„Hrækjandi drullu eins og maður sé að steypa án grímu“ Smári Jökull Jónsson skrifar 14. febrúar 2026 14:20 Örn Úlfar býr í Reykjavík og er orðinn þreyttur á ráðaleysi í svifryksmálum. Vísir/Vilhelm Íbúi í Reykjavík segir óboðlegt að gefast upp fyrir mikilli svifryksmengun sem mælst hafi á höfuðborgarsvæðinu síðustu daga. Hann kallar eftir viðbrögðum frá þingmönnum og borgarfulltrúum og segir að fólk hljóti að setja spurningamerki við að hleypa börnunum sínum út í þeim aðstæðum sem hafa ríkt.
Styrkur svifryks í andrúmslofti við umferðargötur á höfuðborgarsvæðinu var langt umfram heilsuverndarmörk í hægviðrinu í gær og fyrradag. Í samtali við Svövu Svanborgu Steinarsdóttur, heilbrigðisfulltrúa hjá heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, kom fram að ekkert rykbindiefni væri til í landinu en hjálpar til við að minnka svifryksmengun. Mögulega yrði ekki hægt að rykbinda á höfuðborgarsvæðinu fyrr en í næstu viku. Örn Úlfar Sævarsson íbúi í Reykjavík skrifaði færslu á Facebooksíðu sinni í morgun þar sem hann spurði einfaldlega hvort fólk ætlaði einfaldlega að sætta sig við þessa mengun í Reykjavík. Hann spurði hvar þingmenn Reykjavíkur og borgarfulltrúar væru eiginlega í umræðunni og þegar Vísir heyrði í honum sagði hann ástandið búið að vera skelfilegt. „Ég er ekki með lausnina en ég sé vandamálið og ég held að allir hljóti að sjá það. Það sjást mengunarskýin og þessar tölur, rauðar eins og raunin hefur verið. Við hljótum að setja spurningamerki við hvort við setjum börnin okkar út í þessum aðstæðum,“ sagði Örn Úlfar. „Það er grátlegt að fallegustu vetrardagarnir séu á sama tíma þeir verstu.“ „Hrækjandi drullu eins og maður hafi verið að sparsla eða steypa án grímu“ Að hans mati átta ekki allir sig á alvarleika málsins. „Ég get ekki sagt það. Ég hefði viljað að þetta sé fyrsta mál á dagskrá. Við stærum okkur af því að vera mengunarlítið land. Fólk fer í skotgrafir eða hjólför í þessari umræðu,“ sagði Örn og vísaði meðal annars í umræðu um notkun nagladekkja. „Einhverjar rannsóknir styðja við það að nagladekk sé áhrifavaldur, umferðin er áhrifavaldur og við sjáum mun á virkum dögum og helgum þegar umferðin er minni.“ Örn segist sjálfur fara hjólandi í vinnuna og að hann finni svo sannarlega fyrir svifryksmenguninni. „Ég finn fyrir þyngslum, særindum í hálsi og maður er hrækjandi út úr sér skítugri drullu eins og maður hafi verið að sparsla eða steypa án grímu.“ Fullkomið ráðaleysi ríki Hann kallar eftir viðbrögðum frá þeim sem eru í stöðu til að hafa áhrif. „Mér finnst það mjög alvarlegt ef fólk situr hjá og skilar auðu því á svona dögum ætti þetta að vera fyrsta mál á dagskrá. Hér eiga að vera þingmenn Reykjavíkur, hvar eru þeir? Hér er fólk sem annað hvort vill eða er að vinna sem borgarfulltrúar og það er enginn að tala um þetta.“ Hann segir að fullkomið ráðaleysi ríki og nauðsynlegt sé að rífa í einhvers konar handbremsu. „Menn eru að kasta á milli sín kartöflum. Vegagerðin ber ábyrgð á stofnbrautum og borgin á húsagögum. Svo er einhver sem segir að það eigi að sópa og aðrir að það sé það vitlausasta. Hver ætlar að reyna að gera eitthvað?“ Einhver verði að finna fyrir og axla ábyrgð. „Það er óboðlegt að gefast upp fyrir þessu,“ segir Örn Úlfar að lokum.
Umferð Umhverfismál Loftgæði Nagladekk Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sjá meira