Lausn við svifryki Auður Elva Kjartansdóttir skrifar 18. febrúar 2026 15:31 Svifryksmengun hefur verið mikið í umræðunni undanfarið og viðvaranir gefnar út vegna loftgæða. Slíkar aðstæður minna okkur á að loftið sem við öndum að okkur er ekki sjálfgefið, jafnvel ekki í Reykjavík. Mengun getur safnast upp við ákveðnar veðuraðstæður og haft áhrif á heilsu fólks, sérstaklega þeirra sem eru viðkvæmir fyrir. Það er hins vegar minna rætt um það sem vinnur stöðugt gegn þessari mengun: trén í borgarlandslaginu. Í nýlegri rannsókn Aarons Z. Shearer og Duncan Slater á borgarskógum Reykjavíkur, kemur fram að tré á höfuðborgarsvæðinu fjarlægja árlega um 19,7 tonn af loftbornum mengunarefnum úr andrúmsloftinu. Þar á meðal eru svifryk, köfnunarefnisdíoxíð, óson, brennisteinsdíoxíð og kolmónoxíð. Þetta eru efni sem hafa þekkt áhrif á öndunarfæri og almenna heilsu. Tré gegna þessu hlutverki með einföldum hætti. Svifryk og önnur mengunarefni festast á yfirborði laufblaða og barrnála eða eru tekin upp í gegnum þau. Með úrkomu skolast agnirnar síðan niður og bindast jarðvegi. Þannig minnkar styrkur skaðlegra efna í loftinu sem við öndum að okkur. Sambærilegar niðurstöður hafa fengist erlendis. Hagstofa Bretlands hefur sýnt fram á að tré og gróður í þéttbýli draga verulega úr áhrifum loftmengunar. Áætlað hefur verið að þessi náttúrulega hreinsun loftsins tengist um 1.900 færri ótímabærum dauðsföllum á ári, auk þess sem hún sparar heilbrigðiskerfinu umtalsverðan kostnað. Samkvæmt rannsókn Shearer og Slater eru um 350.000 tré á borgarsvæði Reykjavíkur. Mörg þeirra voru gróðursett fyrir áratugum, meðal annars til að skapa skjól, bæta landgæði og fegra umhverfið. Í dag liggur fyrir að þau gegna einnig mikilvægu hlutverki fyrir loftgæði og heilsu borgarbúa. Þegar svifryk mælist hátt líkt og undanfarið verður hlutverk þeirra sérstaklega augljóst. Trén eru ekki aðeins hluti af borgarlandslaginu heldur einnig hluti af þeim innviðum sem styðja við heilsu og lífsgæði í borginni. Það tekur langan tíma að rækta skóg. Ávinningurinn skilar sér hins vegar daglega í loftinu sem við öndum að okkur. Mikilvægt er að standa vörð um stór tré í borgarlandslaginu því það eru þau tré sem veita mestu vistkerfisþjónustuna. Höfundur er framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Reykjavíkur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skógrækt og landgræðsla Reykjavík Umhverfismál Mest lesið Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson Skoðun Halldór 19.09.2026 Halldór Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene Skoðun Skoðun Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon skrifar Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo skrifar Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir skrifar Skoðun Nemandinn fær tíu – en hvað hefur hann lært? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Nóttin bjargar ekki deginum – hún afhjúpar hann Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Excel-væðing mannlífsins Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Kópavogur er klár – en þið? Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Hvers konar Ísland viljum við byggja? Albertína Friðbjörg Elíasdóttir skrifar Skoðun Fjölmiðlahelsi Sigurður Örn Hilmarsson skrifar Skoðun Að horfa heim Vera Wonder Sölvadóttir skrifar Skoðun Bættar styrkjareglur í menningarborginni Reykjavík Rúnar Freyr Gíslason skrifar Skoðun EES eftir 29. ágúst 2026 Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun D-vítamín og nýju fötin keisarans Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Eitruð jákvæðni í boði menntakerfisins Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Kröfur eru umhyggja Brynjar Karl Sigurðsson skrifar Skoðun Ákall til stjórnvalda Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Er mér óhætt hér?” sjúklingaöryggi fatlaðs fólks Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Viðskiptaráð með rörsýn á leigumarkaðinn Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Sáttamiðlun í sakamálum á Íslandi? Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Á Reykjavík að hafa þingmenn á Alþingi? Jón Bjarnason skrifar Sjá meira
Svifryksmengun hefur verið mikið í umræðunni undanfarið og viðvaranir gefnar út vegna loftgæða. Slíkar aðstæður minna okkur á að loftið sem við öndum að okkur er ekki sjálfgefið, jafnvel ekki í Reykjavík. Mengun getur safnast upp við ákveðnar veðuraðstæður og haft áhrif á heilsu fólks, sérstaklega þeirra sem eru viðkvæmir fyrir. Það er hins vegar minna rætt um það sem vinnur stöðugt gegn þessari mengun: trén í borgarlandslaginu. Í nýlegri rannsókn Aarons Z. Shearer og Duncan Slater á borgarskógum Reykjavíkur, kemur fram að tré á höfuðborgarsvæðinu fjarlægja árlega um 19,7 tonn af loftbornum mengunarefnum úr andrúmsloftinu. Þar á meðal eru svifryk, köfnunarefnisdíoxíð, óson, brennisteinsdíoxíð og kolmónoxíð. Þetta eru efni sem hafa þekkt áhrif á öndunarfæri og almenna heilsu. Tré gegna þessu hlutverki með einföldum hætti. Svifryk og önnur mengunarefni festast á yfirborði laufblaða og barrnála eða eru tekin upp í gegnum þau. Með úrkomu skolast agnirnar síðan niður og bindast jarðvegi. Þannig minnkar styrkur skaðlegra efna í loftinu sem við öndum að okkur. Sambærilegar niðurstöður hafa fengist erlendis. Hagstofa Bretlands hefur sýnt fram á að tré og gróður í þéttbýli draga verulega úr áhrifum loftmengunar. Áætlað hefur verið að þessi náttúrulega hreinsun loftsins tengist um 1.900 færri ótímabærum dauðsföllum á ári, auk þess sem hún sparar heilbrigðiskerfinu umtalsverðan kostnað. Samkvæmt rannsókn Shearer og Slater eru um 350.000 tré á borgarsvæði Reykjavíkur. Mörg þeirra voru gróðursett fyrir áratugum, meðal annars til að skapa skjól, bæta landgæði og fegra umhverfið. Í dag liggur fyrir að þau gegna einnig mikilvægu hlutverki fyrir loftgæði og heilsu borgarbúa. Þegar svifryk mælist hátt líkt og undanfarið verður hlutverk þeirra sérstaklega augljóst. Trén eru ekki aðeins hluti af borgarlandslaginu heldur einnig hluti af þeim innviðum sem styðja við heilsu og lífsgæði í borginni. Það tekur langan tíma að rækta skóg. Ávinningurinn skilar sér hins vegar daglega í loftinu sem við öndum að okkur. Mikilvægt er að standa vörð um stór tré í borgarlandslaginu því það eru þau tré sem veita mestu vistkerfisþjónustuna. Höfundur er framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Reykjavíkur.
Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar