Mátti ekki kalla Samtökin '78 „hagsmunasamtök barnaníðinga“ Agnar Már Másson skrifar 5. febrúar 2026 21:20 Friðgeir vildi ekki meina að ummæli sín væru hatursfull. Því var héraðsdómur ósammála. Samsett mynd Friðgeir Sveinsson hefur verið dæmdur fyrir hatursorðræðu vegna ummæla í garð trans fólks og Samtakanna '78. Hann kallaði trans fólk „geðsjúklinga“ og skrifaði á samfélagsmiðla að Samtökin '78 væru „hagsmunasamtök barnaníðinga“ sem innrættu börn með „pervertisma“. Friðgeiri er gert að greiða 200 þúsund króna sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dómsins en sæta ella fangelsi í 14 daga. Auk þess er honum gert að greiða málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, en verjandi hans var Arnar Þór Jónsson, fyrrverandi forsetaframbjóðandi. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sótti málið, sem varðar fern ummæli sem Friðgeir lét falla á samfélagsmiðlum í tengslum við hinar ýmsu fréttir og bloggfærslur sem vörðuðu trans fólk og einkum kynfræðslu í skólum. „Samtökin '78 eru í mínum huga ekkert annað í dag en hagsmunasamtök barnaníðinga og annarra perverta sem eru að leita að auðveldum fórnarlömbum,“ skrifaði Friðgeir meðal annars í kommentakerfið undir frétt Mannlífs frá 2023 sem fjallaði um trans konu sem hafði verið sökuð um áreiti gegn börnum og þroskaskertum. Verjandi Friðgeirs var Arnar Þór Jónsson, en hann er fyrrverndi varaþingmaður og bauð sig fram til forseta 2024.Vísir/Vilhelm Í öðrum ummælum kallaði hann meðal annars Samtökin '78 „hagsmunasamtök barnaníðinga“, kallaði trans fólk „geðsjúklinga“ og hélt því fram að samtökin væru að „innræta börn“ með „pervertisma“. Líkti hann samtökunum einnig við barnaníðinga á veiðum. Þetta þótti brjóta gegn 233. grein almennra hegningarlaga sem kveður meðal annars á um það að hver sem opinberlega hæðist að, rógber, smánar eða ógnar hópi manna með ummælum eða annars konar tjáningu vegna kyneinkenna, kynhneigðar eða kynvitundar, eða breiðir slíkt út, skuli sæta sektum eða fangelsi allt að 2 árum. Friðgeir gekkst við ummælunum en neitaði sök. Hann mótmælti því að ummælin vörðuðu hatursorðræðu og byggði varnir sínar á tjáningarfrelsi. Hann sagði að ummælin hefðu verið sett fram sem innlegg inn í samfélagslega umræðu um kynfræðslu barna og hann kvaðst einfaldlega hafa verið að lýsa áhyggjum sínum af barnavernd fremur en að ráðast á tiltekna hópa. Héraðsdómur var ósammála. „Voru ummælin í senn alvarleg, gróflega meiðandi og fordómafull og fór ákærði með þeim út fyrir mörk þess tjáningarfrelsis sem verndað er af stjórnarskrá og mannréttindasáttmála Evrópu,“ segir í dómnum. 1. Þriðjudaginn 18. júlí 2023 skrifaði Friðgeir eftirfarandi ummæli á samfélags-miðlinum Facebook við frétt sem birtist á mannlíf.is og bar yfirskriftina „A sökuðum áreiti gegn börnum og þroskaskertum: „Þetta er ekki ég“: „Ég ætla bara aðsegja það upphátt!! Þetta er fyrrverandi fræðslustjóri Samtakanna78.. Og þettaer “KARLMAÐUR” Samtökin78 eru í mínum huga ekkert annað í dag enhagsmunasamtök barnaníðinga og annara perverta sem eru að leita aðauðveldum fórnarlömbum.. Og svo má ég alls ekki ræða það af því að þá er égvíst “Trans-fóbískur”... Ég