„Hann er ekki á einhverju klinki hérna“ Sindri Sverrisson skrifar 16. febrúar 2026 07:02 Daniel Dolenc hefur spilað fyrir finnska landsliðið og er hér í upphitun fyrir leik gegn Serbum í undankeppni EM 2025. Getty/David Damnjanovic „Við skiljum þessi skipti ekki ennþá,“ sagði Teitur Örlygsson í Bónus Körfuboltakvöldi, um þá ákvörðun Tindastóls að fá hinn finnska Daniel Dolenc og losa sig í staðinn við Serbann Ivan Gavrilovic. „
Ég er ekki búinn að sjá neitt frá þessum leikmanni ennþá. Ég var dálítið hrifinn af Ivan og fannst hann koma með vissa hluti inn í Tindastólsliðið. Hann gat skotið boltanum, góð þriggja stiga skytta, og í bestu leikjum Tindastóls í vetur fannst mér hann vera stór partur af því,“ sagði Teitur. Dolenc er búinn að spila einn bikarleik og einn deildarleik. Hann skoraði fjögur stig á tíu mínútum gegn Ármanni á föstudaginn, tók eitt frákast og gaf eina stoðsendingu. Umræðuna frá því í Körfuboltakvöldi á föstudaginn má sjá hér að neðan. Klippa: Körfuboltakvöld - Skrýtin skipti á Króknum „Ég skil þessi skipti ekki ennþá en það getur vel verið að hann eigi eftir að stíga upp og sýna okkur eitthvað,“ sagði Teitur og Benedikt Guðmundsson var á sama máli: „Vonandi fyrir Stólana þá býr meira í honum. Hann þarf að gera meira en hann hefur verið að gera hérna í byrjun. Hann spilar tíu mínútur í þessum leik og tíu mínútur í þeim síðasta. Kannski er það bara það sem þeir eru að leita að. Einhvern til þess að rétt leysa af í nokkrar mínútur og gera ekki mistök.“ Stefán Árni Pálsson benti þá á að í þeirri svakalegu baráttu sem fram undan er um Íslandsmeistaratitilinn mættu Stólarnir ekki við því að Dolenc væri eitthvað flopp. Langt frá því að vera nógu gott ef hann fær 5.000 evrur í laun „Maður verður líka að horfa á hvað þeir fá borgað,“ sagði Benedikt sem þekkir vel til á Króknum eftir að hafa þjálfað þar. „Ég get sem þjálfari ekki gert sömu kröfur til leikmanns sem er með 1.500 evrur og til leikmanns sem er með 8.000 evrur. Ég veit ekkert hvaða samning hann er með. En ef hann er með 5.000 evrur eða meira þá er þetta náttúrulega langt frá því að vera nægilega gott. En ef hann er að fá eitthvað klink og á að vera í litlu hlutverki, þá getur maður ekkert verið að gagnrýna hann. Ég er nokkuð viss um að hann sé ekki á einhverju klinki hérna. Ég þykist vita að þeir vilji og búist við meiru frá honum.“
Bónus-deild karla Tindastóll Körfuboltakvöld Mest lesið Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Fótbolti Stórsigur hjá Belgum undir stjórn Elísabetar Fótbolti Hefur ekki áhyggjur af slæmum velli Fótbolti Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Handbolti Heimsmeistararnir lögðu Evrópumeistarana Fótbolti Uppgjörið: Úkraína - Ísland 0-1 | Stórt skref í átt að HM Fótbolti Bjóða Söru velkomna heim með gæsahúðarmyndbandi Íslenski boltinn Aron Einar heim í Þorpið? Íslenski boltinn Verður hjá Celtic eitt ár í viðbót Fótbolti Myndasyrpa: Sara Björk snýr heim Fótbolti Fleiri fréttir Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Sjá meira