„Þú stöðvar Pútín ekki með kossum og blómum“ Samúel Karl Ólason skrifar 16. febrúar 2026 10:10 Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segist ekki vilja gera sömu mistök og forverar sínir í embætti og aðrir ráðamenn hafa áður gert. Ómögulegt sé að friða Vladimír Pútín, kollega hans í Rússlandi með því að láta eftir honum. AP/Michael Probst Vólódímir Selenskí, forseti Úkraínu, segir að mörg mistök hafi verið gerð þegar kemur að samskiptum ríkja Evrópu og Rússlands á undanförnum árum. Það séu mikil mistök að verðlauna árásaraðila. Með þessu virðist forsetinn vera að ítreka að ekki komi til greina fyrir Úkraínumenn að hörfa frá því landsvæði sem þeir halda enn í Dónetsk-héraði.
Í færslu sem hann birti á samfélagsmiðlum í morgun segir Selenskí að það hafi verið gerð stór mistök með Rússland eftir að þeir innlimuðu Krímskaga og studdu aðskilnaðarsinna í austurhluta Úkraínu. Áður hafi mistök verið gerð eftir innrás Rússa í Georgíu og hernám þeirra á hluta landsins og enn áður hafi einnig verið gerð mistök þegar Rússar réðust á Téténíu. „Mörg mistök voru gerð. Þess vegna vil ég ekki vera forsetinn sem gerir sömu mistök og forverar mínir og aðrir hafa gert,“ segir Selenskí. Hann segist ekki eingöngu vera að tala um Úkraínu heldur aðra leiðtoga sem leyfðu Rússum að stunda landvinninga undanfarna áratugi. „Þú stöðvar Pútín ekki með kossum og blómum.“ Selenskí segir að hann hafi ekki reynt það hingað til og vilji því ekki reyna það núna. Það geti ekki verið rétta leiðin. Hans ráð til allra sé að reyna ekki að friða Pútín. Það muni eingöngu fela í sér að eftir fimm ár muni rússneski forsetinn hafa endurbyggt og þjálfað her sinn á nýjan leik. „Hann hefur misst mikið af vel þjálfuðu fólki. Hann er að missa þrjátíu til 35 þúsund menn á mánuði,“ segir Selenskí. „Getið þið ímyndað ykkur þetta á 21. öldinni? Getið þið ímyndað ykkur, hann er að missa 35 þúsund manns í hverjum mánuði? Ég er ekki viss um að hann viti af því.“ This is a big mistake to allow the aggressor to take something. It was a big mistake at the very beginning, starting with 2014. And even before that, during the attack and occupation of parts of Georgia. And even before that, when Chechnya was occupied, with total destruction and…— Volodymyr Zelenskyy / Володимир Зеленський (@ZelenskyyUa) February 16, 2026 Rússar hafa meðal annars krafist þess að úkraínskir hermenn hörfi frá því svæði sem þeir halda enn í Dónetsk-héraði í austurhluta Úkraínu. Þetta er mjög víggirt svæði og hefur Rússum gengið mjög illa að taka það með hervaldi. Svæðið var á árum áður hernumið af Rússum og úkraínskum aðskilnaðarsinnum í austurhluta Úkraínu en Úkraínumenn náðu því aftur og hafa síðan þá byggt upp miklar varnir þar. Úkraínumenn óttast að það að hörfa frá svæðinu myndi veita Rússum stökkpall lengra inn í Úkraínu, ákveði þeir seinna meir að gera aðra innrás í Úkraínu. Tala um að taka mun stærri hluta af Úkraínu Kröfur Rússa hafa ávallt verið meiri en þær að vilja Donbas-svæðið svokallaða, sem samanstendur af Dónetsk og Lúhansk-héruðum. Rússar hafa innlimað fimm héruð Úkraínu inn í rússneska ríkissambandið, samkvæmt breytingum sem gerðar voru á stjórnarskrá Rússlands á undanförnum árum. Um er að ræða Krímskaga, Kherson, Sapórisjía, Dónetsk og Lúhansk. Af þessum héruðum stjórna Rússar eingöngu Krímskaga og Lúhansk að fullu. Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, vísaði svo í vikunni til enn stærri hluta Úkraínu sem „sögulegs“ rússnesks landsvæðis og sagði að Rússar myndu á endanum koma höndum yfir öll slík svæði í Úkraínu. Í ávarpi sem ráðherrann hélt vísaði hann til Krímskaga, Donbas og til svæðis sem er af Rússum kallað „Novorossia“. Það er nafn yfir allan suðurhluta Úkraínu sem notað var á tímum rússneska keisaraveldisins. Það svæði nær yfir alla strandlengju Úkraínu og mun stærri hluta landsins en Rússar gera þegar tilkall til. „Drullist þið til Rússlands“ Í annarri færslu kallar Selenskí eftir frekari refsiaðgerðum gegn Rússlandi. Hann bendir til þess að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hafi beitt ríkisrekin olíufyrirtæki Rússland og þakkar honum fyrir það. Þá kallar hann eftir frekari aðgerðum gegn orkuiðnaði Rússlands og sérstaklega kjarnorkuiðnaði landsins frá Trump. Það myndi senda sterk skilaboð til Evrópu. Selenskí sagði Evrópu hafa gert mikið en aðgerða væri þörf gegn kjarnorkuiðnaði Rússlands, forsvarsmönnum hans, ættingjum þeirra og börnum. Mikið af þessu fólki byggi í Evrópu, börnin væru í skólum þar og þeir ættu fasteignir í Evrópu og Bandaríkjunum. „Drullist þið til Rússlands. Farið heim. Þið virðið engan í Bandaríkjunum. Þið virðið ekki reglur. Þið virðið ekki lýðræði. Þið virðið ekki Úkraínu eða Evrópu. Farið heim.“ Total sanctions means total. President Trump took strong steps sanctioning Lukoil and Rosneft. We are thankful to him. He can sanction all of their energy, in particular nuclear energy. And it will be a powerful message to the Europeans.Europeans have done a lot. But they…— Volodymyr Zelenskyy / Володимир Зеленський (@ZelenskyyUa) February 16, 2026
Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Rússland Vladimír Pútín Bandaríkin Donald Trump Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Erlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Fleiri fréttir Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Sjá meira