Stoltur yfir arfleifð Bryndísar Klöru en söknuðurinn sár Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 10. febrúar 2026 19:35 Faðir Bryndísar Klöru fylltist stolti yfir arfleifð dóttur sinnar þegar hann fylgdist með kynningarfundi um Bryndísarhlíð. Vísir/lýður Starfsemi Bryndísarhlíðar, sérhæfðrar ofbeldismóttöku innan Landspítala, mun hefjast innan tíðar. Móttakan er kennd við Bryndísi Klöru sem lést á spítalanum eftir fólskulega árás á menningarnótt. Birgir Karl Óskarsson, faðir Bryndísar, fyllist stolti yfir arfleifð hennar en söknuðurinn er alltaf jafn sár.
Fréttastofa mætti á kynningarfund um Bryndísarhlíð í dag. Á mörgum mátti finna að innra með þeim bærðust blendnar tilfinningar; annars vegar gleði og þakklæti yfir því að nú loksins sé Bryndísarhlíð að verða að veruleika og hins vegar söknuður eftir lífsglöðu 17 ára stúlkunni sem þurfti að kveðja í blóma lífsins. Starfsemi Bryndísarhlíðar verður til húsa að Laufásvegi 81, í gamla Kennaraskólanum við Landspítala. Minningarsjóður Bryndísar Klöru mun kosta endurbætur á húsnæðinu og heilbrigðisráðuneytið hefur tryggt rekstrarfjármagnið fyrir næstu ár. Landspítalinn veitir þegar þolendum ofbeldis fjölþætta þjónustu en engin sérstök ofbeldismóttaka er fyrir hendi gagnvart börnum. Öll slík úrræði Landspítalans verða því undir sama þaki í Bryndísarhlíð ásamt nýju áfallateymi fyrir börn. Minningu Bryndísar Klöru verður haldið á lofti í húsnæðinu. Guðrún Inga Sívertsen, formaður stjórnar Minningarsjóðs Bryndísar Klöru, segir að minningu Bryndísar Klöru verði haldið á lofti í húsinu og í allri starfsemi Bryndísarhlíðar. Guðrún Inga, Alma Möller og Runólfur Pálsson héldu tölu við þetta tækifæri.Vísir/Lýður „Hér verður tekið utan um börnin og við hlúum að þeim. Við ætlum til dæmis að mála þessa hurð bleika því það er liturinn hennar Bryndísar Klöru. Það verður kennileiti hússins,“ sagði Guðrún Inga sem benti á hvítar dyr sem verða brátt bleikar, alveg eins og Bryndís hefði eflaust viljað hafa þær. Birgi, föður Bryndísar Klöru, fannst lýsandi og við hæfi að sólin skyldi skína í dag. „Það er alltaf gott verður þegar eitthvað gott er að gerast í kringum Bryndísi. Ég veit það að Bryndís mun fylgjast með og hjálpa. Hún er fædd á þessari lóð og hún kvaddi á þessari lóð en hún er hérna ennþá.“ „Okkar missir verður ekki til einskis og hennar örlög verða alltaf að minna okkur á að við verðum að vera á undan, samfélagið verður að vera vakandi og hugsa um börnin okkar. Bryndísarhlíð kemur til hjálpar en fyrst og fremst verðum við að vera vakandi og sinna okkar hlutverki.“ Óhætt er að segja að Bryndís hafi hrifið þjóðina með sér því almenningur tók kröftuglega undir söfnun í hennar nafni og sérstaka kærleiksherferð.„Í þessari martröð að upplifa þennan meðbyr, hlýjuna til Bryndísar og þessa arfleifð sem hún skildi eftir sig, maður verður bara stoltur þó að maður sakni hennar.“Samfélagið sé þegar farið að vakna gagnvart skaðsemi og aukningu ofbeldis og mikilvægi þess að ráðast í fyrirbyggjandi aðgerðir áður en skaðinn er skeður.„Bryndís hljóp til varnar þegar ofbeldi hafði brotist út og við í samfélaginu verðum að hlaupa til varna áður en ofbeldi brýst út til þess að svona gerist aldrei aftur.“
Landspítalinn Heilbrigðismál Stunguárás við Skúlagötu Tengdar fréttir „Kannski verður maður grátandi hálft hlaupið, en þá bara er það þannig“ Iðunn Eiríksdóttir, móðir Bryndísar Klöru Birgisdóttur sem lést eftir stunguárás á Menningarnótt í fyrra, ætlar að hlaupa tíu kílómetra í Reykjavíkurmaraþoninu um helgina, einu ári eftir að árásin átti sér stað. 21. ágúst 2025 21:22 Vígðu bleikan bekk við skólann til minningar um Bryndísi Klöru Bleikur bekkur til minningar um Bryndísi Klöru Birgisdóttur sem lést eftir stunguáras á menningarnótt var vígður við Salaskóla í Kópavogi síðdegis í dag. 5. desember 2024 21:05 Minnast Bryndísar Klöru með tónleikum: „Fallegt hvað allir stóðu saman“ Minningartónleikar til heiðurs Bryndísar Klöru Birgisdóttur eru haldnir í kvöld, þar sem margir fremstu tónlistarmenn landsins koma fram. Skipuleggjandi segist hafa fundið mikinn samtakmátt meðal samnemenda Bryndísar Klöru. 3. október 2024 19:56 Mest lesið Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Innlent „Hún drap börnin“ Erlent Gunnar Þórðarson er látinn Innlent Okkar McCartney, okkar Bach kveður Innlent Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Innlent Horfðu á bílinn velta niður fjallið Innlent Fleiri fréttir Bruni við Breiðhöfða Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Þaulskipulagðir vasaþjófar, minkaveiðar og lífgjöf Dekk sprakk við lendingu vélar Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Skilningsleysi foreldra mætti litblindum syninum Staðan orðin „þokkalega góð“ Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Skothljóð og minkafár í Mosfellsdal í beinni Eldur logaði í Stykkishólmi Horfðu á bílinn velta niður fjallið Sjá meira
„Kannski verður maður grátandi hálft hlaupið, en þá bara er það þannig“ Iðunn Eiríksdóttir, móðir Bryndísar Klöru Birgisdóttur sem lést eftir stunguárás á Menningarnótt í fyrra, ætlar að hlaupa tíu kílómetra í Reykjavíkurmaraþoninu um helgina, einu ári eftir að árásin átti sér stað. 21. ágúst 2025 21:22
Vígðu bleikan bekk við skólann til minningar um Bryndísi Klöru Bleikur bekkur til minningar um Bryndísi Klöru Birgisdóttur sem lést eftir stunguáras á menningarnótt var vígður við Salaskóla í Kópavogi síðdegis í dag. 5. desember 2024 21:05
Minnast Bryndísar Klöru með tónleikum: „Fallegt hvað allir stóðu saman“ Minningartónleikar til heiðurs Bryndísar Klöru Birgisdóttur eru haldnir í kvöld, þar sem margir fremstu tónlistarmenn landsins koma fram. Skipuleggjandi segist hafa fundið mikinn samtakmátt meðal samnemenda Bryndísar Klöru. 3. október 2024 19:56