stefnda með framangreindum hætti en það hefur hann ekki gert,“ segir í dóminum. Því verði fallist á með Distu að félagið hafi mátt ætla að ekki yrði af áfrýjun dóms Landsréttar og málinu væri lokið þegar ÁTVR greiddi dæmdan málskostnað án fyrirvara. Áfrýjun málsins sé ekki samrýmanleg þeirri greiðslu og verði því vísað frá Hæstarétti.
Dómsmál Áfengi Mest lesið Ný streymisveita verði heimili íslenskrar framleiðslu Neytendur Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Viðskipti innlent Nágrannaerjur, „Not President“ og Íslandsmet í að ganga í humátt Atvinnulíf Ragnar Jónasson til liðs við Logos Viðskipti innlent Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Viðskipti innlent Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Viðskipti innlent Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Viðskipti erlent Húsleit hjá Ölgerðinni Viðskipti innlent Íslandsbanki varar við svikasímtölum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Sjá meira