Nei forsætisráðherra, þessi ríkisstjórn eins og allar hinar, ætluðu að skila auðu í málefnum fósturbarna Guðlaugur Kristmundsson skrifar 6. febrúar 2026 08:17 Ég vil fara aðeins yfir það með þér í þessari grein hvers vegna svo er. Í fréttum gærdagsins kemur forsætisráðherra fram til þess að bregðast við frásögnum þeirra hugrökku manna sem voru í fóstri í Bakkakoti. Það var gott að sjá forsætisráðherra bregðast við þessum frásögnum og gefa þeim sem hafa slíkum sögum að segja tækifæri til þess að skila skömminni sinni og vinna úr sínum áföllum. Ég hef síðan þá fengið til mín símtöl og skilaboð um víðtækara og ljótara ofbeldi en þessir drengir sögðu sjálfir frá, frá fólki sem treystir sér ekki til þess að stíga fram. Það verður samt ekki setið undir því þegjandi þegar forsætisráðherra segist vonast til þess að það lagafrumvarp sem hafi verið í samráðsgátt stjórnvalda fyrr í vetur og komi fyrir þingið núna á vormánuðum eigi að laga stöðu fósturmála á Íslandi. Það frumvarp gerir það ekki og það var ekki ásetningur um slíkt heldur kemur fram í athugasemdum þess frumvarps að fósturmál verði tekin til frekari skoðunar síðar því frekari breytingar séu ekki tímabærar að svo stöddu. Það vorum við sem erum föst í þessu kerfi sem vorum að vona, þið stóðuð ekki undir þeim væntingum með því frumvarpi sem var lagt fram til samráðs. Enda bendir Barnavernd Reykjavíkur þar á, í sinni umsögn, að litlar breytingar séu gerðar á núverandi fósturkafla laganna og segir það þrátt fyrir skýrt ákall um það á undanförnum árum frá barnaverndarþjónustum. Það gerist ekki oft að heildarlög barnaverndarmála fái heildarendurskoðun og við í Félagi fósturforeldra og barnaverndarþjónustur höfðum gert okkur vonir um að í aðdraganda þessarar endurskoðunar fengi þessi málaflokkur góða rýni. Við í Félagi fósturforeldra höfðum fengið orð um að við yrðum dregin að þeirri vinnu til þess að við fengum tækifæri til þess að koma með ábendingar og tillögur til úrbóta. Það gerðist ekki en félaginu var ekki einu sinni boðið að senda umsögn. Barnamálaráðuneytið tilkynnir okkur það hafi verið ákveðið að undanskilja fósturmál að þessu sinni. Líkt og í öllum hinum uppfærslunum, alveg eins og þegar Farsæld barna var innleidd, þá stóð til að skoða fósturmálin á seinni stigum. Þetta vitum við í Félagi fósturforeldra, við höfum mætt í þau fáu skipti sem við höfum verið kölluð til samráðs. Við höfum líka í gegnum tíðina verið þau einu sem sitjum við borðið sem ekki þiggjum opinbert fé til þess að reka félagið okkar eða hagsmunagæslu. Í aðdraganda og undirbúnings Farsældar barna voru stofnaðir átta undirbúningshópar og við tókum þátt í fimm þeirra. Við höfum líka á fyrri árum verið kölluð til í ráðgjafahóp til undirbúnings framkvæmdaáætlunar barnaverndarmála. Í öllum þessum tilfellum höfum við verið þeir aðilar sem eru kallaðir að borðinu sem eru í sjálfboðavinnu. Allir aðrir mæta þarna sem opinberir starfsmenn eða starfsmenn félagasamtaka sem fá kröftugan fjárhagslegan stuðning til reksturs félagsins. Við rekum félagið í mestu leyti á sjálfboðastarfi og við höfum aldrei átt möguleika á öðru eða samtal um annað en brauðmola í gegnum tíðina. Við höfum mætt vel undirbúin að ræða við stofnanir og starfsmenn kerfisins. Við biðjum um hjálp, við bendum á hvar bæta megi eitt eða annað. Í lok árs 2024 átti félagið loks uppsafnað fé ásamt hóflegs styrks frá Barnamálaráðuneytinu, til þess að ráða sér starfsmann í hlutastarf. Vildi ráðuneytið að sá starfsmaður veitti fósturforeldrum þjónustu og ráðgjöf og héldi skrá til að kortleggja um leið hvar fósturforeldrar mættu hindrunum í kerfinu. Það hefur félagið gert en mætt algjöru áhugaleysi í framhaldinu þegar reynt hefur verið að fá frekara samtal um téða kortlagningu hindrana. Núna erum við aftur komin í óvissu því umsóknir um verkefnastyrki til ráðuneyta hefur verið hafnað og við höldum áfram að reiða okkur á félagsgjöldum fósturforeldra, styrki almennings og samfélagssjóði fyrirtækja. Síðasta rúma áratuginn erum við búin að ganga eyðimerkurgöngu innan kerfisins. Við höfum yfirsýnina yfir kerfið, oft betur en stofnanir ríkisins sjálf. Barna- og fjölskyldustofa og Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála eru stofnanir sem settar voru á fót samhliða innleiðingu Farsældar barna. Þessar stofnanir hafa leitað til okkar, til þess að ná sambandi við fósturforeldra því kerfið sjálf, ríkið, hafði ekki þá yfirsýn yfir kerfið eða þá aðila sem eru með börn í fóstri. Við höfum því litla trú á þeim tölum sem þið leggið á borð um fjölda þeirra barna sem eru í fóstri eða þann fjölda sem eru með börn í fóstri. Sannarlega getið þið staðfest þær tölur sem þið eruð búin að ná utan um. En við erum að biðja um sterkari og öflugri skref heldur en hingað til hafa verið tekin. Við viljum sjá forsætisráðherra sem gerir meira en að binda vonir við eigin aðgerðir. Það erum við sem erum vonsvikin af verkum ríkisstjórnar nú og allra fyrri ára. Á heimasíðu Farsældar