Rektor Háskólans á Bifröst segir af sér Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 9. febrúar 2026 20:11 Margrét Jónsdóttir Njarðvík er rektor Háskólans á Bifröst. Vísir/Sara Margrét Njarðvík Jónsdóttir, rektor Háskólans á Bifröst, ætlar að víkja úr starfi. Mikið hefur gengið á innan veggja skólans eftir að þrír starfsmenn voru kærðir til siðanefndar.
Margrét greinir frá þessu í viðtali í Kastljósi á Rúv. Hún hefur gegnt stöðunni í fimm ár. „Fyrir þennan Kastljós-þátt þá sendi ég bréf á stjórn skólans þar sem ég bað um lausn úr starfi,“ sagði Margrét. „Ég hef fylgst með opinberri aftöku minni í fjölmiðlum frá 14. janúar og þetta hefur verið að malla innra með mér. Sérstaklega þegar ég sá að umræðan var farin að hafa áhrif á nemendur gerði ég það.“ Vantrauststillagan samþykkt Um miðjan janúar var greint frá því að félagar í Félagi akademískra starfsmanna við Háskólann á Bifröst (FAB) hefðu lýst yfir vantrausti á stjórnsýslu Margrétar. Margrét auk deildarstjóra og rannsóknarstjóra við skólann höfðu notað gervigreindarmállíkanið Claude til að meta réttmæti höfundarstöðu á vísindagreinum hjá þremur akademískum starfsmönnum. Sjá nánar: Deilur í Háskólanum á Bifröst Í Kastljósi sagði Margrét að hún hefði fengið rannsóknarstjórann og deildarstjórann til að beita mannlegri dómgreind, sem þau gerðu, og síðan hefði verið fundað með siðanefndinni sem taldi tilefni til að taka málin fyrir. Það komi fram í úrskurðinum. FAB setti einnig út á að Margrét hafi beðið siðanefndina um að taka málið til skoðunar án þess að láta starfsmennina þrjá vita. Siðanefndin hafnaði þeirri beiðni. Margrét segir að það sé ekkert til í þeirri fullyrðingu. Hún hafi kallað starfsmennina fyrir nefnd og tjáð þeim að málið ætti að fara fyrir siðanefnd. Hins vegar í bréfi Margrétar til siðanefndarinnar, sem að fréttastofa hefur undir höndum, kemur annað fram. „Til að tryggja rannsóknarhagsmuni, fer undirrituð þess á leit við nefndina að gera rektor viðvart þegar nefndin hefur aflað sér allra gagna utan Háskólans á Bifröst er hún telur nauðsynleg til að leggja mat á neðangreind mál. Ef nefndin metur það svo, að áframhaldandi rannsóknar sé þörf, mun rektur gera hlutaðeigendum viðvart um aðild þeirra að þessu máli,“ segir í bréfinu. Líkt og kom fram hafnaði siðanefnd beiðni hennar. „Það var niðurstaða siðanefndar að í ljósi þess að við málsmeðferð skuli nefndin gæta meginreglna stjórnsýslulaga um upplýsingaöflun, meðalhóf og andmælarétt gangi þetta verklag ekki upp,“ segir í svari nefndarinnar. Tekið er fram að meðlimir hennar skilji hugsunina sem liggji að baki vegna rannsóknarhagsmuna en telur þá ekki nægjanlega tli að ganga gegn meginreglunni um að allir sem koma að málinu eigi að vita að mál þeirra sé til meðferðar. Nýtur nafnleyndar Seinna meir greindi Margrét frá því að athugunin hófst eftir að hún fékk ábendingu frá aðila sem nýtur nafnleyndar. Málsaðilar hafa sent stjórn Bifrastar bréf þar sem þess er krafist að nafnleynd í málinu verði aflétt, annars verði skoðað að leita til dómstóla eða leggja málið fyrir Umboðsmann Alþingis. Vísað er til stjórnsýslulaga þessu til stuðnings. Þau nýttu síðan niðurstöðurnar til að kæra starfsmennina þrjá til siðanefndar skólans. Tveir starfsmannanna hafa stigið fram, þau Hanna Kristín Skaftadóttir og Ragnar Már Vilhjálmsson, sem eru bæði lektorar við skólann. Þriðja starfsmanninum var sagt upp í sömu viku og málið fór fyrir siðanefnd í nóvember 2025. Stjórnendur skólans sögðu honum hafa verið sagt upp fyrir ótengdar sakir og hann sagður hafa brotið trúnað með því að kenna við annan háskóla. Starfsmennirnir þrír voru allir hreinsaðir af öllum sökum. Nemendur tjáðu sig Starfsmennirnir hafa töluvert tjáð sig um málið og í byrjun febrúar sögðu þeir starfsumhverfið þrúgandi og að réttlætiskennd fólks væri misboðið. Stjórn háskólans harmaði þá stöðu sem var komin upp innan skólans og sagðist vilja leita leiða til að koma samtali innan