er ekkert hræddur við kynferðislega brenglað fólk..Og ég vill ekki sjá þessa perverta í umgengni við börn.. Og alls ekki að þettabrenglaðra fólk stundi einhverskonar “Kynfræðslu” í skólum.. Þar sem börnþurfa, og verða að sitja undir þessum perverta áróðri er ekki í lagi.. Í raun algerskandall að umburðarlindi með geðsjúkdómum leiði til þess að kynferðislegastórbrengluðu fólki sé bókstaflega hleypt að börnum... Væntanlega til að skoðahvað er í boði...Finna hentug fórnarlömb.. þetta er sturlun.. Alger sturlun... OgNei, ég mun ekki biðjast afsökunar á því að benda á hið augljósa.“ 2. Laugardaginn 26. ágúst 2023 skrifaði hann og birti eftirfarandi ummæli á samfélags-miðlinum Facebook við frétt sem birtist á vefsíðunni frettin.is og bar yfirskriftina„Danmörk bannar transmeðferðir á börnum: 8700% aukning síðan 2014“: „Ogþað þarf líka að fara stoppa þetta hérlendis.. Samtökin 78 hafa að mínu mativerið stórhættuleg börnum síðan að Trans Geðsjúklingarnir tóku þau yfir. Sam-tökin 78 hafa sett ofuráherslu á að ná til barna... Og ég endurtek her með þá skoðun mína að hegðun og áherslur Samtakanna 78 er að mínu mati ekkert annaðen hegðun barnaníðinga á veiðum.“ 3. Laugardaginn 9. september 2023 skrifaði hann og birti eftirfarandi ummæli á samfélags-miðlinum Facebook við færslu B: „Það er blákalt mat mitt að hegðunsamtakanna 78 er ekkert annað en barnanýð. Þetta er að mínu mati bæði geðveiktog kynferðislega brenglað fólk sem hefur með orgi, ofsóknum og yfirgangi hrættþetta auma lið hjá Reykjavíkurborg og Menntastofnun til að gefa eftir.. Það erupervertar að fara inní kennslustofur að innræta börn á mótunaraldri með lygumog pervertisma... Væntanlega til að geta byrjað að misnota þessi börn sem fyrst..Má segja að þessi kynferðislega brengluðu geðsjúklingar séu að undirbúaveisluborð framtíðarinnar... Það eru bara til tvö kyn.. Restin er alger geðveikiog þessi geðveiki er komin markvisst inní grunnskóla ungra barna.. Það á aðkalla hlutina réttum nöfnum!!“ 4. Sunnudaginn 10. september 2023 skrifaði hann og birti eftirfarandi ummæli á sam-félagsmiðlinum Facebook við bloggfærslu sem birtist á [...].is og bar yfirskriftina„Ég sendi á skólastjóra Síðuskóla á Akureyri fyrirspurn um komandi„kennsluefni“ hinseiginfræðslu.“ : „Sem betur fer eru einstaklingar að þora aðstanda í lappirnar gegn þessari geðsturluðu þróun sem Trans Activistar eru aðtroða uppá börn. – Ég ítreka hér þá skoðun mína að Samtökin 78 séu ekkertannað en Hagsmunafélög Barnaníðinga á veiðum.. Og það á að halda slíku fólkifrá börnum.. Það á ekki að hleypa pervertum í greddukasti inní kennslustofur aðskoða börn til að innræta með geðveiki..“ Málefni trans fólks Hinsegin Tjáningarfrelsi Reykjavík Samfélagsmiðlar Dómsmál Mest lesið Nokkrir hlutfallslega á pari við Heiðu Innlent Fluttur til Noregs með brunasár á um helmingi líkamans Innlent Snekkjueigandinn stefnir íslenska ríkinu Innlent Hafa þurft að draga verulega úr olíuframleiðslu vegna árása Erlent Lögreglumenn vilja stöðva skaðabótasjóð Trumps Erlent Enginn heima þegar kettirnir kveiktu í eldhúsinu Innlent Ríflega helmingur orðið fyrir kynferðislegri áreitni í vinnunni Innlent