Byggjum upp færni til sjálfsstæðrar búsetu – ekki bara hjúkrunarheimili Gunnlaugur Már Briem skrifar 14. febrúar 2026 13:00 Ef fólk var ekki meðvitað um bága stöðu bráðamóttöku Landspítala fyrir, þá ættu flestir að átta sig á alvarleika stöðunar eftir fréttir og umfjöllun síðustu daga. Fjöldi einstaklinga liggja á Landspítala sem ættu með réttu að fá aðgengi að annarri þjónustu t.d. meiri þjálfun og endurhæfingu, hjúkrunarheimilum eða heimahjúkrun. Við sem samfélag eigum að róa öllum árum að því markmiði að hámarka færni, sjálfsstæði og lífsgæði allra. Það er ekki bara hagkvæmast fyrir samfélagið heldur er slík nálgun einnig virðing við þá sem standa okkur næst, ömmur okkar og afa, og mömmur okkar og pabba. Skortur á hjúkrunarheimilum er raunverulegur. Vandinn er sérstaklega mikill á höfuðborgarsvæðinu þar sem hlutfallslega fæst hjúkrunarrými eru á hvern íbúa samkvæmt fréttum. Þetta hefur skapað neyðarástand á Landspítalanum þar sem fjöldi einstaklinga liggur, sem ætti að hafa möguleika til að útskrifast í aðra viðeigandi þjónustu. Hluti þessara einstaklinga gæti útskrifast heim ef þeim væri tryggð þjónusta, endurhæfing og stuðningur, á meðan aðrir myndu flytja inn í öfluga þjónustu hjúkrunarheimilana. Þessi staða hefur valdið óeðlilegu álagi á alla þá sem starfa á Landspítala og ekki síst á bráðamóttökunni. Starfsaðstæður eru óboðlegar, ekki er hægt að tryggja fullnægjandi sýkingavarnir og þrif til að aðstæður séu eins og þær eiga að vera hér á landi. Hvað erum við að gera? Neyðaraðgerðir síðustu daga eru að leigja húsnæði, færa fólk frá Landspítala á aðrar stofnanir og skoða möguleika á því að tvímenna inn heimilum þeirra sem þegar búa inn á hjúkrunarheimilum o.fl. sem ég geri ráð fyrir að stjórnvöld séu að skoða. Eðlilegt er að velta upp öllum möguleikum, þó þeir séu ekki endilega allir æskilegir. Þegar við horfum einhver ár fram í tímann þá er áætlunin að leysa vandann með því að byggja fleiri hjúkrunarheimili. Uppbygging hjúkrunarheimila er vissulega gríðarlega mikilvæg. Pálmi V. Jónsson öldrunalæknir sagði réttilega í kvöldfréttum Rúv (13.feb) að meginþungi í öldrunarþjónustu hafi verið að byggja hjúkrunarrými, og að það sé alltaf talað um það sem nr. 1, 2 og 3. Svo sé því bætt við í neðanmálsgrein að það mætti nú gera meira fyrir fólkið heima. Í sömu frétt kemur einnig fram að uppbygging hjúkrunarheimila haldi ekki í við þörfina. Pálmi bendir einnig á lausnir og breyttar áherslur. Hann talar um að stórefla þurfi samfélagsþjónustuna. Þar sem m.a. er vísað í að ef við bjóðum ekki upp á endurhæfingu, að þá séum við að búa til fólk sem þarf á hjúkrunarrýmum að halda og varanlegri dvöl. Þetta leiði til aukins þunga að komast inn á hjúkrunarheimili. Stórsókn í uppbyggingu á færni og sjálfsstæði Ef við ætlum að mæta þessari stöðu af fullri alvöru þá þurfum við að tryggja að næstu ár og áratugir fari ekki í eltingaleik við skottið á sjálfum okkur. Samhliða uppbyggingu hjúkrunarheimila þá eigum við að fara í stórsókn í uppbyggingu á færni og sjálfsstæði fyrir aldraða. Ef við tryggjum ekki öflugt aðgengi og mönnun á öllum stigum heilbrigðiskerfisins í endurhæfingu þá verður næsta verkefni kannski ekki að ræða um að tvímenna á herbergi heldur fjölmenna. Endurhæfing og þjálfun fækkar innlögnum, styttir legutíma, eykur líkur á farsælli útskrift, bætir færni og getu til sjálfsstæðrar búsetu, að ótöldum rétti okkar til að lifa við bestu mögulegu lífsgæði sem aðstæður okkar hverju sinni bjóða upp á. Fyrrgreindur Pálmi V. Jónsson orðaði þetta skilmerkilega í fréttum með þeim hætti að „Um leið og við bætum lífsgæði þá drögum við úr kostnaði. Vegna þess að öll vanræksla, hún kostar. Hún er mjög dýrkeypt fyrir allt samfélagið, fyrir einstaklingana að sjálfsögðu fyrst og fremst líka.“ Ekki má gleyma því að sjúkrahúslega og hjúkrunarrými eru okkar dýrustu úrræði, en í frétt Rúv kom fram að hjúkrunarrými kosti meira en 21 milljón króna á ári. Þau eru okkur öllum nauðsynleg og því verðum við að tryggja að þeir sem eru í mestri þörf komist að tímanlega. Við viljum ekki heldur færa vandamálin til með því að skapa yfirþrýsting á starfsemi hjúkrunarheimila þar sem fjölgun heimilismanna fer umfram það sem aðstaða íbúa, starfsaðstæður og mönnun starfsfólks eru gerðar fyrir. Við eigum að spyrja hvernig við getum komið í veg fyrir að fólk þurfi að leggjast inn á sjúkrahús eða hjúkrunarheimili. Á sama tíma eigum við horfa til þess að gera allt sem í okkar valdi stendur til að tryggja það að fólk sem þarf að leggjast inn á sjúkrahús geti komist aftur heim. Næstu skref Stórefla þarf áherslu á endurhæfingu, færni og sjálfstæði aldraðra ef takast á að við vaxandi þjónustuþörf næstu ára. Slík áhersla næst ekki með stökum aðgerðum heldur með samstilltu átaki á öllum stigum heilbrigðiskerfisins. Endurhæfing þarf að vera rauði þráðurinn í þjónustukeðjunni, allt frá bráðamóttöku og legudeildum, yfir í hjúkrunarheimili, endurhæfingarstofnanir, heilsugæslu og þjónustu sjúkraþjálfara á stofum. Jákvæð skref hafa verið tekin t.a.m. á Landspítali þar sem sjúkraþjálfarar starfa nú á bráðamóttöku. Það sýnir skýrt hversu miklu máli skiptir að styrkja enn frekar greiningu og fræðslu og að endurhæfing hefjist strax í upphafi veikinda eða eftir áföll. Vísað er til þess að hver dagur í innlögn kalli á tvo í endurhæfingu. En til að raunverulegur árangur náist þarf að tryggja áframhaldandi og samfellda þjónustu; öfluga mönnun sjúkraþjálfara, iðjuþjálfa, talmeinafræðinga, sálfræðinga og félagsráðgjafa, bæði innan sjúkrahúsa og utan þeirra. Endurhæfing má ekki rofna við útskrift, hún þarf að fylgja einstaklingnum áfram heim eða í sérhæfðari úrræði. Hjúkrunarheimili og endurhæfingarstofnanir búa yfir víðtækri þekkingu sem nýta má markvisst. Með því að fjölga sérhæfðum endurhæfingarinnlögnum í stað „hvíldarinnlagna“ og styrkja þverfaglegt samstarf má auka líkur á því að fólk nái aftur fyrri færni og geti snúið aftur heim. Á sama tíma þarf heilsugæslan að vera með gott aðgengi að endurhæfingarfagfólki sem sinnir greiningum og snemmtækri íhlutun, og vísar í viðeigandi þjónustu ef þörf er á. Þjónusta sjúkraþjálfara á stofum um land allt er lykilhlekkur í þessu stóra verkefni. Hún gerir útskriftir mögulegar, seinkar þörf fyrir dýrari úrræði, bætir færni og styður við sjálfstæða búsetu. Nú þegar er stór hluti þeirrar þjónustu sem fram fer á stofum sjúkraþjálfara veitt ellilífeyrisþegum eða um 35% og ljóst að eftirspurn mun aukast á komandi árum. Ef markmiðið er að mæta öldrun þjóðarinnar af ábyrgð þarf að tryggja sterkan og samfelldan grunn endurhæfingar á öllum stigum, ekki sem viðbót við kerfið, heldur sem burðarás þess. Eflum endurhæfingu, forvarnir, þverfaglega nálgun og hjúkrunarþjónustu þegar þess er þurfi, á sama tíma og við hugum að uppbyggingu hjúkrunarheimila. Höfundur er formaður Félags sjúkraþjálfara. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gunnlaugur Már Briem Heilbrigðismál Hjúkrunarheimili Mest lesið Hveragerði klippt í sundur Arnar H. Halldórsson,Hjálmar Trausti Kristjánsson Skoðun Áklæðið endurnýjað en vélin enn biluð Jóhanna Þorkelsdóttir Skoðun Hvernig stenzt þetta skoðun, Dagur? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Ósanngjörn reglugerð ógnar barnalækningum á Íslandi Helga Elídóttir Skoðun Af ávöxtunum skuluð þér þekkja þá Þorvaldur Víðisson Skoðun Erum við að missa sjónar á því sem stendur okkur næst? Hólmfríður Rut Einarsdóttir Skoðun Yfirfull fangelsi – og enginn skilur neitt í neinu Vilhelm Jónsson Skoðun Tækifæri í menntun sem við megum ekki missa af Skoðun Snorri Másson Heller Mills Sjöfn Asare Hauksdóttir Skoðun Grjótharðir og sársaukafullir veggir máttvana geðheilbrigðiskerfisins Sólveig María Svavarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Þetta segir fundargerð ESB frá 18. desember 2012 um aðlögun Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Skilvirkni og gagnsæi í málefnum flóttafólks Eva Rún Helgadóttir skrifar Skoðun Nei eða já, af eða á Ásgeir Þorgeirsson skrifar Skoðun Viljum við að fatlað fólk komist um á eigin forsendum? Þuríður Harpa Sigurðardóttir,Harpa Cilia Ingólfdóttir skrifar Skoðun Yfirfull fangelsi – og enginn skilur neitt í neinu Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Upplýsingaóreiða, aldursfordómar og mannleg reisn Berglind Indriðadóttir skrifar Skoðun Ég: ritskoðaður? Júlíus Andri Þórðarson skrifar Skoðun Fjársjóðurinn í matarkistunni Óli Finnsson skrifar Skoðun Ráðherrar tala um farsæld barna – en láta Foreldrahús loka 1. maí Sædís Ósk Harðardóttir, Jóhanna Jóna Gunnlaugsdóttir,Halldóra Ingibergsdóttir skrifar Skoðun Sterkari Háskóli, sterkari Akureyri! Maríanna Margeirsdóttir skrifar Skoðun Grjótharðir og sársaukafullir veggir máttvana geðheilbrigðiskerfisins Sólveig María Svavarsdóttir skrifar Skoðun Hveragerði klippt í sundur Arnar H. Halldórsson,Hjálmar Trausti Kristjánsson skrifar Skoðun Sérðu táknmálið? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Reynsla réttlætir ekki reglubrot Þórður Sigurjónsson skrifar Skoðun Ósanngjörn reglugerð ógnar barnalækningum á Íslandi Helga Elídóttir skrifar Skoðun Bestum borgina fyrir hinsegin fólk! Olga Margrét Cilia skrifar Skoðun Af ávöxtunum skuluð þér þekkja þá Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Erum við að missa sjónar á því sem stendur okkur næst? Hólmfríður Rut Einarsdóttir skrifar Skoðun Hvernig stenzt þetta skoðun, Dagur? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Áklæðið endurnýjað en vélin enn biluð Jóhanna Þorkelsdóttir skrifar Skoðun Tækifæri í menntun sem við megum ekki missa af skrifar Skoðun „Miskunnsami Samverjinn“ — sá sem þér ber að hata, fyrirlíta og forðast Sigurvin Lárus Jónsson skrifar Skoðun Samfélag regnbogans Dagný Kristinsdóttir skrifar Skoðun Táknin skipta ekki máli – fagmennskan gerir það Magnús Þór Jónsson skrifar Skoðun 30 ára aðlögun án áhrifa Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Kópavogsdalur er okkar Central Park Hákon Gunnarsson skrifar Skoðun Rödd þeirra sem bera kerfið uppi og rétturinn til að nota hana Formenn fag- og stéttarfélaga í heilbrigðisþjónustu skrifar Skoðun Trillukarlar – síðasta vígið gegn fáræði og spillingu Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Lyfjatengd dauðsföll eru pólitísk ákvörðun Unnar Þór Sæmundsson skrifar Skoðun Börn með málþroskaraskanir geta ekki beðið endalaust Hildur Jónsdóttir skrifar Sjá meira
Grjótharðir og sársaukafullir veggir máttvana geðheilbrigðiskerfisins Sólveig María Svavarsdóttir Skoðun
Skoðun Viljum við að fatlað fólk komist um á eigin forsendum? Þuríður Harpa Sigurðardóttir,Harpa Cilia Ingólfdóttir skrifar
Skoðun Ráðherrar tala um farsæld barna – en láta Foreldrahús loka 1. maí Sædís Ósk Harðardóttir, Jóhanna Jóna Gunnlaugsdóttir,Halldóra Ingibergsdóttir skrifar
Skoðun Grjótharðir og sársaukafullir veggir máttvana geðheilbrigðiskerfisins Sólveig María Svavarsdóttir skrifar
Skoðun „Miskunnsami Samverjinn“ — sá sem þér ber að hata, fyrirlíta og forðast Sigurvin Lárus Jónsson skrifar
Skoðun Rödd þeirra sem bera kerfið uppi og rétturinn til að nota hana Formenn fag- og stéttarfélaga í heilbrigðisþjónustu skrifar
Grjótharðir og sársaukafullir veggir máttvana geðheilbrigðiskerfisins Sólveig María Svavarsdóttir Skoðun