barna er spurt hvort farsældin sé fyrir öll börn. Svarið er kómískt því að þar er sagt að stutta svarið er já, farsældin sé fyrir öll börn á Íslandi og fjölskyldur þeirra. Langa svarið er hins vegar einum staf lengra en stutta svarið, en það er nei. Við viljum ekki una þessari stöðu lengur. Við viljum sjá kerfisbreytingar og alvöru eftirlit með stofnunum sem taka ábyrgð á hlutverki sínu, hvort sem það eru stofnanir á vegum ríkisins eða sveitarfélögin sjálf. Saga sjálfboðaliðanna sem starfa fyrir Félag fósturforeldra heldur áfram, fylgist með í næsta þætti þegar við segjum frá fleiri eyðimerkurgöngum í samskiptum við fleiri stofnanir, ráðuneyti og sveitarfélög. Höfundur er formaður Félags fósturforeldra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Guðlaugur Kristmundsson Mál fósturbarna á Bakkakoti Mest lesið Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson Skoðun Sjögren er miklu meira en augn- og munnþurrkur Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Trillukarlinn og ESB Sigurjón Þórðarson Skoðun Gerum Ísland betra Finnur Torfi Magnússon Skoðun Verkin tala – en ekki um okkur Nichole Leigh Mosty Skoðun Auðlindastýring, aflandsfjármagn og hið asymmetríska stríð um 29. ágúst Sigurður Sigurðsson Skoðun Tjakkurinn, ljóstíran og tækifærin Dóra Magnúsdóttir Skoðun Krónan er ekki stríðsminjar – hún er megin ástæðan fyrir hagsæld okkar Eggert Guðmundsson Skoðun Hugsjónir og hagsmunir fara saman Jón Steindór Valdimarsson Skoðun Öryggisvottaðir leikvellir: Úlfur í sauðagæru Davíð Már Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Neyðin kennir nöktum Íslendingi að spinna Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Af hámarkshraða og pylsum Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Sjögren er miklu meira en augn- og munnþurrkur Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Verkin tala – en ekki um okkur Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Auðlindastýring, aflandsfjármagn og hið asymmetríska stríð um 29. ágúst Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Trillukarlinn og ESB Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Gerum Ísland betra Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Tjakkurinn, ljóstíran og tækifærin Dóra Magnúsdóttir skrifar Skoðun Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson skrifar Skoðun Krónan er ekki stríðsminjar – hún er megin ástæðan fyrir hagsæld okkar Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Vísindaferð í Brussel eða umsókn um aðild? Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Arnarnesvegur og varnaðarorð sem voru hunsuð Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Varanlegar undanþágur? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Öryggisvottaðir leikvellir: Úlfur í sauðagæru Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hver ber áfengið heim að dyrum? Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hugsjónir og hagsmunir fara saman Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Fótbolti og þjóðarmorð eiga ekki samleið Guðrún Sif Friðriksdóttir skrifar Skoðun Bikarveiðar í búningi atvinnurekstrar Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Þegar harður andstæðingur ESB-aðildar í Noregi skipti um skoðun Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Undarleg stefna í umræðunni um ESB Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun MBA: Meðvirkni, bómullar- og aumingjavæðing Davíð Bergmann skrifar Skoðun Börn þurfa meira en stærðfræði Aðalheiður Mjöll Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Er málflutningur SJÁ samtakanna marktækur? Birgir Finnsson skrifar Skoðun Gjaldmiðill sem aldrei átti að verða til og þjóðin situr enn uppi með Baldur Pétursson skrifar Skoðun Hvernig náum við til ykkar? Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Að leggja rækt við tortryggnina Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hvernig gat fæðingarþjónustan orðið útundan í stærstu heilbrigðisframkvæmd Íslandssögunnar? Guðrún I. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Milli gjörða og gilda býr vonin. Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Áfengi heim að dyrum? Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Barnið vex en Fésbókin ekki Reyn Alpha Magnúsdóttir skrifar Sjá meira
Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson Skoðun
Skoðun Auðlindastýring, aflandsfjármagn og hið asymmetríska stríð um 29. ágúst Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson skrifar
Skoðun Krónan er ekki stríðsminjar – hún er megin ástæðan fyrir hagsæld okkar Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Gjaldmiðill sem aldrei átti að verða til og þjóðin situr enn uppi með Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Hvernig gat fæðingarþjónustan orðið útundan í stærstu heilbrigðisframkvæmd Íslandssögunnar? Guðrún I. Gunnlaugsdóttir skrifar
Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson Skoðun