Býður oddvitunum þremur í hádegismat: „Svona hótanir eru ekki góður grundvöllur fyrir samstarf“ Innlent Sat inni í 37 daga fyrir að grínast með morðið á Kirk Erlent Klemmdist undir rútu Innlent Fleiri fréttir Nokkrir hlutfallslega á pari við Heiðu Ein breyting í sveitarstjórn Kaldarananeshrepps Snekkjueigandinn stefnir íslenska ríkinu Ríflega helmingur orðið fyrir kynferðislegri áreitni í vinnunni Meirihlutasamstarf í höfn í Reykjanesbæ Fluttur til Noregs með brunasár á um helmingi líkamans Sjálfstæðisflokkurinn enn á flugi Maðurinn sem var beittur rafbyssu fluttur með sjúkraflugi til Noregs Klemmdist undir rútu Ekki talin vanhæf og fær að vera skiptastjóri „Er forsætisráðherra ánægð með hagstjórnina?“ Hafna kröfu um lokuð réttarhöld Enginn heima þegar kettirnir kveiktu í eldhúsinu Berglind Ósk sögð næsti bæjarstjóri Akureyrar Greiðvikni kom í bakið á fjórum Ásthildur hættir sem bæjarstjóri á Akureyri Samningur í höfn á Akureyri: „Algjörlega, það er staðan“ Aðför sem krefjist þess að talað sé um kvenréttindi frekar en kynjajafnrétti Vel fór á með Hildi og oddvitunum þremur í Hannesarholti Jóhannes Einarsson verkfræðingur látinn Óska eftir vitnum að líkamsárás í Lækjargötu Ríkið skerst í leikinn í von um að samningar haldi Býður oddvitunum þremur í hádegismat: „Svona hótanir eru ekki góður grundvöllur fyrir samstarf“ Fjölgun hælisleitenda í Reykjanesbæ sé engin Hefja formlegar viðræður um áframhaldandi samstarf Stýrivextir enn á uppleið og þreifingar um myndun meirihluta Hækka leigu stúdenta Sjálfstæðismenn verði að hætta að vera litlir í sér Vara við því að samgöngumannvirki lendi í einkaeigu Um 250 ábendingar um netbrot í nýja netgátt Sjá meira
Friðgeiri er gert að greiða 200 þúsund króna sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dómsins en sæta ella fangelsi í 14 daga. Auk þess er honum gert að greiða málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, en verjandi hans var Arnar Þór Jónsson, fyrrverandi forsetaframbjóðandi. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sótti málið, sem varðar fern ummæli sem Friðgeir lét falla á samfélagsmiðlum í tengslum við hinar ýmsu fréttir og bloggfærslur sem vörðuðu trans fólk og einkum kynfræðslu í skólum. „Samtökin '78 eru í mínum huga ekkert annað í dag en hagsmunasamtök barnaníðinga og annarra perverta sem eru að leita að auðveldum fórnarlömbum,“ skrifaði Friðgeir meðal annars í kommentakerfið undir frétt Mannlífs frá 2023 sem fjallaði um trans konu sem hafði verið sökuð um áreiti gegn börnum og þroskaskertum. Verjandi Friðgeirs var Arnar Þór Jónsson, en hann er fyrrverndi varaþingmaður og bauð sig fram til forseta 2024.Vísir/Vilhelm Í öðrum ummælum kallaði hann meðal annars Samtökin '78 „hagsmunasamtök barnaníðinga“, kallaði trans fólk „geðsjúklinga“ og hélt því fram að samtökin væru að „innræta börn“ með „pervertisma“. Líkti hann samtökunum einnig við barnaníðinga á veiðum. Þetta þótti brjóta gegn 233. grein almennra hegningarlaga sem kveður meðal annars á um það að hver sem opinberlega hæðist að, rógber, smánar eða ógnar hópi manna með ummælum eða annars konar tjáningu vegna kyneinkenna, kynhneigðar eða