skólans í uppbyggilegan farveg. Stjórnin sagðist hins vegar treysta Margréti til að stýra daglegum rekstri skólans. Stuðningur stjórnarinnar var meðal þess sem Selma Klara Gunnarsdóttir, hagsmunafulltrúi Nemendafélags Háskólans á Bifröst, setti út á í skoðanagrein sem birtist á Vísi um helgina. Hún sagði vantraustsyfirlýsingu á hendur rektors veki upp spurningar um hvort stjórnin forgangsraði hagsmunum einstaklings ofar velferð stofnunarinnar. Að auki benti Selma Klara á að nemendur íhuguðu að segja sig úr námi við skólann og leita í aðra skóla til að stunda meistaranám að grunnnáminu loknu. Í dag sagði Selma Klara að nokkrir nemendur hefðu verið beittir þrýstingi og beðnir um að endurskoða afstöðu sína eða ekki taka afstöðu í málinu. „Það er ekkert eðlilegt við það að fá símtal frá stjórnendum og upplifa að það sé verið að misnota traust þeirra. Nemendur skólans og starfsfólk á að geta tjáð sig óhindrað,“ segir hún. „Það hefur enginn nemandi verið þvingaður,“ sagði Margrét nú í kvöld. Fréttin hefur verið uppfærð.
Deilur í Háskólanum á Bifröst Háskólar Skóla- og menntamál Borgarbyggð Höfundar- og hugverkaréttur Gervigreind Tengdar fréttir Málið mögulega fyrir dómstóla: „Ekkert eðlilegt við það að fá símtal frá stjórnendum“ Nemendur og akademískir starfsmenn Háskólans á Bifröst saka stjórnendur skólans um að hafa beitt nemendur þrýstingi í því skyni að tryggja rektor skólans stuðning. Það sé aðför gegn tjáningarfrelsi nemenda og fari gegn siðareglum. Stjórnarmaður í FAB segir rektor vera búinn að „missa klefann“. 9. febrúar 2026 12:18 „Vísun máls til siðanefndar getur ekki talist aðför“ „Vísun máls til siðanefndar getur ekki talist aðför, enda eru slík mál ekki gerð opinber af hálfu háskóla. Háskólinn á Bifröst hefur enga heimild til að reka siðarnefndarmál opinberlega. Viðbrögð Háskólans á Bifröst við umfjöllun í fjölmiðlum síðustu vikna verða því að skoðast í því ljósi.“ 9. febrúar 2026 06:47 Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Stjórnarmaður í Félagi akademískra starfsmanna við Bifröst segir vantrauststillögu gegn rektor skólans enn standa, þrátt fyrir að rektorinn segi niðurstöðu siðanefndar grundvöll sáttar í málinu. Hann er gagnrýninn á að siðanefnd hafi tekið málið fyrir en ekki vísað því frá. 7. febrúar 2026 13:36 Mest lesið „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Erlent Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Erlent Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Veður „Svona er bara litróf mannlífsins“ Innlent Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Innlent Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Innlent Tvær tilkynningar um eld Innlent Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Erlent Fleiri fréttir Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjá meira
Málið mögulega fyrir dómstóla: „Ekkert eðlilegt við það að fá símtal frá stjórnendum“ Nemendur og akademískir starfsmenn Háskólans á Bifröst saka stjórnendur skólans um að hafa beitt nemendur þrýstingi í því skyni að tryggja rektor skólans stuðning. Það sé aðför gegn tjáningarfrelsi nemenda og fari gegn siðareglum. Stjórnarmaður í FAB segir rektor vera búinn að „missa klefann“. 9. febrúar 2026 12:18
„Vísun máls til siðanefndar getur ekki talist aðför“ „Vísun máls til siðanefndar getur ekki talist aðför, enda eru slík mál ekki gerð opinber af hálfu háskóla. Háskólinn á Bifröst hefur enga heimild til að reka siðarnefndarmál opinberlega. Viðbrögð Háskólans á Bifröst við umfjöllun í fjölmiðlum síðustu vikna verða því að skoðast í því ljósi.“ 9. febrúar 2026 06:47
Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Stjórnarmaður í Félagi akademískra starfsmanna við Bifröst segir vantrauststillögu gegn rektor skólans enn standa, þrátt fyrir að rektorinn segi niðurstöðu siðanefndar grundvöll sáttar í málinu. Hann er gagnrýninn á að siðanefnd hafi tekið málið fyrir en ekki vísað því frá. 7. febrúar 2026 13:36