Sáttur við að staða hans sé auglýst Eiður Þór Árnason skrifar 17. febrúar 2026 17:12 Guðjón Hauksson, forstjóri HSA, segir að framtíðin sé óráðin. Aðsend/Vísir Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að auglýsa stöðu forstjóra Heilbrigðisstofnunar Austurlands (HSA) lausa til umsóknar. Sitjandi forstjóri kveðst sáttur við niðurstöðuna og hefur ekki ákveðið hvort hann vilji halda áfram.
Guðjón Hauksson segist hafa gert sér grein fyrir því að hann myndi taka við embættinu til ákveðins tíma og því ekki óeðlilegt að farið sé yfir málin að þeim tíma loknum. „Ég lít ekki á þetta sem einhverja sérstaka vantraustsyfirlýsingu eða eitthvað slíkt.“ Guðjón tók við sem forstjóri HSA árið 2017 og hefur gegnt starfinu í rúm níu ár. Hann hefur verið skipaður tvisvar í embættið til fimm ára í senn og er nú á lokaári seinna tímabilsins. Guðjón hefur áður starfað sem deildarstjóri á sömu stofnun, sérfræðingur í velferðarráðuneytinu, verkefnastjóri á Landspítalanum og sem hjúkrunarfræðingur. „Mín skoðun er sú að þegar maður er að gegna svona embætti þá á maður ekki starfið beint. Ég orða þetta nú þannig að maður fái það lánað í ákveðinn tíma, og þess vegna sé mikilvægt að leggja allt sitt í starfið. Það er um opinbera þjónustu við almenning að ræða sem er rekin fyrir skattfé og auðvitað er skattfé takmörkuð uppspretta.“ Þá finnist honum eðlilegt að nýir einstaklingar fái tækifæri. Ekki allir jafn sáttir Mörg dæmi eru um að stjórnendur hjá hinu opinbera taki því ekki eins vel þegar ákvörðun er tekin um að auglýsa stöðu þeirra lausa til umsóknar. Líkt og í tilviki Guðjóns ákvað heilbrigðisráðherra á dögunum að auglýsa starf Hildigunnar Svavarsdóttur, forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri. Í kjölfarið tilkynnti Hildigunnur að hún hafi í ljósi þessarar ákvörðunar óskað eftir því að fá að láta af störfum þegar í stað, í stað þess að klára skipunartímann eða sækjast eftir því að gegna stöðunni áfram. „Ég tel mikilvægt að skýr forysta og fullt traust ríki um stöðu forstjóra og að nýr aðili taki við sem fyrst,“ sagði hún í tölvupósti til starfsfólks sjúkrahússins. Þá beindust spjót að ráðherra í fyrra þegar Ársæli Guðmundssyni, skólameistara í Borgarholtsskóla, var tilkynnt að staða sín yrði auglýst. Þykir þettta ekki sjálfsagður hlutur Guðjón ætlar að gefa sér tíma í að huga að næstu skrefum „og ekki ana að neinni ákvörðun.“ „Ég verð forstjóri 34 ára gamall og er bara að fara að fagna 45 ára afmælinu mínu 24. febrúar þannig að framtíðin bara kemur í ljós og hvað hún ber í skauti sér.“ Starfsstöð Heilbrigðisstofnunar Austurlands á Egilsstöðum.Vísir/vilhelm Guðjón kveðst þakklátur fyrir að hafa fengið að gegna þessu starfi, enda ekki sjálfsagður hlutur. „Þetta er fyrst og fremst heiður og ég lít þannig á þetta. Ég er bara mjög stoltur yfir árangrinum sem við höfum náð. Við höfum staðið okkur vel varðandi alla þá mælikvarða sem um íslenska heilbrigðisþjónustu gilda og ég er stoltur af þeim árangri. Starfsfólk HSA er ofboðslega lausnamiðað við oft mjög krefjandi og erfiðar aðstæður. Við erum náttúrulega ekki mörg þannig að það eru margir sem þurfa oft á tíðum að bera marga hatta og mér finnst starfsfólk HSA hafa gert það með glæsibrag.“ Fréttin hefur verið uppfærð.
Heilbrigðismál Heilbrigðisstofnun Austurlands Vistaskipti Stjórnsýsla Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Vinnumarkaður Tengdar fréttir Hildigunnur hættir strax eftir ákvörðun ráðherra Hildigunnur Svavarsdóttir hefur óskað eftir því að láta af störfum sem forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri frá og með deginum í dag vegna ákvörðunar heilbrigðisráðherra að auglýsa stöðu forstjóra að loknu fimm ára skipunartímabili hennar. 16. febrúar 2026 14:47 Guðjón Hauksson skipaður forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands Guðjón var metinn hæfastur úr hópi sex umsækjenda. 29. nóvember 2016 13:47 Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Fleiri fréttir „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Sjá meira
Hildigunnur hættir strax eftir ákvörðun ráðherra Hildigunnur Svavarsdóttir hefur óskað eftir því að láta af störfum sem forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri frá og með deginum í dag vegna ákvörðunar heilbrigðisráðherra að auglýsa stöðu forstjóra að loknu fimm ára skipunartímabili hennar. 16. febrúar 2026 14:47
Guðjón Hauksson skipaður forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands Guðjón var metinn hæfastur úr hópi sex umsækjenda. 29. nóvember 2016 13:47