kynvitundar, eða breiðir slíkt út, skuli sæta sektum eða fangelsi allt að 2 árum. Friðgeir gekkst við ummælunum en neitaði sök. Hann mótmælti því að ummælin vörðuðu hatursorðræðu og byggði varnir sínar á tjáningarfrelsi. Hann sagði að ummælin hefðu verið sett fram sem innlegg inn í samfélagslega umræðu um kynfræðslu barna og hann kvaðst einfaldlega hafa verið að lýsa áhyggjum sínum af barnavernd fremur en að ráðast á tiltekna hópa. Héraðsdómur var ósammála. „Voru ummælin í senn alvarleg, gróflega meiðandi og fordómafull og fór ákærði með þeim út fyrir mörk þess tjáningarfrelsis sem verndað er af stjórnarskrá og mannréttindasáttmála Evrópu,“ segir í dómnum. 1. Þriðjudaginn 18. júlí 2023 skrifaði Friðgeir eftirfarandi ummæli á samfélags-miðlinum Facebook við frétt sem birtist á mannlíf.is og bar yfirskriftina „A sökuðum áreiti gegn börnum og þroskaskertum: „Þetta er ekki ég“: „Ég ætla bara aðsegja það upphátt!! Þetta er fyrrverandi fræðslustjóri Samtakanna78.. Og þettaer “KARLMAÐUR” Samtökin78 eru í mínum huga ekkert annað í dag enhagsmunasamtök barnaníðinga og annara perverta sem eru að leita aðauðveldum fórnarlömbum.. Og svo má ég alls ekki ræða það af því að þá er égvíst “Trans-fóbískur”... Ég er ekkert hræddur við kynferðislega brenglað fólk..Og ég vill ekki sjá þessa perverta í umgengni við börn.. Og alls ekki að þettabrenglaðra fólk stundi einhverskonar “Kynfræðslu” í skólum.. Þar sem börnþurfa, og verða að sitja undir þessum perverta áróðri er ekki í lagi.. Í raun algerskandall að umburðarlindi með geðsjúkdómum leiði til þess að kynferðislegastórbrengluðu fólki sé bókstaflega hleypt að börnum... Væntanlega til að skoðahvað er í boði...Finna hentug fórnarlömb.. þetta er sturlun.. Alger sturlun... OgNei, ég mun ekki biðjast afsökunar á því að benda á hið augljósa.“ 2. Laugardaginn 26. ágúst 2023 skrifaði hann og birti eftirfarandi ummæli á samfélags-miðlinum Facebook við frétt sem birtist á vefsíðunni frettin.is og bar yfirskriftina„Danmörk bannar transmeðferðir á börnum: 8700% aukning síðan 2014“: „Ogþað þarf líka að fara stoppa þetta hérlendis.. Samtökin 78 hafa að mínu mativerið stórhættuleg börnum síðan að Trans Geðsjúklingarnir tóku þau yfir. Sam-tökin 78 hafa sett ofuráherslu á að ná til barna... Og ég endurtek her með þá skoðun mína að hegðun og áherslur Samtakanna 78 er að mínu mati ekkert annaðen hegðun barnaníðinga á veiðum.“ 3. Laugardaginn 9. september 2023 skrifaði hann og birti eftirfarandi ummæli á samfélags-miðlinum Facebook við færslu B: „Það er blákalt mat mitt að hegðunsamtakanna 78 er ekkert annað en barnanýð. Þetta er að mínu mati bæði geðveiktog kynferðislega brenglað fólk sem hefur með orgi, ofsóknum og yfirgangi hrættþetta auma lið hjá Reykjavíkurborg og Menntastofnun til að gefa eftir.. Það erupervertar að fara inní kennslustofur að innræta börn á mótunaraldri með lygumog pervertisma... Væntanlega til að geta byrjað að misnota þessi börn sem fyrst..Má segja að þessi kynferðislega brengluðu geðsjúklingar séu að undirbúaveisluborð framtíðarinnar... Það eru bara til tvö kyn.. Restin er alger geðveikiog þessi geðveiki er komin markvisst inní grunnskóla ungra barna.. Það á aðkalla hlutina réttum nöfnum!!“ 4. Sunnudaginn 10. september 2023 skrifaði hann og birti eftirfarandi ummæli á sam-félagsmiðlinum Facebook við bloggfærslu sem birtist á [...].is og bar yfirskriftina„Ég sendi á skólastjóra Síðuskóla á Akureyri fyrirspurn um komandi„kennsluefni“ hinseiginfræðslu.“ : „Sem betur fer eru einstaklingar að þora aðstanda í lappirnar gegn þessari geðsturluðu þróun sem Trans Activistar eru aðtroða uppá börn. – Ég ítreka hér þá skoðun mína að Samtökin 78 séu ekkertannað en Hagsmunafélög Barnaníðinga á veiðum.. Og það á að halda slíku fólkifrá börnum.. Það á ekki að hleypa pervertum í greddukasti inní kennslustofur aðskoða börn til að innræta með geðveiki..“
1. Þriðjudaginn 18. júlí 2023 skrifaði Friðgeir eftirfarandi ummæli á samfélags-miðlinum Facebook við frétt sem birtist á mannlíf.is og bar yfirskriftina „A sökuðum áreiti gegn börnum og þroskaskertum: „Þetta er ekki ég“: „Ég ætla bara aðsegja það upphátt!! Þetta er fyrrverandi fræðslustjóri Samtakanna78.. Og þettaer “KARLMAÐUR” Samtökin78 eru í mínum huga ekkert annað í dag enhagsmunasamtök barnaníðinga og annara perverta sem eru að leita aðauðveldum fórnarlömbum.. Og svo má ég alls ekki ræða það af því að þá er égvíst “Trans-fóbískur”... Ég er ekkert hræddur við kynferðislega brenglað fólk..Og ég vill ekki sjá þessa perverta í umgengni við börn.. Og alls ekki að þettabrenglaðra fólk stundi einhverskonar “Kynfræðslu” í skólum.. Þar sem börnþurfa, og verða að sitja undir þessum perverta áróðri er ekki í lagi.. Í raun algerskandall að umburðarlindi með geðsjúkdómum leiði til þess að kynferðislegastórbrengluðu fólki sé bókstaflega hleypt að börnum... Væntanlega til að skoðahvað er í boði...Finna hentug fórnarlömb.. þetta er sturlun.. Alger sturlun... OgNei, ég mun ekki biðjast afsökunar á því að benda á hið augljósa.“ 2. Laugardaginn 26. ágúst 2023 skrifaði hann og birti eftirfarandi ummæli á samfélags-miðlinum Facebook við frétt sem birtist á vefsíðunni frettin.is og bar yfirskriftina„Danmörk bannar transmeðferðir á börnum: 8700% aukning síðan 2014“: „Ogþað þarf líka að fara stoppa þetta hérlendis.. Samtökin 78 hafa að mínu mativerið stórhættuleg börnum síðan að Trans Geðsjúklingarnir tóku þau yfir. Sam-tökin 78 hafa sett ofuráherslu á að ná til barna... Og ég endurtek her með þá skoðun mína að hegðun og áherslur Samtakanna 78 er að mínu mati ekkert annaðen hegðun barnaníðinga á veiðum.“ 3. Laugardaginn 9. september 2023 skrifaði hann og birti eftirfarandi ummæli á samfélags-miðlinum Facebook við færslu B: „Það er blákalt mat mitt að hegðunsamtakanna 78 er ekkert annað en barnanýð. Þetta er að mínu mati bæði geðveiktog kynferðislega brenglað fólk sem hefur með orgi, ofsóknum og yfirgangi hrættþetta auma lið hjá Reykjavíkurborg og Menntastofnun til að gefa eftir.. Það erupervertar að fara inní kennslustofur að innræta börn á mótunaraldri með lygumog pervertisma... Væntanlega til að geta byrjað að misnota þessi börn sem fyrst..Má segja að þessi kynferðislega brengluðu geðsjúklingar séu að undirbúaveisluborð framtíðarinnar... Það eru bara til tvö kyn.. Restin er alger geðveikiog þessi geðveiki er komin markvisst inní grunnskóla ungra barna.. Það á aðkalla hlutina réttum nöfnum!!“ 4. Sunnudaginn 10. september 2023 skrifaði hann og birti eftirfarandi ummæli á sam-félagsmiðlinum Facebook við bloggfærslu sem birtist á [...].is og bar yfirskriftina„Ég sendi á skólastjóra Síðuskóla á Akureyri fyrirspurn um komandi„kennsluefni“ hinseiginfræðslu.“ : „Sem betur fer eru einstaklingar að þora aðstanda í lappirnar gegn þessari geðsturluðu þróun sem Trans Activistar eru aðtroða uppá börn. – Ég ítreka hér þá skoðun mína að Samtökin 78 séu ekkertannað en Hagsmunafélög Barnaníðinga á veiðum.. Og það á að halda slíku fólkifrá börnum.. Það á ekki að hleypa pervertum í greddukasti inní kennslustofur aðskoða börn til að innræta með geðveiki..“
Málefni trans fólks Hinsegin Tjáningarfrelsi Reykjavík Samfélagsmiðlar Dómsmál Mest lesið Nokkrir hlutfallslega á pari við Heiðu Innlent Fluttur til Noregs með brunasár á um helmingi líkamans Innlent Snekkjueigandinn stefnir íslenska ríkinu Innlent Hafa þurft að draga verulega úr olíuframleiðslu vegna árása Erlent Lögreglumenn vilja stöðva skaðabótasjóð Trumps Erlent Enginn heima þegar kettirnir kveiktu í eldhúsinu Innlent Ríflega helmingur orðið fyrir kynferðislegri áreitni í vinnunni Innlent Býður oddvitunum þremur í hádegismat: „Svona hótanir eru ekki góður grundvöllur fyrir samstarf“ Innlent Sat inni í 37 daga fyrir að grínast með morðið á Kirk Erlent Klemmdist undir rútu Innlent Fleiri fréttir Nokkrir hlutfallslega á pari við Heiðu Ein breyting í sveitarstjórn Kaldarananeshrepps Snekkjueigandinn stefnir íslenska ríkinu Ríflega helmingur orðið fyrir kynferðislegri áreitni í vinnunni Meirihlutasamstarf í höfn í Reykjanesbæ Fluttur til Noregs með brunasár á um helmingi líkamans Sjálfstæðisflokkurinn enn á flugi Maðurinn sem var beittur rafbyssu fluttur með sjúkraflugi til Noregs Klemmdist undir rútu Ekki talin vanhæf og fær að vera skiptastjóri „Er forsætisráðherra ánægð með hagstjórnina?“ Hafna kröfu um lokuð réttarhöld Enginn heima þegar kettirnir kveiktu í eldhúsinu Berglind Ósk sögð næsti bæjarstjóri Akureyrar Greiðvikni kom í bakið á fjórum Ásthildur hættir sem bæjarstjóri á Akureyri Samningur í höfn á Akureyri: „Algjörlega, það er staðan“ Aðför sem krefjist þess að talað sé um kvenréttindi frekar en kynjajafnrétti Vel fór á með Hildi og oddvitunum þremur í Hannesarholti Jóhannes Einarsson verkfræðingur látinn Óska eftir vitnum að líkamsárás í Lækjargötu Ríkið skerst í leikinn í von um að samningar haldi Býður oddvitunum þremur í hádegismat: „Svona hótanir eru ekki góður grundvöllur fyrir samstarf“ Fjölgun hælisleitenda í Reykjanesbæ sé engin Hefja formlegar viðræður um áframhaldandi samstarf Stýrivextir enn á uppleið og þreifingar um myndun meirihluta Hækka leigu stúdenta Sjálfstæðismenn verði að hætta að vera litlir í sér Vara við því að samgöngumannvirki lendi í einkaeigu Um 250 ábendingar um netbrot í nýja netgátt Sjá meira
Býður oddvitunum þremur í hádegismat: „Svona hótanir eru ekki góður grundvöllur fyrir samstarf“ Innlent
Býður oddvitunum þremur í hádegismat: „Svona hótanir eru ekki góður grundvöllur fyrir samstarf“ Innlent